Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 ✝ Steingrímur Ey-fjörð Guðmunds- son fæddist í Reykja- vík 8. janúar 1960. Hann lést á Landspít- alanum í Reykjavík 2. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Guðmundur Pét- ursson læknir og fyrrverandi for- stöðumaður Til- raunastöðvar Háskól- ans í meinafræði að Keldum, f. í Nesi í Sel- vogi 8.2. 1933 og Ás- dís Steingrímsdóttir meinatæknir, f. 28.7. 1929, d. 1.9. 2007. Bróðir Steingríms var Pétur Magnús, f. 21.10. 1956, d. 9.11. 2006, maki er Sveinn Haraldsson, f. 11. júlí 1962. Systir Steingríms er Bergljót B., f. 14.6. 1958. Börn hennar eru Halla Björg Sigurþórsdóttir, f. 12.4. 1993 og Guðmundur Páll Sigurþórsson, f. 14.5. 1998. Sonur Steingríms og Sigrúnar Ólafsdóttur, f. 15.6. 1963, er Sig- urður Árni, f. 15.12. 1987. Steingrímur kvæntist 10.9. 1994 Maríu Gústafsdóttur, f. 22.5. 1972. Þau skildu. Sonur þeirra er Sindri Már, f. 12. 4. 1995. Steingrímur ólst upp erlendis með fjöl- skyldu sinni til ársins 1967 er þau fluttu heim til Íslands. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1981 og var ár- maður nemenda- félagsins síðasta vet- urinn í skólanum. Hann stundaði nám í hljóðvísindum við há- skólann í Utrecht í Hollandi og lauk því 1984. Eftir heimkom- una vann hann sem hljóðmaður hjá Sjónvarpinu en síðar við hljóð- vinnslu kvikmynda og auglýsinga hjá Bíóhljóði, þar sem hann vann til dauðadags. Hann var tónlist- armaður og spilaði með fjölda tón- listarmanna við ýmis tækifæri. Hann var meðlimur í ýmsum hljóm- sveitum, meðal annars Júpíters, Langa Sela og skuggunum, Oxsmá og Dívani grimma. Útför Steingríms fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 13. nóv- ember, kl. 15. Jarðsett verður í kirkjugarðinum að Strönd í Selvogi á laugardag. Meira: mbl.is/minningar Kæri pabbi, til þín: Myndir í hjarta mínu Eins og vornótt vefji landið værðarmjúku dropakasti eða hvísli hljótt við grasið hafsins svala morgungola – eins og lítill lækur beri ljúfa þrá af fjöllum ofan, brosi hlýtt við bakka grænum bregði á leik við stein og klappir – eins og bliki á heiðum himni hláturmildar stjörnur vorsins eða brosi sól í suðri sumarhvít á júnídegi – eins og fold úr hafi hefjist hljóð og blá úr jökulmóðu yljuð geislum dags og drauma dularfull með svipinn bjarta – þannig vakir þú í mínu þögla hjarta. (Matthías Johannessen.) Takk fyrir allan tímann sem ég fékk að vera með þér, þó að hann hafi ekki verið sér- staklega langur. Ég á alltaf eftir að sakna þín. Þinn Sindri. Elsku Steingrímur. Þegar við kvöddumst í sumar vissum við bæði að það var í síðasta sinn, í bili að minnsta kosti. Nú þegar þú ert farinn fyllist hjartað af sorg og söknuði en fyrst og fremst þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér, eiga þig sem vin og elska þig í blíðu og stríðu. Þakklæti fyrir góðu stundirnar sem við áttum saman og líka þær sem voru miður góðar, því þannig lærðum við að þekkja og skilja hvort annað betur, fyrirgefa og sættast. Síðast en ekki síst vil ég þakka þér fyrir elsku strákinn okkar, hann Sigga. Gulldrenginn, sem er svo heppinn að hafa fengið í vöggugjöf allt það fallega og fínlega úr þínu lundarfari ásamt húmornum ógleymanlega. Mikið er ég þakklát fyrir hönd ykkar