Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 35

Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009 um varð hann áberandi, stjórnaði hinum sívinsælu „Lögum unga fólks- ins“ í útvarpinu, þá töffari með brillj- antín og hárið greitt í „píku“ og kenndi Nínu systur sinni að tjútta í forstofunni heima. Bergur var ástríðufullur íþrótta- áhugamaður allt til enda, lék bæði í handbolta og fótbolta og var í fremstu röð í báðum greinum. Hann var einn af meðlimum „Mulningsvél- arinnar“ ógurlegu, en það var sig- ursælt handboltalið Valsmanna sem andstæðingar glúpnuðu fyrir enda var þar valinn berserkur í hverri stöðu og var ávallt barist til sigurs og blóð andstæðinganna drukkið eft- ir leiki, en þannig mátti skilja lýs- ingar gráhærðra berserkjanna þeg- ar árin liðu. Með þessum vinum sínum átti Bergur sínar bestu stund- ir og lék golf með þeim í mörg ár. Hann tók virkan þátt í félagsstörf- um í sínu ástkæra íþróttafélagi og var ávallt fyrst og fremst Valsari. Bergur var borgarbarn og fór helst ekki úr lakkskónum og fínu föt- unum. Það var kómískt að sjá hann á blankskóm uppi í sveit eða í hríð- arbyl í snjóskafli í bænum að bisa við bílinn í þeim fatnaði. Bergur var bóngóður maður og mátti ekkert aumt sjá. Að fyrra bragði rétti hann mörgum hjálpar- hönd sem á þurftu að halda og leysti vandamál þeirra, hvort sem þar átti í hlut náinn ættingi eða annar. Bergur átti barnaláni að fagna, en hann og Hjördís eignuðust 4 mann- vænleg börn og 5 barnabörn. Fyrir átti Bergur son. Árið 2007 greindist Bergur með krabbamein, sem menn töldu sig hafa komist fyrir með skurðaðgerð. Þetta mein tók sig upp aftur síðast- liðið sumar og dró Berg til dauða með krappri atlögu á síðustu vikum. Nú að leiðarlokum vil ég þakka Begga, kærum mági mínum og vini, samferðina og ánægjulegar sam- verustundir með þeim Hjöddu og fjölskyldunni. Ég mun sakna þess að eiga ekki eftir að fíflast aftur með honum yfir glasi af góðu viskíi og kóki, en það var sú görótta blanda sem við tveir nutum að fá okkur saman. Hjöddu, börnum þeirra, barna- börnum og öðrum ástvinum votta ég mína dýpstu samúð og bið þeim Guðs blessunar. Sveinn Snæland (Nenni). Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val Valsmaðurinn Bergur Guðnason, lögmaður, er látinn eftir stutta bar- áttu við illvígan sjúkdóm. Bergur gekk ungur til liðs við Knattpyrnu- félagið Val og lék knattspyrnu og handknattleik með félaginu allt upp í meistaraflokk í báðum greinum. Þegar þar var komið valdi hann handknattleikinn og lék hann með íslenska landsliðinu í handknattleik. Bergur var ein kjölfestan í hinni frægu Mulningsvél sem varð til í meistaraflokki Vals í handknattleik á áttunda áratugnum. Bergur varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari og einnig bikarmeistari með Val á þess- um árum. Mulningsvélin er gott dæmi um hina einstöku vináttu sem endurtekið hefur myndast innan keppnisflokka Vals, en Mulningsvél- arhópurinn hefur haldið vel saman alla tíð síðan og verið einn margra félagslegra bakhjarla Knattspyrnu- félagsins Vals. Bergur var afar farsæll leiðtogi og leiddi hann Knattspyrnufélagið Val sem formaður á árunum 1977-1981. Eftir það átti hann sæti í stjórn Handknattleikssambands Íslands og átti auk þess lengi sæti í Íþrótta- dómstóli Íþróttasambands