Morgunblaðið - 13.11.2009, Qupperneq 50
Tónlistarbransinn er ísmeygi-leg og yfirborðskennd pen-ingahít, langur gangur úr
plasti þar sem þjófar og melludólg-
ar fara um rænandi og ruplandi á
meðan góðum mönnum er slátrað
eins og hundum. Neikvæðar hliðar
eru þar einnig.“
-Hunter S. Thompson.
Yðar einlægur
komst loksins í
að lesa skáld-
söguna Kill
Your Friends
eftir Bretann
John Niven, bók
sem vakti tals-
vert umtal á síð-
asta ári og þessu
reyndar líka og
hefur verið líkt við hina kröftugu
Trainspotting hvað stíl og áferð
varðar. Niven þessi starfaði í tíu ár
í breska músíkbransanum sem svo-
kallaður „A&R“-maður en þeir
hafa það hlutverk að snuðra uppi
nýtt hæfileikafólk fyrir útgáfufyr-
irtæki og virkja það til samnings-
gerðar. Í raun nokkurs konar gull-
grafarar sem er ætlað að koma
auga (og eyrum) á mögulega
smelli.
Söguhetjan er 27 ára gömul (áþeim aldri er rokkstjörnur
snúa jafnan tám upp í loft) og heit-
ir hinu beitta en um leið slepjulega
nafni Steven Stelfox. Niven gerir
upp tíma sinn í téðum bransa í
gegnum þessa ýktu mynd af sjálf-
um sér og er bókin algerlega
óborganleg – sérstaklega fyrir þá
sem hafa einhverja reynslu af þess-
um bransa. Því að margt af því sem
virðist harla ótrúlegt í sögunni er
eiginlega nokkuð rétt mynd af því
sem þar viðgengst. Stelfox er
keyrður áfram af kókaíni og kyn-
lífi og hann – eins og allir hans fé-
lagar – hefur ekki minnstu ástríðu
fyrir tónlist. Allt snýst um völd,
pólitík og peninga. Textinn er
harðsoðinn og hvass, drepfyndinn
á köflum og kynlífslýsingar eru tíð-
ar og nánast óþægilega nákvæmar.
Stelfox er illur inn að beini en það
er helst að Niven fatist flugið þeg-
ar nokkurs konar American Psyco-
vinkill er settur í framvinduna.
Stelfox tekur upp á því að drepa
samstarfsmenn sína og sá þáttur
gengur illa upp og er of óraun-
verulegur í samanburði við annað.
Hin ágæta sveit Modest Mousekom eitt sinn hingað til lands
og hélt tónleika á Gauknum. Allan
tímann á meðan sveitin var á sviði
var ég baksviðs að drekka frían
bjór. Ég skammast mín enn þann
dag í dag fyrir þessa forgangs-
röðun. Samkvæmt Niven er svona
hugsunarháttur regla fremur en
undantekning í Bretlandi. Mér
varð líka óhjákvæmilega hugsað til
bransans hér heima á meðan ég
var að lesa en hann er eins og sól-
ríkur göngutúr í gegnum Múm-
índal í samanburðinum. Samfélag
nálægðarinnar hefur sína kosti.
Rotnasti bransi í heimi?
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Stelfox er keyrðuráfram af kókaíni og
kynlífi og hann – eins og
allir hans félagar – hef-
ur ekki minnstu ástríðu
fyrir tónlist.
Sálarsala? Sex Pistols skrifa undir samning við A&M árið 1977. Með þeim er umboðsmaðurinn Malcolm McLaren.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
2012 kl. 8 - 11 (kraftsýning) B.i.10 ára
This is It kl. 5:45 - 10 LEYFÐ
Jóhannes kl. 5:45 - 8 LEYFÐ
2012 kl. 6 - 9:15 B.i.10 ára
Paranormal Activity kl. 6 - 8 -10 B.i.16 ára
Zombieland kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Broken Embraces kl. 5:20 B.i.12 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára
2012 kl. 5:45 - 9 B.i.10 ára
Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára
Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM
YFIR 27.000
MANNS!
Sýningum fer
fækkandi
ÁÐUR ÓSÉÐ MYNDEFNI SEM
HEIMURINN HEFUR BEÐIÐ EFTIR
SÝND ÚT NÓVEMBER
SÖKUM VINSÆLDA!
HHH
-E.E., DV
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
„2012 er Hollywood-
rússíbani eins og þeir
gerast skemmtilegastir!
Orð frá því ekki lýst
hvað stórslysasenurnar
eru öflugar.”
T.V. - Kvikmyndir.is
VJV - FBL
FRÁ LEIKSTJÓRA INDEPENDENCE DAY OG THE DAY AFTER TOMORROW
HEIMSFRUMSÝNING
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
SUMIR DAGAR...
31.000
MANNS!
EIN VINSÆLASTA MYND ÁRSINS!
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó