Morgunblaðið - 20.01.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
EYJAFLOTANUM, alls um 30 skipum, verður
stefnt í land á morgun og á fimmtudagskvöld verð-
ur haldinn fundur í Vestmannaeyjum. Yfirskrift
hans er „fyrnum fyrningarleiðina“ og verður ýms-
um aðgerðum stjórnvalda mótmælt. „Hvatinn að
þessum aðgerðum er harður og heitur, hundrað
manna fundur skipstjóra og háseta milli jóla og
nýárs sem sagði nei við fyrningarleið, nei við 5%
útflutningsálagi og nei við niðurfellingu sjómanna-
afsláttar,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar.
Breiður hópur stendur að fundinum, það eru
Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra- og stýri-
mannafélagið Verðandi, bæði félög útvegsbænda,
fiskvinnslan í Eyjum og bæjaryfirvöld. Þórður
Rafn Sigurðsson, formaður Útvegsbændafélags
Vestmannaeyja, segir Eyjamenn óánægða með
alla þessa þætti og nefnir sem dæmi að 5% útflutn-
ingsálag hafi beina tekjuskerðingu í för með sér.
„Við viljum mótmæla valdníðslu stjórnvalda og þá
sérstaklega sjávarútvegsráðherra, það er ekki
hægt að tala við þessa menn,“ segir Þórður Rafn.
Bergur Kristinsson, formaður Verðandi, tekur í
sama streng og segir að 5% útflutningsálag sam-
svari því að missa eitt skip frá Eyjum og þau störf
sem því fylgi.
Stendur og fellur með
tekjum sjávarútvegsins
Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að tekjur
bæjarfélagsins í Eyjum standi og falli með tekjum
sjávarútvegsins. „Allt sem verður til þess að skaða
arðsemi greinarinnar bitnar beint á pyngju sér-
hvers bæjarbúa og bæjarkassans. Þegar vel árar í
sjávarútvegi þá árar vel í rekstri bæjarfélagsins.
Handaflstilflutningur á verðmætum yrði gríðar-
legt áfall fyrir alla samfélagsgerðina hér.
Ef við lítum á boðaða breytingu ráðherra á
skötuselskvóta þá kostar hún ein og sér hagkerfi
Eyjanna um 400 milljónir króna á ári og tekjur
sjómanna hér myndu rýrna um 140 milljónir. Út-
flutningsálagið kostar á sama hátt um 200 millj-
ónir og tap sjómanna vegna breyttra vigtarreglna
er um 70 milljónir. Fyrningarleiðina þarf ekki að
ræða, því fyrirtækin og samfélagið hér færu lóð-
beint á hausinn með slíkum aðgerðum. Fundur
þessa breiða hóps ætti því ekki að koma nokkrum
manni á óvart,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri.
Eyjaflotanum stefnt í land
Sjómenn, útgerð, fiskvinnsla og bæjaryfirvöld standa fyrir fundi á morgun
Mótmæla aðgerðum stjórnvalda undir yfirskriftinni „fyrnum fyrningarleiðina“
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MEÐALHITI það sem af er janúar hefur stigið býsna
mikið dag frá degi undanfarið. Í gær var meðalhitinn
kominn í 1,5°C og er það um tveimur stigum yfir meðal-
lagi, að sögn Trausta Jónssonar, veðurfræðings á Veð-
urstofu Íslands. Hann sagði að hitinn þyrfti að fara
a.m.k. fjögur stig yfir meðallag til að hægt væri að tala
um óeðlilegt ástand. Búast má við hlýindum hér á landi
að minnsta kosti fram yfir næstu helgi.
Kuldi í upphafi mánaðarins vegur á móti hlýindunum
sem hafa nú staðið yfir í um hálfan mánuð. Trausti sagði
að ef hlýindin myndu endast í fjórar vikur yrði hægt að
tala um óeðlilegt ástand. Meðan Íslendingar hafa notið
hlýinda nú undanfarið hefur kuldi plagað fólk víða í
Evrópu. Trausti sagði að eitthvað hefði dregið úr kuldum
í Evrópu undanfarið. Kuldaköstin í Evrópu hefðu þó ekki
staðið svo lengi að þau teldust óvenjuleg.