Íslands. Bergur var víðsýnn og jákvæður maður með góðan húmor og átti vini í öllum íþróttafélögum. Bergur var sæmdur Valsorðunni vegna frábærra starfa sinna fyrir Knattspyrnufélagið Val auk heiðurs- merkja HSÍ og ÍSÍ. Bergur stóð ekki einn þegar að stuðningi og þátttöku í félagsstarfi Vals kom. Öll fjölskyldan stóð ein- huga með honum. Allir strákarnir; Guðni, Böðvar og Bergur hafa leikið fjölda leikja með félaginu auk þess að vera því ávallt tryggir og hjálp- fúsir. Elín, eiginkona Guðna, sat einnig í aðalstjórn Vals í nokkur ár. Bergs verður nú sárt saknað af fjöl- skyldunni og stórum vinahópi í Val. Knattspyrnufélagið Valur þakkar Bergi af miklum hlýhug fyrir allt hans ómetanlega starf fyrir félagið og sendir Hjördísi og fjölskyldu inni- legar samúðarkveðjur. Góður Vals- maður er genginn langt um aldur fram. Hörður Gunnarsson, formaður. Okkar góði vinur og félagi Bergur Guðnason er fallinn í valinn langt um aldur fram. Þessi skarpgreindi, snaggaralegi, lífsglaði og skemmtilegi félagi varð að lúta í lægra haldi fyrir illvígu meini á skömmum tíma. Við það varð ekki ráðið. Leiknum er lokið. Bergur var sannur Valsmaður alla tíð og um tíma var hann formaður Vals. Mikill íþróttamaður, sem lagði stund bæði á knattspyrnu og hand- knattleik með sínu félagi. Bergur var hluti hins annálaða liðs Vals, sem hlaut viðurnefnið Mulningsvélin á sínum velmektarárum. Þar var hann sannarlega betri en enginn og oftast í byrjunarliði, skytta mikil og leið- togi. Þegar leikferli liðsmanna Muln- ingsvélarinnar lauk átti Bergur hvað stærstan þátt í formlegri stofnun hinnar eiginlegu Mulningsvélar. Markmið þess félagsskapar var að halda hópnum saman um ókomin ár, til að tengsl milli manna brystu síður eftir að keppnisferli lauk. Þar var mikil framsýni á ferð. Þessi kjarni hefur staðið saman síðan, í gegnum þykkt og þunnt eða í 30 ár. Reglu- lega hittumst við félagarnir, tökum stöðuna, ræðum málin. Svo ekki sé minnst á golfið, sem nú orðið á huga okkar flestra. þar eins og annars staðar fór Bergur fremstur í flokki. Hann var orðinn golfáhugamaður löngu áður en við hinir vissum hvað golfkylfa var. Hann var óþreytandi og ötull í að hvetja okkur til dáða í þeirri íþrótt fyrstu árin. Bergur bjó að miklu barnaláni með eiginkonu sinni Hjördísi. Hann var ávallt afar stoltur af börnum sínum. Umvafði fjölskyldu sína ástúð og umhyggju. Afabörnin voru honum einkar kær. Okkur er afar sárt að sjá á bak okkar kæra vini , Bergi Guðnasyni, svo langt um aldur fram. Hann er annar tveggja úr okkar hópi, sem kvatt hafa svo alltof snemma. Skarð er fyrir skildi, skörungur falinn í val- inn. Hans verður sárt saknað en ávallt minnst sem ljúflings og hróks alls fagnaðar á góðum stundum. Megi góður Guð styrkja Hjördísi, börnin hans, barnabörn og ættingja í sorg þeirra. Hvíl í friði. F.h. Mulningsvélarinnar, Jón H. Karlsson. Það er ekki auðvelt að setja á blað nokkur orð í minningu góðs vinar, Bergs Guðnasonar lögmanns, nú þegar hann hefur lokið lífshlaupi sínu, langt fyrir aldur fram. Hvar á byrja og hvar á að enda? Hvað skal nefnt og hverju sleppt? Bergur var „nestor“, aldursforseti, leiðtogi og foringi í hópi nokkurra Valsmanna á miðjum aldri sem hafa í áratugi hist í hádeginu á virkum dögum og borðað saman um leið og krufin eru til mergjar málefni