Skólablaðið - 01.04.1960, Page 20
140 -
FÁEIN ÞAKKARORÐ
Kæri ritstjóri !
Mér langar bara til að skrifa nokkur
orð í þetta blað til að óska Menningar-
félaginu og Ólafi Grímssyni til lukku með
glæsilega árangra í baráttunni fyrir ýms-
um göfugum málstöðum.
Félaginu hefur tekist að brjóta niður
mura vanþekkingar með æskuna í fylking-
arbrjósti og það er nu bara vel af sér
vikið. Félagið veitir líka pólitískum
ungmennafélögum hollar samkeppnir, og
veitir ábyggilega ekki af.
Menningarfélagið á líka þökk skilið
fyrir að hafa glætt áhuga æskunnar fyrir
handritunum með því að gefa ur Árna-
safnsbókina um handritin, sem öll skóla-
börn landsins ættu að skrifa ritgerðir úr,
sem eru alltaf áhugalaus.
Félagið hefur mikla og marga tilganga
á prjónunum og ég vildi óska að því
gangi allt í haginn.
Einn af mörgum
In Classe tertia--
Busi t Aðalmunurinn á rómantísku stefn-
unni og raunsæisstefnunni var sá,
að raunsæismennirnir litu tilver-
una miklu svartara Ijósi en þeir
rómantísku.
Nytt verkefni fyrir málfræðinga?
Basi: Hérna er ég með lókaritmatöflur,
sem þýddar voru ur dönsku.
ÞAKKIR OG KVEÐJUR
TIL NEMENDA HINS LÆRÐA SKÓLA
Ritnefnd.