Morgunblaðið - 20.01.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Nú styttist í stór útboð
Samgönguráðuneytið svo gott sem tilbúið í útboð á stórum vegaframkvæmdum
Einnig á döfinni að bjóða út byggingu aðstöðu við Landeyjahöfn á næstunni
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
FRAMKVÆMDIR við tvöföldun Vesturlandsveg-
ar í Mosfellsbæ og fyrsta áfanga í breikkun Suður-
landsvegar, frá Fossvöllum í Lögbergsbrekku, of-
an við Lækjarbotna og upp í Draugahlíðarbrekku
austan við Litlu kaffistofuna, eru svo gott sem til-
búnar fyrir útboð af hálfu Vegagerðarinnar. Krist-
ján L. Möller samgönguráðherra gerði ríkis-
stjórninni grein fyrir þessu á fundi hennar í
gærmorgun.
Að sögn Kristjáns gæti vinna við þessar fram-
kvæmdir hafist í byrjun sumars, maí eða júní.
Gangi það eftir lýkur þeim á næsta ári. „Við eigum
eftir að fara yfir nokkur atriði á fjárhagshliðinni
og gagnvart Vegagerðinni. Það munum við vinna á
næstu dögum,“ segir Kristján. Hann leggur
áherslu á að hér sé ekki aðeins um atvinnuskap-
andi verkefni að ræða, heldur sé hér mikið um-
ferðaröryggismál á ferðinni. „Þarna er verið að
tvöfalda og aðgreina akstursstefnur.“
Þó ekki verra á þessu mikla erfiðleikaári
Einnig styttist í útboð á einum verkþætti Land-
eyjahafnar sem gengur út á að gera aðstöðu og
landtengingu fyrir skip í höfninni.
Kristján segir að nú standi yfir framkvæmdir
fyrir tæpa tíu milljarða króna í samgöngumálum.
„Það er næstum því jafnmikið, sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu, og var veitt í svona fram-
kvæmdir 2000-2007. Ástandið er þrátt fyrir allt
ekki verra á þessu mikla erfiðleikaári,“ segir hann.
Hins vegar eru verklegar framkvæmdir í ár
ekki nærri því jafnmiklar og síðustu tvö árin, 2008
og 2009. „Mörg af þessum verkum eru að klárast á
þessu ári. Það sem við erum að horfa til núna eru
verk sem við viljum koma í útboð á þessu ári og ná
inn á árin 2011 og 2012. Þetta er liður í þeirri vinnu
en það er svolítið púsl að koma þessu fyrir innan
fjárhagsrammans því við vitum ekki hver endan-
legur kostnaður við verkin verður við verklok.“
EKKI liggur enn fyrir hvort hægt
verður að höfða skaðabótamál á
hendur þeim sem taldir eru hafa
valdið ríkinu og almenningi í landinu
tjóni með athöfnum sínum í aðdrag-
anda og í kjölfar bankahrunsins. Bú-
ið er að skipa nefnd fjögurra lög-
fræðinga til að skoða þessi mál, en
vinna nefndarinnar er skammt á veg
komin.
Ríkisstjórnin skipaði í fyrri hluta
desember, að tillögu fjármálaráð-
herra, starfshóp sem hefur það verk-
efni „að skoða hvort unnt sé að hefja
og reka skaðabótamál á hendur þeim
lögaðilum og einstaklingum sem
sýna má fram á að hafi valdið ríkinu
og almenningi í landinu fjárhagslegu
tjóni með athöfnum sínum í aðdrag-
anda og í kjölfar bankahrunsins.“
Hafdís Ólafsdóttir, lögfræðingur í
fjármálaráðuneytinu, er formaður
starfshópsins. Hún segir að vinna
hópsins sé að fara af stað. Hópurinn
muni m.a. skoða skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis sem birt
verður í byrjun febrúar.
Rekin sem einkamál
Ef kemur til málareksturs verða
þau mál rekin sem einkamál og kröf-
ur ríkisins einkaréttarlegs eðlis, þ.e.
að ríkið krefst bóta fyrir tjón sem
það hefur orðið fyrir vegna verka
annarra.
