Skólablaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 12
132 -
EKKÍ (jIDJRSÍ
DJÖFLUn DRNS ,
Nenr DRUKKIÐ 5E
m
is hans, sem er uppi undir þaki.
Yakti það athygli mína, að víöa voru fest
á veggi spjöld, er báru áletranir eins
og : "You can brighten up this room. . . .
by just leaving it". "EXIT the same
way you came in and the sooner the
better".
Fyrir framan herbergi Hannesar var
forstofa, þar voru málaratrönur og á
þeim var hálfkláruS auglýsing um list-
kynningu. Fyrir ofan herbergisdyrnar
stoð letraö : "Þekktu sjálfan þig".
Herbergið sjálft var lítið en ákaflega
vistlegt. Fyrir öðrum enda þess var
bókaskápur, beint á móti honum var skáp-
ur fastur viö vegginn og nokkrar mál-
verkaeftirprentanir. Meðfram öðrum
veggnum var dívan og fyrir ofan höfða-
lagið var spjald
með áletruninni:
"Allt er hégómi
og eftirsókn
eftir vindi".
Meðfram hinum
veggnum var
skrifborð, fyrir
ofan það hengu
myndir.
Þarna inni var
fullt af smá-
hlutum eins og
hnífar frá Finn-
landi og Kamer-
un, vatnsberi
frá Síam, lítið
goðalíkneski frá
Perú, bókastoðir
frá Mexico,
kertastjaki frá
Indlandi, ölkrús
frá Þýzkalandi
og myndir frá
Persíu og
Japan.
Fyrir framan bókaskáp-
inn var klippt lambs -
gæra, en það sást varla
í hana, því að hún var
öll þakin bókum.
Alls staðar voru bækur, þar
sem hægt var að koma þeim
fyrir. Þar voru heimspekirit,
sálfræðirit, læknisfræðirit, dul-
spekirit, helgirit æðri trúarbragða, sið-
spekirit og bækur um dáleiðslu.
Skáldsögur, leikrit, íslendingasögur, þjóð-
sögur, sagnfræðirit, bókmenntasögur,
orðabækur, málsháttasöfn, Ijóðabækur,
hryllings sögur og síðast en ekki sízt
glæsilegar bækur um myndlist og tonlist.
Þar voru einnig fjölmörg tímarit, sem
fjölluðu flest um listir.
Á gólfinu voru tvö teppi, hvort ofan a
Varla er hægt að segja, að
listaáhugi og -þekking Menntlinga
sé upp á marga fiska, en
ýmsir menn hafa þó reynt
með misjöfnum árangri að
bæta þar um.
Er skemmst að minnast hins
góðkunna Hannesar Hávaröar-
sonar, sem verið hefur for-
seti hins nýstofnaða lista-
félags í vetur við góðan
orðstír. Sem kunnugt er,
hefur nokkuð verið deilt
á hann í vetur og fór ég
því heim til hans kvöld
eitt snemma í aprílmánuði
til að kynnast viðhorfum hans
og persónuleika.
Það var tekið að rökkva á
götum Reykjavíkur, þegar ég
barði á dyr Hannesar.
Sólskin og logn hafði verið um daginn,
en nú var nokkuð tekið að kula.
Hannes tók sjálfur á móti mér og bauð
mér inn. Hann var klæddur í ljósar
buxur með þröngum skálmum, prjónað
vesti og flókaskó.
í forstofunni voru stórar eftirprentanir
á verkum Picasso og Chagall.
Harmes gekk síðan á undan mér upp
þröngan stiga, sém þaðan lá til herberg