Hlýrra á norðurslóðum en um miðbik álfunnar
Mjög hár loftþrýstingur var yfir Grænlandi á meðan
kalt var hér í byrjun janúar. Hæðin þokaðist síðan aust-
ur fyrir Ísland og þá kom sunnanátt hér og hlýnaði. Um
leið dró heldur úr kuldum í Evrópu og suðaustlægra átta
gætti a.m.k. í vestanverðri álfunni. Trausti sagði að
þessu hefðu fylgt mikil hlýindi í norðanverðri Skandinav-
íu, í Finnmörku og Lapplandi, þótt það hefði ekki verið í
fréttum. Hiti þar var 6°-8°C yfir meðallagi. Hitamunur
var því minni milli Norður- og Suður-Evrópu en venju-
lega.
Sunnan og austan við háþrýstisvæðið blása vindar úr
norðri og norðaustri og geta borið með sér kulda frá Síb-
eríu til Vestur- og Mið-Evrópu ef nógu lengi blæs úr
þeim áttum. Í gær var hæðarhryggur hér fyrir austan
land og hæð yfir Hvítahafssvæðinu í Rússlandi. Trausti
sagði að nokkuð kalt hefði verið í Evrópu í gær og var til-
tölulega kaldast í Grikklandi og á Suður-Ítalíu.
Ekki er útlit fyrir stórbreytingar næstu daga en allt
eins gæti nýtt kuldakast verið í uppsiglingu í Evrópu, að
mati Trausta. Þannig er spáð mjög köldu veðri í Þýska-
landi um helgina. Einnig er líklegt að snjói í Bretlandi.
Austur í Rússlandi er kaldast í miðju landinu, í kring-
um Moskvu og á þeim slóðum. Þar er víða -25°C til -30°C
gaddur þessa dagana. Hins vegar er frostið ekki nema
-3°C til -5°C austur eftir allri Síberíuströndinni og því
óvenjulítið frost á þeim slóðum miðað við árstíma.
Byggt á korti frá COLA
Afbrigði í hitaspá 19. - 26. janúar
°C
10
8
6
4
2
0
-2
-4
-6
-8
-10
+
-
Hitafrávik verða á hverju ári
Frávik frá meðalhita verða á hverju ári og
teljast þau yfirleitt ekki til tíðinda. Sums
staðar verður hlýrra og annars staðar
kaldara en meðaltalið segir til ummiðað við
árstíma.
Halldór Björnsson, sérfræðingur á
Veðurstofu Íslands, sagði að það sem
gerðist nú nýverið og athygli vakti í fréttum
víða um heim hefði verið að kuldapollar
lentu á tveimur mjög þéttbýlum heims-
hlutum, annars vegar miðri Evrópu og hins
vegar austurströnd Bandaríkjanna og inni í
miðríkjunum. Hitablettirnir hefðu hins vegar
lent t.d. á strjálbýlum slóðum norðurhéraða
Kanada auk Íslands.
Halldór sagði að nýliðinn desember hefði
ekki verið óvenjukaldur þegar litið væri til
alls heimsins, þótt óvenjulega kalt hefði
verið á nokkrum stöðum.
Horfur á áfram-
haldandi hlýindum
Meðalhiti í janúar stígur nú dag frá degi Kuldakast
í upphafi mánaðarins vegur á móti hlýindunum nú
Veðurfarið undanfarnar vikur veldur ýmsum undr-
un. Íslendingar og íbúar Norður-Skandinavíu hafa
notið fremur mildrar veðráttu meðan kuldar hafa
verið víða sunnar í Evrópu.
Morgunblaðið/Heiddi
Hlýindi Hjólreiðamenn hafa getað dregið fram fáka
sína í janúar í meiri mæli en oft áður á þessum tíma.
