Skólablaðið - 01.04.1960, Blaðsíða 24
- 144 -
launahæf, en hins vegar fékk hver höfund-
ur hundrað krónur í umbun fyrir viðleitni.
Það kom síðan af sjálfu sér eftir þetta,
að ekki var hægt að halda skólaskálda-
vöku eins og venja hefur verið til.
Mikil eftirsjá er að henni, ef hún á eftir
að leggjast niður og er þá eitthvað bogið
við andlegt líf og þroska Menntlinga, ef
þeir fá ekkert að gert.
Sagt er að í fyrndinni hafi skáldskapur
verið í miklum metum hér í skóla.
Voru kvæði manna rituð á sérstaka bók
og síðan lesin og rædd. Fékk þar marg-
ur harðan dóm. Síðan þetta var hafa
mörg vötn runnið til sjávar og' mjög
fjölgað nemendum í skólanum. Er það
vænlegt verkefni fyrir heimspekinga að
grafast fyrir um orsökina til þessarar
hnignunar.
^_Hi_c LUlfLSJLi h ‘
Rekstur íþöku hefur yfirleitt gengið
vonum framar í vetur. Fjórðubekkingar
halda uppteknum hætti og sækja þangað
sem ákafast og busar hafa bætzt í hóp-
inn. Hefur aðsóknin verið góð, miklu
betri en í fyrra. Hins vegar mætti hún
gjarnan vera betri, því sé betur að gáð,
sést, að það er að miklu leyti sami hóp-
urinn, sem mest sækir ]þ>öku, allt of
margir koma þangað ekki nema einu sinni,
tvisvar á vetri. Slíkir menn eru oft
kallaðir nihil af félögum sínum. Er það
ágætt nýyrði, en betur væri, að þessa
væri ekki þörf.
Dansæfingar hafa verið haldnar hæfi-
lega oft. Hefur þeim verið fækkað nokk-
uð síðan í fyrra og var það skynsamlega
gert. Hins vegar er það í meira lagi
vafasöm stefna að leggja niður að mestu
leyti dansleiki á sal. Mun svo vera um
flesta efribekkinga, að þeim finnast þeir
miklu virðulegri samkomur en Iþökuböll.
Er því sjálfsagt að fækka þeim ekki meir
en orðið er.
B_ójca._s a;f_n_i_ð__o_g___pJL_ö_t u_s_a^n^i_ð_.
Tvö söfn eru starfrækt hér í skóla,
bóksafnið og plötusafnið. Bæði eru þessi
söfn mjög góð, hvort á sínu sviði, en eru
þó ekki nærri því nógu vel notuð af nem-
endum. Svo er jafnvel um plötusafnið,
sem líklega er ein glæsilegasta stofnun
nemenda, að fjöldi nemenda veit ekki af
tilvist þess. Bókasafnið er heldur síðra
en plötusafnið, enda býr það við hin
verstu skilyrði. Ekki er hægt að bæta
nokkru við safnið nema læsa jafn mikið
gamalla bóka niðri í kössum, þar sem
aldrei sólin skín. Er þetta líklega ástæð-
an til þess, hve lítið bætist við af nýjum
bókum. En þrátt fyrir þetta er safnið
ákaflega gott og vil ég hér með hvetja
menn til að nota bæði þessi söfn miklu
meir en þeir gera.
L_a_ga b r e^t i n_g_a_r .
Mikil gangskör hefur verið að því
gerð undanfarið að breyta lögum skólafé-
lagsins. Allir virðast sammála um, að
þau séu löngu úrelt orðin og þeim þurfi
að breyta. í fyrra var skipuð nefnd til
endurskoðunar laganna. Sú nefnd skilaði
áliti og virtust menn sammála um, að
flestar breytingartillögurnar snerust um
orðalag en ekki innra bjarma þess, er
breyta þurfti, samt voru tillögurnar allar
samþykktar. í vetur hafa síðan verið skipað-
ar tvær nefndir. Tillögum þeirrar fyrri
var snarla vísað aftur til föðurhúsanna, en
flestar tillögur seinni nefndarinnar voru
samþykktar. Ýmsar þeirra voru ágætar,
m. a. lagfærði þessi nefnd ýmislegt.sem
nefndin frá í fyrra hafði grautað í, og svo
hafa verið gerðar breytingar, sern allir
voru sammála um að gera þyrfti. En nefnd
þessi hefur einnig komið með svo furðuleg-
ar og fánýtar orðalagsbreytingar, að engu
er líkara en hún hafi ætlað að gera gys að
Menntlingum. Hafi það verið ætlunin hefur
það vissulega tekizt. Sem dæmi um þessar
furðulegu breytingar má nefna hina alræmdu
eo ipso breytingu og niðurstuirður á
"góðri" úr lagagreininni, þar sem stend-
ur : "Hlutverk plötusafnsins er að gefa
nemendum kost á að kynnast góðri tón-
list til einhverrar hlýtar. "
Breytingu þessa börðu jazz\innendur í
gegn, því að þeir töldu, að þetta gerði
innreið jazzins í plötusafnið auðveldari !
Minna má og á það, að fyrril nefndin frá
í vetur vildi fella niður orðijti "til ein-
hverar hlít'ar " og er vandsétt, hver end-
irinn verður, ef fleiri slíkum. nefndum
verður hleypt af stokkunum.
Niðurlag.
Nú fer brátt að líða að pj.’ófum og
Frh. á. bhs. 156.