Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 48
48 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Birgir Daníel Birgisson, skipu-
leggjandi tónleika sem Ian And-
erson hélt með hljómsveit sinni
Jethro Tull í september sl. afhenti í
fyrradag forstöðumanni Vild-
arbarna, helming ágóðans af þeim,
800.000 krónur. Fjölskylduhjálp Ís-
lands fær hinn helming ágóðans.
Jákvæð frétt í kreppufréttaflóðinu.
Vildarbörn fengu 800
þúsund af ágóðanum
Fólk
LEIKARINN Guðmundur Ingi Þorvaldsson er
býsna upptekinn í Lundúnum um þessar mundir,
frumkynnti í gær nýtt verk í vinnslu í Shunt leik-
húsinu þar í borg en verkið er eftir Miacha
Twichin og fjallar um samskipti André Breton,
skálds og stofnanda súrrealistahreyfingarinnar,
og franska skáldsins Antonin Artaud. Verkið
heitir Interjections og flytja þeir Guðmundur og
Twichin verkið saman.
Guðmundur Ingi lauk MA-gjörninganámi við
Goldsmiths listaháskólann í haust en útskrifast í
desember n.k. Hann er kominn með breskan um-
boðsmann og farinn að vinna á fullu í tilrauna-
kenndu leikhúsi. Guðmundur hefur m.a. verið að
sýna verk eftir sig og sviðslistahópinn Made in
China í Shunt-leikhúsinu sem er dansgjörningur
og heitir Presentation of How Things Are. Í hon-
um slæst kærustupar fimm lotur, í gegnum fimm
stig sorgarferlis, eins og því er lýst en þau eru
afneitun, reiði, sáttaumleitanir, þunglyndi og
sátt. Made in China hefur einnig þegið boð frá
National Theatre Studios, tilraunaarmi breska
þjóðleikhússins, um að vinna verk fyrir það í jan-
úar á næsta ári. „Það þykir svolítið merkilegt að
komast þangað inn,“ segir Guðmundur. Verkið
heitir Myrrah og er unnið upp úr þýðingu Ed-
wards James Hughes á einu þekktasta verki
bókmenntasögunnar, Umbreytingum eftir róm-
verska skáldið Óvíd. Þá er ekki allt upp talið því
Guðmundur Ingi er einnig í hópi sem kallar sig 8
en hann vinnur að gjörningum út frá tilvistar- og
tilverufræði. Hópurinn er með innsetningu í
bænum Poole í nóvember en hann byggir á út-
færslum á japanskri tehefð. helgisnaer@mbl.is
Guðmundur með mörg járn í eldinum
Morgunblaðið/Valdís Thor
Guðmundur Ingi Hefur nóg að gera á Englandi.
Í kvöld kemur út fyrsta breið-
skífa hljómsveitarinnar Me, The
Slumbering Napoleon og ber hún
nafnið The Bloody Core Of It. Með-
limir hljómsveitarinnar eru þeir
Brynjar Helgason, Brynjólfur Gauti
Jónsson og Rúnar Örn Marinósson.
Platan er sögð óður til jaðarrokks
tíunda áratugarins.
The Bloody Core Of It var tekin
upp á einni helgi og hljómjöfnuð af
John Golden í Kaliforníu, en sá hef-
ur átt við plötur Sonic Youth m.a.
Kimi Records gefur plötuna út.
Hljómsveitin mun fagna útgáfunni í
plötubúðinni Havaríi í Austurstræti
í dag kl. 17.
Me, The Slumbering
Napoleon fagnar plötu
Slóvenska teknóstjarnan Umek
hefur skinið skært í teknóheimum
undanfarin ár og það er við hæfi að
hann sjái um stuðið á árshátíð
techno.is sem fram fer á morgun á
NASA. Að sögn Adda Exos, tals-
manns techno.is, hefur innanbúðar-
menn þar dreymt um að fá snúðinn
til landsins í yfir fjögur ár og því
Jörfagleði mikil á þeim bænum.
