Morgunblaðið - 13.11.2009, Side 56
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
124,44
206,02
118,48
24,984
22,186
18,164
123,07
1,3852
198,91
185,94
Gengisskráning 12. nóvember 2009
124,74
206,52
118,83
25,057
22,251
18,217
123,41
1,3893
199,5
186,46
239,4598
MiðKaup Sala
125,04
207,02
119,18
25,13
22,316
18,27
123,75
1,3934
200,09
186,98
Heitast 8°C | Kaldast 1°C
Rigning eða súld
með köflum á austan-
verðu landinu og sums
staðar á annesjum
norðan til, annars þurrt. »10
Hinn hægláti hljóð-
heimur Huldar verð-
ur heldur einsleitur
þegar á líður, og
mýktin heldur mikil,
segir í dómi. »49
TÓNLIST»
Hæglátur
hljóðheimur
TÓNLIST»
BB&Blake gefa út plötu
og fagna. »48
Einar Falur bjóst
við dýpra verki frá
Huldari Breiðfjörð,
t.d. hvað varðar
samband Íslendinga
og Færeyinga. »52
BÆKUR»
Íslendingur
í Færeyjum
KVIKMYNDIR»
Heimsendaspár tröllríða
bíóhúsunum. »53
ÍSLENSKUR AÐALL»
Rósa Birgitta Ísfeld er
rosa jólabarn í ár. »48
Menning
VEÐUR»
1. Þorbjörg Guðrún Pálsdóttir látin
2. Valdur að banaslysi
3. Skoraði eftir 2 sekúndur
4. Hæstiréttur ógildir erfðaskrár
Íslenska krónan veiktist um 0,3%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Í dag er 13. dag-
ur mánaðar sem
ber upp á föstudag,
en þegar slíkt
hendir er margra
trú að slíkt beri
ógæfuna með sér.
Lögreglan hefur
þó engar áhyggjur. „13 var fyrsta
númerið mitt í lögreglunni og föstu-
dagarnir hafa alltaf verið góðir í
mínu lífi,“ segir Geir Jón Þór-
isson, yfirlögregluþjónn lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. „Það
er frekar að fullt tungl hafi áhrif til
hins verra, því þá er oft meiri spenna
í fólki sem skapar annríki hjá lög-
reglunni.“
HJÁTRÚ
Hefur engar áhyggjur af
föstudeginum þrettánda
Fréttir af Hjalta-
lín eru farnar að
birtast nærfellt
upp á hvern ein-
asta dag í þessu
blaði. Er það vel.
Sigríður
Thorlacius og fé-
lagar eru byrjuð að hita upp fyrir
komandi útgáfutónleika og lék hún í
fyrradag fyrir 500 manns í Lang-
holtskirkju ásamt kammersveit. Var
það ónefndur viðskiptamaður sem
hélt tónleikana fyrir vini sína og
vandamenn og stóð straum af öllum
kostnaði. Kreppa hvað!?
TÓNLIST
Hjaltalín fyllti Langholts-
kirkju á lokuðum tónleikum
Færeyska
drottningin Eivör
Pálsdóttir lendir
á klakanum í dag
og mun taka upp
strengjahljóma
fyrir næstu plötu
sína. Hún flýgur
svo aftur heim á morgun. Eivör mun
dvelja hérna lengur í desember þeg-
ar hún syngur á þrennum jóla-
tónleikum í Langholtskirkju og von-
ir standa til þess að hún komist á
sólótónleika einnig. Tónleikaplata
með söngkonunni er nýkomin út og
verður rætt ítarlega við hana um líf-
ið og listina í blaðinu á morgun.
