Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1960, Qupperneq 27

Skólablaðið - 01.04.1960, Qupperneq 27
- 147 - aö hjá Pound se ekki að finna neinar sérlega frumlegar hugsanir, enga sérstaka opin- berun lífsins, engar djúpar tilfinningar. Það frumlega við kvæði Pounds er formið, ekki innihaldið. Enda álítur Blackmur beztu þýðingar hans það bezta, sem hann hef- ur gert. Hvort sem þetta er rétt eða ekki, er það staðreynd, að þýðingar Pounds eru með stærstu framlögum hans til békmenntanna. Viðfangsefni Pounds eru margvísleg, sérstaklega í fyrri kvæðum hans, en þar ber mikið á illgirnislegri fyndni. f síðari kvæðum er yrkisefnið oft nútíminn, skoðað- ur með hliðsjón af mannkynssögunni. Pound er mjög vel að sér í sögu, sérstaklega grískri og rómverskri. Fyrir utan Söngvana eru tvö af kvæðum hans það viðamikil, að hægt sé að tala um þau hér. Það eru kvæðin Hugh Selwyn Mauberley og Homage to Sextus Propertius. Huj*h Selwyn Mauberley er nokkuð langt kvæði og fjallar um skáld nokkurt, sem er halfvegis í nítjándu öldinni og hálfvegis í þeirri tuttugustu. Skáld þetta á erfitt uppdráttar, og er kvæðið að nokkru leyti árás á þær kringumstæður, sem því valda. KvæðiC hefst á þessum línum: For three years, out of key with his time, He strove to resuscitate a dead art Of poetry, to maintain "the sublime" In the old sense. Wrong from the start - Kvæðið heldur áfram og lýsir andstæðum milli nútímans og "the sublime in the old sense", og inniheldur, eins og mörg kvæði skáldsins, mikið af tilvitnunum í fornbókmenntir, goðafræði og sögu. Homage to Sextus Propertius er þýðing á köflum úr Bók II og III af Elegíum Propertiusar. Þýðingin er þó langt frá því að vera bein; Pound raðar, sleppir, dregur saman og bætir sums staðar við frá eigin brjósti til að útskýra eða gagnrýna. Má því að mörgu leyti líta á Propertius sem frumsamið kvæði, þó þýðing sé. Söngvarnir ( Cantos ) eru mjög fjölbreytilegir að efni, en mest af efni þeirra er sögulegs eðlis. Þar sem ég hef ekki lesið nema mjög lítið af þeim og þeir eru auk þess torskildasta verk Pounds, mun ég ekki lýsa þeim nánar hér. Sem sýnishorn af Ijóðum Povmds hef ég valið nokkur stutt kvæði úr Lustra. S.H. THE BATH TUB As a bathtub lined with white porcelain, When the hot water gives out or goes tepid, So is the slow cooling of our chivalrous passion O my much praised but-not-altogether-satisfactory lady

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.