Árshátíð techno.is
á NASA á morgun
Getur þú lýst þér í fimm orðum? Nei, en Óli Hjörtur er hérna við hliðina á
mér og ætlar að gera það: Rósa er ákveðin, vinur vina sinna, góður kokk-
ur, hress og 80’s-drottning Íslands.
Syngur þú brosandi? Já, mjög mikið og er stutt í hlátur hjá mér.
Ætlar þú að sjá myndina Desember eftir Hilmar Oddsson? (spyr síðasti
aðalsmaður, Tómas Lemarquis) Já, held ég skelli mér á hana.
Hvaða persónu myndirðu vilja hitta? Miles Davis eða Hrafn Gunn-
laugsson.
Hvernig myndir þú vilja deyja? Eðlilega og hamingjusöm.
Ertu jólabarn? Svona annað hvert ár og í ár verð ég rosa jólabarn.
Mexíkóskt eða indverskt? Alltaf hvorttveggja.
Hvor er betri; Feldberg eða Sometime? Hjálmar.
Ef þú værir trélitur, hvernig værirðu á litinn? Ég er alltaf rauður en ef ég
væri tré þá væri ég lerkitré.
Ferðu oft út á land? Stöku sinnum, mætti fara oftar.
Er allt að fara til fjandans? Nei, þetta er allt saman hringrás, vonandi
lærum við eitthvað af þessu öllu saman.
Hversu mikill snillingur er útlitsgúrúinn Karl Berndsen á skalanum 1-10?
Kalli er frábær og sprengir skalann.
Hvaða sjónvarpsþátt frá níunda áratugnum á að endursýna? Who’s the
Boss með Tony Danza og Jem and the Holograms.
Uppáhaldskvikmynd? Held það sé val milli Immortal Beloved og Dirty
Dancing.
Hvað færðu ekki staðist? Eins og er er það sígarettan ef ég fæ
mér vínglas annars … hmmm … ísinn í vesturbænum.
Uppáhaldsprúðuleikari?
Animal!
Býrðu yfir leyndum hæfileika? Mjög leynilegum.
Ef þú ættir að taka þér grípandi listamannsnafn, eins og t.d.
Lady Gaga, hvert væri það? Diva de la rosa.
Hvernig gengur í ræktinni? Hvar er það?
Hefur þú gengið upp á Feldberg? Við Einar erum búin að
hanna fána og þurfum að drífa okkur með hann upp á topp-
inn.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvort myndir þú vilja
aka um á hestvagni eða Hummer?
BÝR YFIR MJÖG LEYNILEGUM HÆFILEIKA
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER RÓSA BIRGITTA ÍSFELD, SÖNGKONA FELDBERG OG SOMETIME. FELDBERG SENDI NÝVERIÐ
FRÁ SÉR PLÖTUNA DON’T BE A STRANGER OG HELDUR ÚTGÁFUTÓNLEIKA Í ÞJÓÐLEIKHÚSKJALLARANUM 18. NÓVEMBER.
Rósa Birgitta Ísfeld Hún er ákveðin, vin-
ur vina sinna, góður kokkur, hress og 80’s-
drottning Íslands, að sögn Óla Hjartar.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
DÚETTINN BB & Blake hefur lítið
látið á sér kræla undanfarið sem
skýrist af því að hann hefur verið
upptekinn við upptökur, enda kem-
ur fyrsta breiðskífa hans út á morg-
un, og þá verður líka fagnað á Só-
dómu.
Vera Sölvadóttir er helmingur
BB & Blake, en Magnús Jónsson er
hinn helmingurinn. Þau koma út
ólíkum áttum, en eru þó á svipuðum
slóðum, hún er menntaður kvik-
myndagerðarmaður, en hann leik-
ari. Það má þó segja að það hafi ver-
ið músíkin sem færði þau saman því
Magnús tók að sér að semja tónlist
fyrir kvikmynd sem Vera var með í
smíðum og fékk hana til að syngja
eitt lag. „Það var því eiginlega fyrir
slysni sem ég fór út í músíkina, ég
vissi ekki einu sinni að ég kynni að
syngja, ef ég kann það, það er að
segja,“ segir hún og hlær við.