dagsins í íþróttum, pólitík og lífinu almennt, án ábyrgð- ar og oftast án mikillar alvöru. Í FÍGP eru sumir jafnari en aðrir og var Bergur óneitanlega jafnastur. Þeir fóstrar, Beggi og Hemmi, voru oft eins og gömlu kallarnir í Prúðu- leikurunum sem sátu á svölunum og krítiseruðu allt og alla, að sjálfsögðu með glampa í augum og undirliggj- andi glott. Bergur Guðnason var ein- stakur maður. Það voru forréttindi að eiga hann að vini og njóta hans skarpskyggni og hárbeitta húmors, í návígi og nánast daglega síðan 1962. Ótrúlegt en satt. Það eru 47 ár, heill starfsaldur, síðan Bergur og fleiri hressir húmoristar hófu að leggja leið sína í hádeginu á Café Tröð í Austurstræti. Þegar heiðurshjónin Kristel og Guðmundur hættu starf- semi á Tröðinni sýndu þau hug sinn til hópsins með því að gefa honum hringborð það sem hann hafði setið við í fjölda ára. Fljótlega var okkur boðin mjög góð aðstaða á Torfunni, nú Humarhúsinu og höfum við verið þar síðan. Ég á Bergi mikið að þakka. Hann reyndist mér ákaflega vel alla tíð, var bóngóður, hjálpsam- ur og ráðagóður, allt frá því að hann skrifaði upp á fyrstu víxla ungs manns sem var að hefja lífsbarátt- una. Bergur er einn eftirminnileg- asti maður sem ég hef kynnst um dagana, skarpgreindur, vel máli far- inn, orðheppinn og óhemju skemmti- legur. Það var erfitt að fylgjast með vini okkar og baráttu hans, eftir að hann greindist með skelfilegan sjúkdóm sem engu og engum eirir. En Beggi fékk lausnina fljótt, alltof fljótt segj- um við í eigingirni okkar, við sem vildum hafa foringjann með okkur lengur. Hver á nú að hneykslast á af- rekssögum fjölhæfasta íþrótta- manns hópsins þegar hann fer yfir strikið (les: opnar munninn)? Hver á nú að sýna leikhæfileika á heims- mælikvarða þegar krydda þarf gam- ansögu svo eftir sé tekið? Og hver á nú að halda Stöðumælasjóði á floti? Fólki finnst kannski ekki við hæfi að gantast í minningargrein, en Bergur hefði ekki viljað annað. Síðustu orð Begga til tveggja úr hópnum, daginn áður en hann dó, staðfesta það: „Strákar. Veriði léttir.“ Missir okkar félaganna er mikill, en mestur er missirinn fyrir Hjördísi og börn þeirra, Guðna, Siggu, Bödda og Berg, sem og Þorstein, tengda- börnin og barnabörnin. Hugur okkar er hjá þeim og við biðjum þeim Guðs blessunar. Minningin um einstakan mann og góðan vin mun lifa á meðal okkar félaganna, en skarð það sem hann skilur eftir sig í okkar hópi verður aldrei fyllt. Við minnumst Bergs Guðnasonar með söknuði og virðingu og sendum innilegustu samúðarkveðjur til Hjördísar og fjölskyldunnar allrar og biðjum Guð að styrkja þau í sorginni. Fyrir hönd FÍGP (Humarhúsinu/ Torfunni), Baldvin J., Garðar K., Gunnar K., Halldór E., Hermann G., Jón H., Karl Harry, Pétur G., Vilhjálmur K., Þorsteinn S. og Hörður Hilmarsson. Fallinn er frá góður félagi og vin- ur, langt um aldur fram, sá með ljá- inn hefur lokið sér af, veikindi herj- uðu á, og eins og oft vill verða, þá tapar maðurinn þeim leik að lokum. Vil ég fá að skrif nokkur orð um þann mann sem kynnti fyrir mér og fleirum golfíþróttina og hvernig ber að haga sér í þeim leik. Upp úr 1970 var Bergur sá eini í mjög stórum hóp vina og kunningja sem lék þennan góða leik, oft reyndi hann að draga okkur félagana upp í Grafarholt, en flestir okkar litu á þennan leik sem