beggja að Siggi gat verið hjá þér síðustu vikurnar sem þú lifðir. Ég sakna þín sárt og mun geyma þig í hjartanu svo lengi sem ég lifi og það er gott að finna að ástin deyr ekki þótt ástvinur deyi. Geymi þig guð og góðar vættir þar sem þú ert núna og skemmtu þeim með nærveru þinni, sögum þínum og frásögnum eins og þú skemmtir okkur öllum hér á stór- kostlegan hátt. Elsku Guðmundur, Systa, Siggi og Sindri, megi lífið gefa ykkur kraft og styrk í sorginni og miss- inum. Með hjartans kveðju, Sigrún. Hjartkær bróðursonur minn er látinn langt fyrir aldur fram eftir harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Það eru dimmir dagar og daprir og erfitt að sættta sig við það, sem við fáum ekki breytt. Sú staðreynd að Steingrímur er ekki lengur lífs er sár. Ljúflingur er látinn. Það var bjart yfir Steingrími og alltaf stutt í brosið. Frá honum stafaði hlýju og það var gott að vera í návist hans. Ég minnist hans sem barns og síðar fullorðins – í leik og í starfi – í gleði og í sorg. Brói eins og Stein- grímur var kallaður var yngstur systkinanna. Hann var fríður sýnum og bjart- ur yfirlitum. Lundgóður og hlýr í viðmóti. Góðlátlega kíminn. Alltaf spurði hann: „Hvernig líður þér?“ Honum var annt um aðra og var næmur á líðan þeirra. Brói var listamaður og margt til lista lagt. Sögumaður góður. En tónlistin stóð honum næst. Hann lifði og hrærðist í tónlist. Hljóðnæmur og starfaði mest við hljóðupptökur. Hann var hetja í baráttunni og naut þess tíma sem hann fékk milli stríða. Við syrgjum Bróa og skiljum ekki af hverju hann fékk ekki lengri tíma hér á jörð. Við minnumst Péturs Magnúsar, bróður hans, og Ásdísar Steingrímsdóttur, móður þeirra, en þau voru burtkölluð fyrir svo skömmu að það var rétt farið að hrúðra yfir sárin. Bergljót Björg eða Systa, systirin góða, á um sárt að binda sem og Guðmundur faðir hans og Sveinn mágur hans. Sam- úðarkveðjur til þeirra og sonanna Sigurðar Árna og Sindra Más. Guð gefi ykkur öllum styrk. Við minnumst mæts manns. Steingrímur Eyfjörð var drengur góður. Hvíl í friði, vinur og frændi. Sigríður Eyþórsdóttir. Fyrir um ári síðan kom Brói í veislu til mín til að fagna með mér miklum áfanga. Hann var eitthvað slappur, en við vissum ekki þá að þessi slappleiki væri annað og meira en venjuleg flensa. Hann kyssti mig bless og stuttu síðar tal- aði ég við hann í síma og þá var bú- ið að leggja hann inn. Á spítalanum spjölluðum við heil- mikið saman. Brói sagði mér ást- arsögu Guðmundar langafa okkar í Nesi. Frásögn Bróa var bráð- skemmtileg og öðru hverju sagði hann: „Ég held að þetta hafi verið svona, en kannski er ég bara að skálda,“ og þá spáði ég allt í einu í það hvað Brói hefði orðið skemmti- legur rithöfundur og hvað það hefði verið gaman að lesa skáldsögurnar hans. En Brói var hæfileikaríkur maður og aðrar listgreinar toguðu meira í hann. Þarna á spítalanum fékk ég að heyra allt um það hvern- ig Bergljótar-nafnið kom inn í fjöl- skylduna og af ástum og örlögum forfeðranna. Mikilvægar ástir, því án þeirra hefðum við Brói ekki orð- ið til og ég fengið eitthvert allt ann- að nafn en það sem ég ber í dag. Já, við Brói áttum góða rispu þarna á spítalanum þar sem farið var um víðan völl. Það var erfitt að kveðja