TÓNLIST
Eivör gerir stuttan stans
á Íslandi og tekur upp
JAFNRÉTTISSKÓLI tekur til
starfa á Íslandi í næstu viku. Skól-
inn er fyrsta verkefni EDDU – önd-
vegisseturs, sem Irma Erlingsdóttir
stýrir, og stofnað var í ársbyrjun til
að sinna jafnréttis- og margbreyti-
leikarannsóknum. Skólinn verður
að líkindum Jafnréttisskóli Samein-
uðu þjóðanna, sniðinn eftir sömu
hugmynd og Jarðhitaskóli SÞ á Ís-
landi. Fyrstu nemarnir, frá Gaza og
Afganistan, koma til landsins í
næstu viku. | 47
Jafnréttisskóli
SÞ að hefja störf
„ÞAÐ kom mér á
óvart að sjá þau
ummæli Sindra
Þórs að hann
væri alvarlega að
velta því fyrir sér
að taka upp
norskt ríkis-
fang,“ segir
Hörður J. Odd-
fríðarson, for-
maður Sund-
sambandsins. Hörður ætlar að taka
upp mál Sindra við formann norska
sundsambandsins. Hann segir Norð-
menn ekki vinna í anda norrænnar
samvinnu með því að bera víurnar í
íslenska sundmenn. | Íþróttir
Ekki í anda nor-
rænnar samvinnu
Hörður J.
Oddfríðarson
BOÐIÐ var upp á jólahlaðborð í Kaffi Garði í
Húsasmiðjunni/Blómavali við Skútuvog í gær og
er hugmyndin að halda þessu áfram alla daga
næstu vikur. Magnús Magnússon, markaðsstjóri
Húsasmiðjunnar, segir tilganginn að auka á jóla-
stemninguna með ódýrum og góðum mat.
JÓLAHLAÐBORÐ Í HÚSASMIÐJUNNI/BLÓMAVALI
Morgunblaðið/Kristinn
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FIMMTÁNDI aðalvinningur Vík-
ingalottós féll í skaut Íslendings síð-
astliðinn miðvikudag og um leið
stærsti vinningur sem Íslendingur
hefur unnið í lottói hér á landi. Vinn-
ingshafinn lét í sér heyra í gær og er
um að ræða fjölskyldumann á höfuð-
borgarsvæðinu. Eftir tæpar fjórar
vikur fær hann rúmar 107 milljónir
króna í eingreiðslu – skattfrjálst. Líkt
og flestir vinningshafar í lottói kýs
hann að halda nafnleynd.
Líkt og alkunna er nær samstarf
um Víkingalottóið til Norður-
landanna og eru því allmargir um hit-
una hverju sinni. Það þykir því nokk-
uð gott að hafa náð til Íslands
fimmtán aðalvinningum á átján árum.
Síðasti stóri vinningurinn féll Íslend-
ingi í skaut í lok árs 2007 og var þá sá
hæsti sem greiddur hefur verið út hér
á landi. „Við stöndum vel og erum
með mjög jákvæða Víkingalottó-
vísitölu,“ segir Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri Íslenskrar get-
spár. Hann bætir við að þar sem Ís-
lendingar séu aðeins lítill hluti af
pottinum geti þeir enn frekar verið
sáttir við sitt.
Stefán segir aðsókn í miða Vík-
ingalottós stöðuga en líkt og í Ís-
lenska lottóinu eykst hún þegar stórir
vinningar falla. Því má búast við auk-
inni sölu miða á næstunni.
Þó að illa ári hér á landi og krónan
sé eins og hún er, þá er ekkert val um
gjaldmiðil. Íslensk getspá fær vinn-
ingsfjárhæðina og skiptir í bankanum
í íslenskar krónur. Þannig fæst einnig
dýrmætur gjaldeyrir inn í landið.
Fimmtán aðalvinn-
ingar til Íslendinga
„Erum með mjög
jákvæða Víkinga-
lottóvísitölu“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í HNOTSKURN
»Íslensk getspá tók ásamtNorðurlöndum þátt í
stofnun Víkingalottós sem hóf
göngu sína 1991.
» Í október 2007 vann Akur-eyringur 105 milljónir
króna í Víkingalottói.
»Vinningshafinn fær vinn-inginn eftir fjórar vikur en
á þeim tíma fær hann fjár-
málaráðgjöf hjá sérfræð-
ingum.