Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1960, Qupperneq 13

Skólablaðið - 01.04.1960, Qupperneq 13
133 - ööru. V eggirnir voru fóðraðir grænu veggfóðri og undir þeim voru texplötur til að bæta hljómburðinn. Við hliðina á skrifborðinu var plötuspilari og á honum var sjöunda sinfónía Síbelíusar. "Hvaðan hefur þu fengið þessa hluti ?" "Sumt hef eg keypt sjálfur, en annað hefur mér verið sent að gjöf. Ég met vináttuna mjög mikils, miklu meira en nokkurt siðgæði og hef gaman að skiptast á vinargjöfum. Einnig hef ég skrifast á við ýmsa erlendis í nokkur ar. " Því til merkis sýnir hann mér marga kassa fulla af bréfum. "Þu hefur ferðast talsvert sjálfur, er það ekki? " "Eftir aldri hef ég að líkindum gert það. Foreldrum mínum er það að þakka, að ég hef getað farið fjórum sinnum til Evrópu og dvalið síðastlið sumar í Bandaríkjunum. Mér finnst ferðalög ómetanleg og er ég þar á öndverðum meiði við Lao Tze, sem segir : "Því víðförlari, sem maður er, því minna veit hann". Ég hef kynnzt nýjum siðum, hugsunum og listum og að loknu stúdentsprófi ætla ég til Parísar." "Hvernig finnst þér evrópsk menning annars vegar og bandarísk hins vegar? " "Að sjálfsögðu er ég ófær um að leggja nokkurn dóm á þetta, en við verð- um að hafa hugfast, að evrópsk menning á sér miklu dýpri rætur og er því varla sambærileg. Flest, sem kalla má há- menningu I Bandaríkjunum, er aðkeypt og stórglæsilegt, því að þeir hafa nóg af peningum. T. d. finnst mér söfnin, leik- húsin og hljómleikahúsin í New York, Philadelpiu og Washington óviðjafnanleg. Hins vegar gætu Bandaríkjamenn ekki bætt sér upp fátæktina með hyggindum, ef fé mundi skorta. " "Hvernig geðjast þér að Bandaríkja- mönnum? " "Þeir voru mjög vinalegir og gestrisn- ir, en ristu flestir ákaflega grunnt. Þar virtist vera í tízku að hugsa ekki. Allir kepptust við að vera eins og ná- granninn og falla inn í heildina. Auðvit- að eru gimsteinar í ameríska mannsorp- inu eins og öðru sorpi, en þeir eru hlut- fallslega sárafáir. Ég kynntist nokkrum bráðgáfuðum og snjöllum mönnum, og þar sem þeir voru ekki frægir, voru þeir álitnir eitthvað andlega bilaðir. Almenningsálitinu er annars aldrei treyst- andi. Hvað viðvíkur hinu fræga ameríska kvenfólki er ég sammála því, sem Freud sagði í blaðaviðtali eftir komu sína frá Bandaríkjunum : " American women are an anti-cultural phenomenon. They have nothing but conceit to make up for their sense of uselessness." " "Þú virðist ekki leggja mikið upp úr lýðhylli ? " "Nei. Almenningur hefur ímugust á þeim, sem binda ekki bagga sína sömu hnútum og aðrir. Ýmist eru þeir hafnir til skýjanna eða troðnir í svaðið, og bil- ið þar á milli er skammt. Um leið og einhver byrjar að falla, hrópa allir : Niður með hann ! Verknaður fjöldans er talinn réttlæta framkvæmd hans. Þar ríkir ósanngirni, grimmd og hlífðarleysi. Einstaklingur- inn lítur a sjálfan sig sem sjónarvott að sínu eigin ofbeldi. Lýðurinn vill elta eitthvað, hvort sem hann skynjar mark- miðið eða ekki. Hann er engum trúr, sízt af öllu sjálfum sér eða hugsun sinni. " "Segðu mér, ert þú einn þeirra, sem eru að bíða eftir e-m Godot? " "Ég reyni að bíða aldrei eftir neinu, því að biðin er oftast óskyld því, sem við bíðum eftir. Einkenni biðarinnar finnst mér, er að hún breytir óskynjan- lega því, sem vænzt er, hefur það í æðra veldi, magnar það, breytir snún- ingsrás þess og er orðin fráleit hinu upphaflega, ef það kemur á annað borð í ljós. " "Ég sé, að í hillunum eru ýmis rit Freuds, hvernig finnst þér hann? " "Mér finnst gaman og fróðlegt að lesa rit hans, en ég dáist ekki að honum. Hann gengur of langt í sálkönnun sinni, en þess ber að gæta, að hann var braut- ryðjandi, og þeim er oft nauðsyn að vera öfgafullir. " "Hvaða bækur heldur þú mest upp á af bókum þínum? " "Eðlilega er ég hrifnæmur eins og annað ungt fólk og á mín öðlingsrit stund og stund. ÞÓ eru þrjú rit, sem ég les

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.