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
HOSMANY
Ramos er sann-
færður um að
sín bíði aðeins
dauðinn, verði
hann fram-
seldur til Bras-
ilíu. Hann verði
þó ekki drepinn
á meðan fjöl-
miðlar fylgist
með máli hans
en um leið og áhugi þeirra á mál-
inu fjarar út, eins og ávallt gerist,
sé voðinn vís. Í brasilískum fang-
elsum séu ýmsar aðferðir notaðar
til morða, menn séu ekki endilega
skotnir eða stungnir heldur sé al-
gengara að þeim sé byrlað eitur.
Þetta er meðal þess sem kom
fram í yfirlýsingu Ramos í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann
reynir nú að fá úrskurði dóms-
málaráðuneytisins um að hann
skuli framseldur til Brasilíu
hnekkt, einkum á þeim grundvelli
að vistin sem bíður hans sé
ómannúðleg.
Ramos var síðast í fréttum fyrir
um tveimur vikum þegar hann
reyndi að flýja úr vörslu fanga-
varða og ógnaði m.a. öðrum
þeirra með heimatilbúnu egg-
vopni. Hilmar Ingimundarson,
réttargæslumaður Ramos, sagði
fyrir dómi í gær að framsal hans
væri a.m.k. útilokað á meðan mál
þetta væri í rannsókn og það kom
honum greinilega á óvart þegar
fulltrúi ríkissaksóknara sagði að
engar upplýsingar væru í tölvu-
kerfi lögreglunnar um að málið
væri yfirleitt í rannsókn. Hilmari
þótti þetta furðu sæta, enda tæki
ákæruvaldið yfirleitt hart á brot-
um gegn valdstjórninni. Ræddi
hann málið nokkuð og varð það
m.a. til þess að Arngrímur Ísberg
dómari spurði hvort Hilmar ætl-
aði e.t.v. sjálfur að koma fram
kæru á hendur Ramos og hvernig
hann hygðist þá taka til varna.
Sitji inni til 2021
Ramos var handtekinn á Kefla-
víkurflugvelli í ágúst þegar hann
framvísaði vegabréfi bróður síns.
Síðan kom í ljós að hann var
eftirlýstur af brasilískum yf-
irvöldum þar sem hann hafði
stungið af úr landi meðan hann
var í leyfi úr fangelsi í Sao Paulo.
Þar afplánaði hann 24 ára fang-
elsisdóm fyrir mannrán og átti
samkvæmt dómnum að sitja inni
allt til ársins 2021. Ramos er
fæddur árið 1945.
Dauðinn bíður í
ómannúðlegu
fangelsi í Brasilíu
Flóttatilraun Hosmanys Ramos sætir
ekki sérstakri rannsókn hjá lögreglu
Hosmany Ramos
BÆJARSTJÓRN Álftaness hefur
verið boðuð til „vinnufundar“ í
Haukshúsum á morgun, fimmtu-
dag, kl. 17. Í fundarboði er vakin at-
hygli á að á fundinum verður lagt
til að málin sem eru á dagskrá verði
rædd sem lokuð mál.
Sveitarfélagið er greiðsluþrota
og það fékk fyrir áramót frest til
20. janúar til að skila áætlun til eft-
irlitsnefndar um fjármál sveitarfé-
laga um hvernig það hygðist vinna
á vandanum. Fresturinn var síðar
framlengdur um viku.
Á fundinum á morgun verða m.a.
lögð fram drög að skýrslu bæjar-
stjórnar vegna samkomulags við
eftirlitsnefndina og hún kynnt sem
trúnaðarmál. Þá verður rætt um
fjárhagsáætlun 2010 og þriggja ára
áætlun 2011-2013. runarp@mbl.is
Luktar dyr
á Álftanesi
8 LIÐA ÚRSLIT
KONUR
FH - KA/Þór
Víkingur 2 - Valur
Stjarnan - Haukar
Grótta - Fram
Kaplakriki
Víkin
Mýrin
Seltjarnarnes
18:30
19:30
19:30
19:30