án þess að mega kyssa hann á kinn- ina. Ég stóð þarna heillengi tvístíg- andi í hvítu herberginu, með sótt- hreinsaðar hendurnar og fannst ég vera að fara með vitið úr húsinu. Það var gaman að koma að Keld- um, æskuheimili Bróa þegar við vorum lítil. Brói tók mér alltaf fagnandi og leyfði mér að vera með þótt ég væri töluvert yngri. Guð- mundur, faðir Bróa og móðurbróðir minn, var forstöðumaður á Keldum og vissi ég að þarna var tilrauna- stöð. Þetta fannst mér allt mjög spennandi og þar sem ég var of feimin við fullorðna fólkið til að spyrja margs þá fékk ímyndunar- aflið að leika lausum hala. Ég sá fyrir mér alls kyns tilraunaglös inni í stóra húsinu. Þau voru af ýmsum stærðum og gerðum og inni í þeim voru meðal annars froskalappir, köngulóavefir, grænn reykur, rauð- ur reykur, eineygt draugaandlit og sitt hvað fleira. Ég vissi að þarna var verið að búa til meðöl sem gætu bjargað heiminum, þríhöfða dreka með samvaxna hala, Pandórubox sem myndi eyða öllu mannkyninu ef það yrði opnað undir berum himni og ýmislegt annað áhugavert. Já, hann Guðmundur frændi var vís- indamaður og Keldur einstaklega heillandi fyrir unga sál. Síðast þegar ég hitti Bróa á spít- alanum var ég að koma úr sónar. Þá var ég með myndir af litlu kríli sem var að boða komu sína í heim- inn. Þegar Pétur var veikur hafði hann dreymt fyrir þessu barni í einu af óráðum sínum og mér hafði þótt svo vænt um þann draum. Ekki vissi ég að þegar draumurinn myndi rætast ætti það fyrir mér að liggja að kveðja bróður hans líka. Ég hefði svo gjarnan viljað fá að heyra fleiri gullmola og sögur hrynja af vörum Bróa frænda og ég er innilega þakklát fyrir þær stund- ir sem við áttum saman. Guðmundur, Systa, Siggi og Sindri, ég votta ykkur innilegustu samúð mína. Bergljót Arnalds. Einstakur vinur, Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson, er látinn. Engum tókst að taka fram fyrir hendurnar á almættinu þrátt fyrir gegndarlausa þrá og vilja til þess. Steingrímur var fullmótaður af öllu því sem prýða má einn mann. Hann var orðheppinn sagnamaður, mikill húmoristi, séntilmaður, fag- urkeri og töffari sem stóð við bar- inn með sígarettu á milli fingranna og ræddi háhælaða kvenskó eða stríðni tófunnar af jafnmiklu innsæi og gítarsándið hjá Santana. Hann hafði unaðslega nærveru og var af- ar næmur á umhverfi sitt og sam- ferðamenn. Hann var gæddur of- urheyrn hljóðmannsins og heyrði hvort skórnir sem maður var í voru nýir eða gamlir án þess að líta á þá. Hann lauk upp nýjum hljóðheimum þannig að hversdagslegt urg, gnýr og dynkir þróaðist út í spennandi sögur af svaðilförum á ótrúlegustu staði við hljóðupptökur. Hann kynnti mér torkennilega tónlist sem ég hefði að öðrum kosti aldrei hlustað á og spilaði hana í viðráð- anlegum skömmtum, þar til hún varð yfirstíganleg og jafnvel við- kunnanleg. Hann fann þolmörkin án þess að líta upp úr tölvunni því hann var gæddur dularfullum skiln- ingarvitum. Hann spilaði á mörg hljóðfæri, samdi fallega tónlist og hermdi eftir fuglum, haugsugum og eldflaugum á undraverðan hátt. Steingrímur var lífsnautnamaður í hvívetna og framúrskarandi gleði- maður hvar sem hann fór. Hann hvatti mann til að njóta lífsins, lyfta sér upp og njóta þess. Hann var