eldri manna íþrótt og fyrir fólk sem væri ekki alveg í lagi, en með lagni tókst Bergi að koma okkur af stað og síðan hefur ekki orðið aftur snúið. Kemur upp í hugann eitt atriði úr fjölmörgum golfferðum sem við Mulningsvélar- menn fórum til Englands og Skot- lands, þar var Bergur rekinn upp í golfbúð af teig, því sokkarnir hans reyndust vera of lágir, en hann var annálað snyrtimenni. Við hinir flest- ir í æfingargöllum og ekki beint golf- legir. Þar var ræsir sem virtist vilja ná Bergi aðeins niður, tókst það með afbrigðum vel og sló hann síðan fyrsta höggið, sem að sjálfsögðu reyndist vera vindhögg, því maður- inn var búinn að senda þann gamla fram og til baka, til að rugla hann í ríminu. Eða þegar hann var staddur á góðum skoskum bar og bað um skoskt viskí, ekkert mál sagði þjónn- inn, 12 ára gamalt, fékk það í gott glas, bað síðan um klaka, þá svona aðeins lækkaði þjóninn augabrýrn- ar, tautaði eitthvað, en þegar Bergur bað um kók út í glasið, þá var honum öllu lokið, skellti flösku á barborðið og sagði með þjósti, þú hellir því sjálfur. Bergur var frumkvöðull að árlegri golfkeppni á milli Valsara og Fram- ara, verður hans sárt saknað af öll- um þeim stóra hóp vina og félaga sem hefur myndast í gegnum árin vegna þessarar golfkeppni, vonandi verður framhald á því, þótt foringinn sé fallinn frá. Vil ég fá að þakka SJÁ SÍÐU 36 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRMUNDUR ÞÓRMUNDSSON, Fossvegi 10, Selfossi, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands miðvikudaginn 4. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 14. nóvember kl. 13.30. Unnur Jónsdóttir, Vilborg Þórmundsdóttir, Benedikt Benediktsson, Margrét Þórmundsdóttir, Sveinn Guðmundsson, Þórunn Þórmundsdóttir, Gísli Steindórsson, Jóhann Þórmundsson, Sigríður Möller, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku hjartans dóttur okkar, systur og barnabarns, GUÐRÚNAR HEBU ANDRÉSDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Andrés Sigmundsson, Þuríður Freysdóttir, Sigmundur Andrésson, Azadeh Masoumi, Sigurjón Andrésson, Margrét Sara Guðjónsdóttir, Agnes Sif Andrésdóttir, Ágúst Örn Gíslason, Sigmundur Andrésson, Dóra Hanna Magnúsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Borgarholti, Ásahreppi. Sigríður Kristinsdóttir Dittli, Oskar Dittli, Jón R. Kristinsson, Kristrún R. Benediktsdóttir, Sigurður Árni Kristinsson, Guðjón Kristinsson, Elke Osterkamp, Vilbergur Kristinsson, Jóhanna A. Gunnarsdóttir og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður og ömmu, JÓHÖNNU HERDÍSAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR frá Vestmannaeyjum, Borgarholtsbraut 20, Kópavogi. Ríkharður H. Friðriksson, Jóhanna Vigdís Ríkharðsdóttir, Kristín Helga Ríkharðsdóttir. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, DÓRÓTHEA FRIÐRIKSDÓTTIR, Hlévangi, áður til heimilis Sóltúni 6, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi þriðjudaginn 10. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Dóróthea Jónsdóttir, Pétur R. Hauksson, Agnes M. Pétursdóttir, Vilhjálmur J. Lárusson, Edith Þ. Pétursdóttir, Helgi Þ. Guðmundsson, Páll Árni Pétursson, Leeann M. May, Charles Hopkins, Rebecca Hopkins, Pall Ray Hopkins, Samantha Hopkins og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.