SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 38
38 5. september 2010
Á
heimili Stefáns eru oftast
fimm í mat og kvöldmat-
artíminn sannkölluð fjöl-
skyldustund. Annað heim-
ilisfólk kemur aðeins inn í eldhúsið til að
borða, enda er það á öðrum tímum yf-
irráðasvæði fjölskylduföðurins.
– Hvenær kviknaði áhuginn á mat-
reiðslunni?
„Ég byrjaði að búa þegar ég var tæp-
lega tvítugur og í upphafi var borðað til
að lifa. Svo kom eitthvað millistig þar
sem ég var farinn að fara oftar út að
borða og farinn að upplifa eldamennsk-
una í kringum mig svona 25-30 ára
gamall. Svo endar maður á sælkerahæli á
fertugsaldri og lifir til að borða,“ segir
Stefán og hlær. „Þá snýst þetta við. Í dag
veit ég ekkert yndislegra en að elda og
allra helst fyrir annað fólk. Þetta er
ástríða númer eitt, tvö og þrjú.“
– Hvert sækirðu innblástur?
„Ég ætla nú bara að gera smájátningu í
sambandi við það. Eins og golfarar
dýrka Tiger Woods og fótboltamenn
Lionel Messi þá kveikti pjakkurinn Ja-
mie Oliver í mér. Ég komst fyrst í þætt-
ina og bækurnar hans fyrir liðlega ára-
tug þegar ástríðan á matreiðslunni var
að kvikna og það var ást við fyrsta
smakk.“
– Þú ert duglegur að horfa á mat-
reiðsluþætti líka er það ekki?
„Jú, það er frábær stöð sem Íslend-
ingar geta náð sem heitir BBC Lifestyle
og þar eru matreiðsluþættir í gangi
næstum allan sólarhringinn. Ég get horft
á fótboltann í svona níutíu mínútur í
einu en ég get gleymt mér í mat-
reiðsluþáttum í níu klukkutíma.“
Stefán Hrafn Hagalín og
11 ára hjálparkokkurinn
Bjartur Steinn sýna fag-
mannleg vinnubrögð við
eldamennskuna.
Morgunblaðið/Ómar
„Er örugglega
hamfarakokkur“
Stefán Hrafn Hagalín er markaðsstjóri hjá
Skýrr en setur upp svuntuna að vinnudegi
loknum og eldar langt fram á kvöld. Hann
notar Facebook til að tjá sig um helstu
áhugamálin, mat og fótbolta, og hvetur fólk
til að vera duglegra að bjóða öðrum í mat.
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Matur
Fyrir 4-6
Innkaupalisti
15 ferskar fíkjur (fást í Hagkaup)
1 bréf af hráskinku (parma, pros-
ciotto eða toscana)
1 stór kúla af mozzarella
1 handfylli af basil (hálfur bakki)
1 handfylli af myntu (hálfur bakki)
1 rauður chili
1 sítróna
1 langbrauð (baguette)
ólívuolía
hunang
salt og pipar
Matreiðsla
Skerið fíkjurnar í fjóra hluta. Rífið hráskinkuna og
mozzarella-ostinn niður. Kjarnhreinsið chili og saxið
smátt. Blandið öllu saman í skál og dreifið yfir hand-
fylli af basil og myntu. Framreiðið á stórum diski eða
í skál, eftir hentugleika.
Salatsósan er gerð með 6 msk af olíu, 3 msk af sí-
trónusafa og 1 msk af hunangi. Hrærið vel saman,
saltið smávegis og piprið hressilega.
Skerið langbrauðið niður í 2 sm sneiðar og ristið í
smástund inni í ofni.
Þetta einfalda salat er fimm essa sinfónía fyrir bragð-
laukana: sætt, súrt, salt, sterkt og sérstakt.
Kynþokkafyllsta fíkjusalat veraldar