maður sem tók eftir smáatriðunum og sagði frá þeim svo þau lifnuðu við og urðu að aðalatriðum í heillandi og fyndnum sögum. Steingrímur var ávallt kurteis og hvert lítið viðvik sem innt var af hendi var þakkað af háttvísi og innileika. Hann var skynsamur maður og æðrulaus í veikindum sín- um og tók öllum slæmum fréttum af rólyndi. Hann strauk manni blíð- lega um vangann á meðan hann boðaði yfirvegaður hver vátíðindin á fætur öðrum en var jafnframt sá sem huggaði. Hann var óvenju hreinskilinn án þess að vera sær- andi því hann var vandvirkur og til- litssamur í tali og hugsun. Þessir einstöku mannkostir umluktu vin- áttu okkar Steingríms og gerðu það að verkum að þung spor í veikind- unum urðu léttbærari þrátt fyrir allt mótlætið. Hið óumflýjanlega grúfði yfir en á einhvern undra- verðan hátt tókst honum að skara að vináttu okkar öllu því fallegasta og besta sem lýsti upp rökkrið. Hann var þakklátur fyrir stuðning- inn en hann hefði ég aldrei getað veitt nema fyrir hans eigin atbeina. Sjálfur færði hann okkur varnir gegn mótlætinu og vanmættinum. Steingrímur var einstakur vinur og enginn kemur í hans stað. Minn- ingin um Steingrím lifir en við sem elskuðum hann hefðum sannarlega kosið að hann sjálfur lifði. Blessuð sé minning um ógleym- anlegan vin, Steingrím Eyfjörð Guðmundsson. Ég votta yndislegri fjölskyldu Steingríms og vinum hans mína dýpstu og innilegustu samúð. Einn- ig langar mig að þakka starfsfólki Landspítalans, hvítum englum á 11-G, fyrir aðdáunarverða um- hyggju og gæsku í veikindum Steingríms. Kristín Reynisdóttir (Tína). Við kynntumst fyrst á Langholts- veginum, hann var ekki nema 11 ára gamall þegar hann kom fyrst í Vogana, þar sem hann dvaldi hjá móðursystur sinni Rósu Stein- grímsdóttur. Við frændi hans og al- nafni Kristmundsson tókum ungan drenginn upp á arma okkar og opn- uðum augu hans fyrir hámenningu okkar í Vogunum: Frank Zappa’s Mothers of Invention og fleiru í þeim dúr. Steingrímur var fljótur að tileinka sér nýja menningar- strauma og öðlaðist fljótt forskot á jafnaldra sína en ekki grunaði mig þá að síðar yrði hann einn af mín- um nánustu samstarfsmönnum – og vinum. Þarna var lagður grunnur að hans næma tónlistareyra, en Steingrímur reyndist hið besta tón- skáld og lunkinn hljóðfæraleikari. Hann sýndi frábæra takta í hljóm- sveitinni Halló og heilasletturnar á fyrstu pönktónleikum á Íslandi 1978, að því er talið er, en hápunkti tónlistarferils síns náði hann með hinni frábæru hljómsveit Júpiters. Næmt tóneyra hans og smekkur kom sér vel þegar hann gerðist síð- ar hljóðmaður. Hann kom að hljóð- vinnslu flestra íslenskra kvikmynda sem upptökumaður eða hljóðklipp- ari. Natinn vann hann sína vinnu svo snurðulaust að það er næstum því óhugsandi að önnur mynd sé í bígerð – án hans. Steingrímur var frábær sögu- maður og fékk áheyrendur sína til að veltast um af hlátri: einföldustu uppákomur gátu verið spaugilegar í hans meðhöndlun og gerði hann óspart grín að sjálfum sér. Að vanda yfirvegaður, á meðan beðið var eftir næstu tökum, tók hann til við að kæta samstarfsfólk sitt og vini, ævinlega fullur af hlýju og æðruleysi. Sonur minn hafði orð á því að hann hefði verið einn fárra vina minna sem ævinlega sýndu væntumþykju