Starfshópurinn á ásamt sjálfstætt
starfandi lögmönnum, að undirbúa
hugsanleg skaðabótamál. Hópurinn
á að velja þau mál sem líklegt er að
geti haft hraðan framgang og for-
dæmisgildi. Í kjölfarið á svo að meta
hvort hefjast eigi handa með því að
óska eftir kyrrsetningu á eignum.
egol@mbl.is
Skoðar grundvöll
skaðabótamáls
Mál gegn útrásarvíkingum í skoðun
FJÓRIR menn voru í gær yfir-
heyrðir hjá embætti Ríkislög-
reglustjóra, auk þess sem gerð var
húsleit á þremur stöðum þar sem
lagt var hald á ýmis gögn. Frétta-
stofa RÚV greindi fyrst frá þessu í
gærkvöldi. Eftir yfirheyrslur var
fjórmenningunum sleppt en Helgi
Magnús Gunnarsson hjá embætti
Ríkislögreglustjóra sagði við mbl.is
að fleiri vitni yrðu kölluð til yfir-
heyrslu.
Síðasta föstudag var lagt hald á 92
milljónir kr. vegna meintra fjársvika
við sölu á fasteigninni Skúlagötu 51
til kínverska sendiráðsins. Fast-
eignin var í eigu félagsins Vindsúlur
en þar er í forsvari Aron Karlsson
ásamt föður sínum Karli Steingríms-
syni. Fasteignin var veðsett fyrir
rúman milljarð króna vegna lána í
Arion banka, Íslandsbanka og Glitni.
Um miðjan desember sl. var gengið
að tilboði frá indversku fyrirtæki í
fasteignina fyrir 575 milljónir kr.
Bankarnir féllust á þessa sölu.
Skömmu síðar var hins vegar sam-
þykkt tilboð frá kínverska sendi-
ráðinu upp á 875 milljónir.
Í millitíðinni var búið að færa fast-
eignina í nýtt félag, 2007 ehf., í eigu
sömu aðila, en félagið heitir núna
AK fasteignir. Bankarnir höfðu enga
vitneskju um tilboð Kínverjanna eða
flutning eignarinnar milli félaga og
telja þeir sig hafa verið hlunnfarna
um 300 milljónir króna.
silja@mbl.is/una@mbl.is
Fjórir
grunaðir
um fjársvik
Sendiráðið Húsið Skúlagata 51.
Húsleitir og hald lagt
á 92 milljónir króna
HAFÍSINN var á svipuðum slóðum
úti fyrir landinu í gær samkvæmt
upplýsingum sem Landhelgisgæsl-
unni bárust frá skipum sem áttu ferð
um svæðið norður af Óðinsboða.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug
yfir svæðið seint í gærkvöldi til að
kanna hvernig málin hafa þróast en
nákvæmar upplýsingar um stöðuna
lágu ekki fyrir þegar Morgunblaðið
fór í prentun.
Hafís á svip-
uðum slóðum
Í DAG er fjórtándi dagur eftir jól í rússnesku
rétttrúnaðarkirkjunni. Daginn áður er venjan að
blessa vatnið og var það gert í Nauthólsvíkinni í
gærkvöldi. Í ár hittist svo á að alþjóðleg sam-
kirkjuleg bænavika stendur yfir á sama tíma og
tók því fólk úr ýmsum kirkjudeildum þátt í at-
höfninni í Nauthólsvík þar sem Timothy Zolot-
uskiy, prestur safnaðar heilags Nikulásar úr
Moskvupatríarkinu í Reykjavík, fór með bæn á
ströndinni. Veðrið var heldur kaldranalegt og
vindurinn reif hressilega í hempu Zolotuskiy.
Hann steig út í ískaldan sjóinn með reykelsið í
hönd og blessaði vatnið. Að athöfn lokinni
skelltu nokkrir sér í sjósund út í vatnið blessaða,
presturinn þeirra á meðal. una@mbl.is
Fjórtándi dagur jóla í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni
Blessaði úfinn sjóinn í Nauthólsvík
Morgunblaðið/Golli
ÞORRINN 2
010
Þorrahlaðborð
– fyrir 10 eða fleiri –
1.990
kr. á mann
www.noatun.is
Borgarstjórn
Reykjavíkur
samþykkti í gær
að verja sem
svaraði 100 krón-
um á hvern
borgarbúa til
hjálparstarfa á
Haítí. Það sam-
svarar um 12
milljónum króna. Verður Rauða
krossi Íslands falin ráðstöfun fjár-
ins, sem tekið er af liðnum „ófyrir-
séð“ í fjárhagsáætlun.
Þorleifur Gunnlaugsson, borgar-
fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, mælti fyrir tillög-
unni, sem allir flokkar stóðu að og
var samþykkt með 15 samhljóða at-
kvæðum. Hvatti Þorleifur einnig til
þess að efnt yrði til landssöfnunar á
vegum hjálparsamtaka og fjölmiðla í
þágu íbúa á Haítí.
Tólf milljónir
til Haítí