Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 16

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 16
"Eftir ragnarök rennur upp nýr him- inn og ný jörð j er hún þá iðgræn og akrar vaxa ósánir. Hefst þá ^ullöld ný og fögur, en hið illa hverfur ur sögunni." í lifanda lífi hafði mér ávallt fundist óyggjandi sannleikur felast í þessum eld- fornu spádómsorðum. Mér hafði ávallt boðið í grun, að þau ættu eftir að rætast á einhvern hátt. En ég var satt að segja farinn að efast, er við höfðum reikað lengi dags um auðnirnar og næstum afmáðar rustir eyði- leggingarinnar. Að kvöldi komum við á grasi vaxnar hæðir. Framundan lá frjósamur, iðgrænn dalur, baðaður í eldrauðu aftanskini. Ég kom auga á. mikla húsaþyrpingu, sem teygði sig eftir botni hans. "Hér gefur að líta borg þeirra jarðar- búa, " sagði félagi minn, gyðings sálin, sem var öllum sálum fróðari um hin óæðri plön. "fbúar hennar eiga eitt sam- eiginlegt. Þeir eru ýmist andlega eða líkamlega skaddaðir af völdum KJARN- OR KUS TYR JALDARINNAR MIKLU, ýmist örvitar eða örkumlamenn. Hér eru sem- sé saman komnar í einn stað, þær rúm- lega tvö þúsund mannverur, sem lifðu af mestu hörmungar, sem yfir mannkynið hafa dunið. Hér eru þær að hefja nýtt líf, mynda nýtt, fullkomið samfélag. " "Hvernig geta þær myndað samfélag og reist blómlega bústaði með ríkulegum akurlöndum eins og hér blasa við, " spurði ég vantrúaður. "Hinir lemstruðu hafa aukið andlegan þroska sinn. Hinir fávísu hafa óskert líkamsþrek. Þetta gerir þeim kleift að skipta störfum farsællega innan samfé- lags síns, " svaraði félagi minn. "Er þá ekki hætta á, að hinir vitru misnoti aðstöðu sína og kúgi fáráðling- ana, " spurði ég. "Nei, " svaraði félagi minn. "Sam- félag þeirra kennir sig við bræðralag, og hér er mannúðarhugsjónin ríkjandi. Stjórn þess lýtur hinum mikla RAFEINDA- HEILA, sem HUGVITSMAÐURINN MIKLI hefur gjört af hagleik sínum öllum mönn- um til blessunar. Hin farsæla þjóðfélags- skipan er fyrsta afrek þessarar dásam- legu hugvits smíðar. Með honum er hafinn nýr kapítuli í mann- kynssögunni. " Ég undraðist frásögn hans og starði út yfir dalinn. Og við tókum okkur andlega næturhvíld. Að morgni lögðum við úr náttstað og héldum til móts við mennina, tveir oefnis- kenndir ferðalangar, tvær mannssálir, sendar af öðru tilverustigi til að grennsl- ast eftir afkomu þeirra meðbræðra okkar, sem liföu af KJAR NOR KUST YR JÖLDINA MIKLU. ^ Við fórum niður hlíðarnar, sem voru samfellt gróðurlendi, vaxin kynlegum líf- grösum, undarlegu samblandi nýrra, full- komnari tegunda og gamalla jurtakynja. Er við nálguðumst borgina, varð mér starsýnt á undarlegar skepnur, sem héldu sig í smáhópum undir stjórn forystudýra. "Hvaða dýrategund er þetta, " spurði ég. "Ég minnist hennar ekki úr dýra- fræðinni, sem ég lærði í jarðlífi mínu. " "Þetta er eina húsdýr jarðarbúa, af- sprengi mjólkurkýrinnar, aðeins full- komnara að byggingu og á hærra vits- munastigi, " svaraði félagi minn. Við héldum nú sem leið lá inn í borg- ina. í útjaðri hennar var vísindastofnun rík- isins. Þar var framtíðarmaðurinn í deiglunni. Tveim einstaklingum, karli og konu, höfðu verið látnir í té beztu eiginleikar beggja hinna eftirlifandi hópa manna. Þau voru fólgin í sóttheldu glerhúsi og

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.