Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 34

Skólablaðið - 01.04.1960, Síða 34
- 154 RENGURINN er að leika sér fyrir utan húsiö. Þetta er gamalt hús, ákaflega sérkennilegt, eins sérkennilegt og mest má verða, jafnvel í Vesturbæn- um. Það er einsog húsið hafi orðið til úr einum fimm eða sex húsum öðrum og kannski svolitlu af skipsviðum. Þetta hús er hrófatildur þriggja kynsloða og þriggja kreppna. Fyrst kemur við'bygging útfrá aðal húsinu og viðbygging útfrá viðbygg- ingunni og að lokum viðbygging útúr hin- um enda hússins. Og svo eru kvistir á þaki, hvor með sínu lagi, allt ákaflega skrýtið. Fyrir ofan húsið er gamall kálgarður, sem stendur þó nokkuð hærra en húsið, og þar uppí lóðinni eru skúrar og kumb- aldar. í kjallara hússins á hann jósep gamli heima. Það er skrýtinn karl, hann jósep. Hversdags er hann í samfestingi, sem einu sinni var hvítur, nú er hann orðinn svartur, sennilega fyrir langa löngu. Á sunnudögum er hann á bláum fötum með gylltum hnöppum og með kastskeyti á höfði. Hann vinnur hjá Kol og Salt. Hinummegin í kjallaranum á hún Fxna gamla heima, hún er ákaflega gömul, og ákaflega hrukkótt, þybbin, gömul kona, sem um hvunndaginn er á blárúðóttri svuntu og með heklaðan skýluklút á herð- um, og þá talar hún aðallega um pólitíið og helvítis kaupmanninn. Á sunnudögum er hún á peysufötum. Þá les hún í Biblíunni sinni um hann Guð, sem er svo góður, tárast er hún hugsar um manninn sinn sáluga, sem drukknaði, bakar svo kannski pönnukökur á olíuvélinni sinni, og sýslar svo með prjónana sína. DG: EUB Og í húsinu býr líka fullt af öðru fólki, upp á lofti býr fólk, í kvistunum báð um er fólk, jafnvel í skúrunum uppi í lóð inni er líka fólk. Þetta er veröld drengsins og Fínu gömlu. Hér hefur drengurinn átt heima frá því er hann fyrst man eftir sér, eða frá því að hún Fína gamla tók hann að sér, foreldralausan aumingja, sem engan átti að. Drengurinn er ákaflega viljugur að sendast fyrir fólkið í húsinu. Stundum gefur það honum peninga fyrir, stundum segist það ætla að gera það seinna. En minni fólks í svona húsum er oft valt að treysta. Stundum er fólkið í húsinu fullt, og þá gefur það drengnum peninga, sem hann fer með til Fínu gömlu. Stundum eru líka konur í húsinu, sem kyssa hann og kalla hann elskuna sína. Þá verður hann feiminn, en samt finnst honum þetta eiginlega ekkert leiðinlegt. Þeir eru nokkuð margir þeir dagar, sem hafa í för með sér fullan mann í öðru hverju húsi, og ef til vill svona hálf-viðvanings - lega vísur daginn eftir : Ég hef ei lyst til lífsins, langar ekki í neitt, hef ekki dug til að drepast, né dug svona yfirleitt. Vínguðnum binzt ég böndurrt og Bakkusar sýp ég vín, kneyfa svo kannski stundurri kogara og aspiríri. Það verður svo margt til hjá fólki, sem hefur útsýni úr eldhúsgluggciborunni

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.