sína með því að for- vitnast um hagi hans, þó hann segði sjaldnast fregnir af sjálfum sér. Við Steingrímur áttum ógleyman- legar stundir hin síðari ár. Auk þess sem við vinirnir og samstarfs- menn hittumst reglulega yfir borð- haldi, spiluðum við saman knatt- borðsleik okkur til skemmtunar. Þar reyndist hann lunkinn leikmað- ur, sem og í öðru, en nærvera hans var þó það sem skipti mestu máli: það fór enginn varhluta af hlýju hans og skopskyni. Við nánasta samstarfsfólkið hitt- umst síðast nokkru eftir að Stein- grímur greindist veikur. Enginn okkar efaðist um að honum myndi takast að sigrast á veikindum sín- um, því hann hafði alla tíð sýnt mikla þrautseigju gagnvart öllum þeim vandamálum sem í gegnum tíðina höfðu steðjað að honum. Þótt við höfum vitað í nokkurn tíma að hverju stefndi var lát hans því áfall fyrir okkur. Ég votta aðstandendum samúð mína, sérstaklega sonum hans Sindra og Sigurði. Ég votta einnig samúð mína systur hans, Systu, sem annaðist bróður sinn af ein- stakri alúð, en hún sér nú á eftir öðrum bróður sínum á stuttum tíma. Íslensk kvikmyndagerð hefur misst mikið með fráfalli Steingríms, en þar er farinn einn af frumkvöðl- um hljóðvinnslu á íslenskum kvik- myndum. Hans verður sárt saknað. Friðrik Þór Friðriksson. Ég hitti Steingrím fyrst snemma árs 1990. Þá kom hann á Júpíter- sæfingu í hvítri lopapeysu, með hár- ið greitt aftur, sígarettu í munnvik- inu og gítarinn í eftirdragi. Og svo kreisti hann úr hljóðfærinu ein- hvern ólýsanlegan töffaraskap svo maður varð ekki samur á eftir. Með glettnisglampa í augum. Ég hitti Steingrím í síðasta sinn þremur dögum áður en hann dó. Þá var hann í hvítum spítalanáttfötum, með hárið úfið, nál í handleggnum, dálítið sveittur og máttfarinn. En með glettnisglampa í augum. Innrömmuð af þessum tveimur augnablikum er tveggja áratuga ómetanleg vinátta við þennan dásamlega mann sem átti engan sinn líka. Vinátta sem einkenndist af tónlist, húmor og væntumþykju. Og takmarkalausu bulli. Áður en við kvöddumst í hinsta sinn spangóluðum við saman gaml- an Hank Williams-slagara. Við komumst reyndar aldrei í gegnum síðasta erindið sem endar svona: I’m so lonesome I could cry. Ég kveð Steingrím ljúflingstöff- ara með sárum söknuði og djúpu þakklæti og votta fjölskyldu hans mína innilegustu samúð. Eiríkur Stephensen. Minningarnar eru óteljandi, ynd- islegar, hafnar yfir tíma og rúm. Keldur: systkinin þrjú og leitandi vinir, Nino Rota í Bang & Olufsen græjunum, leðursófar, te og tóbaks- reykur. … MS: kaffistofan, hlátur, meira kaffi, reykherbergið. Sak- leysið er ekta, lífið óendanlegt. … Vesturbrún: gítarar, penslar, flat- sæng og fílósófía. L’oiseau de feu Stravinskys rammar inn augnablik. … Sunnubraut: kímt yfir kveðskap úr Hvalfjarðarsveit, ferskasta tón- listin og örlítið Bènèdictine með kaffinu. … Laugalækur: skróp, One Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson Við kveðjum þig, kæri vinur, og þökkum ljúfar sam- verustundir. Af fegurð blóms verður aldrei sagt aldrei sagt með orðum né þinni með neinum orðum (Stefán Hörður Grímsson.) Sonum Steingríms, öðrum aðstandendum og vinum vottum við okkar innilegustu samúð. Vala og Fahad. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.