Ætluðum að gera poppplötu
Þetta var fyrir þremur árum og
smám saman varð meira úr sam-
starfinu, þau hittust reglulega og
tóku upp grunna og síðan lög og
skyndilega var kominn efniviður í
plötu og þær frekar tvær en eina.
En hvernig plata? er spurt: „Það er
pínu erfitt að útskýra það. Við ætl-
uðum að gera poppplötu, en
ákváðum síðan að leyfa okkur að
fara út fyrir stílinn og úr varð sam-
suða úr poppi, triphop, diskó og
dansmúsík og fleiri stefnum. Þetta
breyttist líka hjá okkur eftir því
sem tíminn leið og það má segja að
við höfum gengið í gegnum mörg
tímabil á þessum þremur árum.“
Þau Vera og Magnús, BB &
Blake, voru iðin við spilamennsku
fram til Airwaves 2008, en eftir það
tóku þau sér frí til að ljúka við skíf-
una. Tónleikarnir á laugardag verða
því það fyrsta sem heyrist frá þeim í
nokkurn tíma og af því tilefni verð-
ur meira við haft og ýmsir gestir
láta ljós sitt skína, þar á meðal
Ingvar E. Sigurðsson, Barði Jó-
hannsson, Árni Kristjáns, Jara,
Unnur Birna Björnsdóttir og Hekla
Magnúsardóttir. Vera er spennt
fyrir spiliríinu, finnst gaman
að vera komin aftur af stað
eftir þetta hlé, en svo sé
líka gaman að því að vera
að vinna með svo
mörgum, í
raun sé það
eins og að tvíeyk-
ið hafi breyst í
hljómsveit og þá
lifni allt við. „Það
er líka frábært að
platan sé að
koma út,“ segir
hún, „og þó að
það sé kannski
ósmekkleg
myndlíking þá
finnst mér
eins og ég
hafi verið að
kreista kýli.
Það er ekki
gott að segja það í blaði en mér líð-
ur eiginlega þannig, það er gott að
þetta er að koma.“
Ég er „eitískrakki“
Diskurinn er tilbúinn en þau hafa
verið að bíða eftir prentun á um-
slaginu, sem klárast í dag þann- ig
að hann verður til sölu á
staðnum. Einnig geta
menn keypt
músíkina á til-
boðsverði hjá
Gogoyoko
fram í næstu
viku.
Magnús
Jónsson hef-
ur verið í músík lengi, lét fyrst í sér
heyra í nýbylgjupönki og hefur víða
komið við sögu síðan. Vera segist
aftur á móti vera „eitískrakki“: „Ég
fíla eitísmúsík og kem líka með
franska strauma inn í samstarfið og
kaffihúsapopp.“
Eins og Vera segir slysaðist hún
inn í músíkina, en hún segir
að sjálf upptökuvinnan sé í
raun ekki svo frábrugðin
því að setja saman
kvikmynd, en
hana hafi þó aldr-
ei grunað að hún
ætti eftir að
hasla sér völ
sem tónlist-
armaður.
Tónleikar
BB & Blake
verða semsé á
Sódómu á laug-
ardagskvöld og
verður frítt inn á
þá.
Vera, Maggi og BB & Blake
Í HNOTSKURN
» Vera Sölvadóttir stundaðinám í kvikmyndagerð í
Frakklandi. Í fyrra var hún
valin „Bjartasta von Skandin-
avíu“ fyrir stuttmyndina
Monsieur Hyde.
» Magnús Jónsson lauk leik-listarnámi 1991 og hefur
leikið í fjölda kvikmynda og
eins verið í fjölmörgum
hljómsveitum, til að
mynda Gus Gus og Silf-
urtónum. Samhent Vera Sölvadóttir og
Magnús Jónsson eru BB & Blake.