Morgunblaðið - 20.01.2010, Side 16

Morgunblaðið - 20.01.2010, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ VinsældirObamaBanda- ríkjaforseta hafa hríðfallið heima fyrir, þótt enn eimi eftir af pólitísku popp- goðsímyndinni erlendis. Það var hún sem blindaði svo norsku nóbelsnefndina að hún sá hvorki veginn né beygjurnar og flaug út af. Nú hefur Obama minna fylgi en Bush fyrirrennari hans um sama leyti, en þá verður að hafa í huga að morðárásirnar á Manhattan skekktu allar slíkar mælingar, því þjóðir þjappa sér um leiðtoga sinn við slíkar aðstæður. Og þótt þessar kannanir hafi snúist svo illa fyrir Bandaríkja- forseta er það engin vísbend- ing um að hann verði slakur forseti. Hann er kannski helst að gjalda þess nú hve væntingarnar skutu miklum byr undir vængi hans og hann varð persónugervingur vona milljóna manna um all- an heim. Veruleikinn tekur ætíð í slíka tauma. Spurn- ingin er einvörðungu sú hversu hart hann tekur í. Bush sigldi góðan byr um það leyti sem ríki hans og bandamenn lögðu Írak undir sig og Hussein hljóp oní holu sína. Sigurinn hafði verið miklu auðveldari en nokkurn óraði fyrir, mannfall innrás- arliðsins lítið miðað við allar spár og sigurvegurunum virtist vel fagnað. Í Wash- ington og London fögnuðu menn og undruðust að sigur- gyðjan hefði verið þeim svona góð. En gleðin var skammvinn. Gjöreyðingar- vopnin, sem færustu leyni- þjónustur í heimi höfðu full- yrt að væru þar, fundust hvurgi. Þessar leyniþjón- ustur þykjast þekkja títu- prjónshausa í sundur í gegn- um gægjugat gervitungla. Og svo bættist við, að þótt stríðið í Írak hefði verið bærilega undirbúið, þá hafði gleymst að gera ráð fyrir sigrinum. Sjálfsagt myndu menn ætla að Íraksstríðið hefði dregið mjög úr vin- sældum Bush forseta. En það skipti ekki sköpum og forsetinn hlaut ágætt endur- kjör árið 2004. Það var annað mál sem fór verst með hann og skemmdi þá ímynd, sem hann vildi að landar sínir hefðu af sér. „Ég er forseti athafna fremur en orða,“ sagði hann iðulega stoltur. New Orleans gerði slíkar yfirlýsingar að örg- ustu öfugmælum í huga kjós- enda. Þegar sjón- varpsstöðvarnar sýndu dögum og vikum saman myndir af ham- farasvæðinu, sem líktust þeim sem Bandaríkja- menn sáu einstaka sinnum frá Bangladess og Rúanda eða Búrúndí, skömmuðust þeir sín niður í tær. Þetta gat ekki verið þeirra mikla ríki, það voldugasta sem heim- urinn hafði nokkru sinni séð. Óöld, úrræðaleysi, eymd og hrakfarir varnarlausra smælingja, örvænting venju- legra Bandaríkjamanna skar í augun. Var þetta allt forset- anum að kenna? Auðvitað ekki. Borgarstjórinn var demókrati, fylkisstjórinn var demókrati og þeir og meira og minna öll embættis- mannaflóra þeirra brást. Því fyrirsjánlegt hafði verið í áratugi að við tilteknar að- stæður gæti einmitt það sem gerðist hæglega orðið. En forsetinn, maður athafna en ekki aðeins orða, hann varð táknmyndin. Hann hafði sjálfur pantað það hlutverk og naut sín í rullunni. Til við- bótar brugðust þeir sem und- ir hann heyrðu hikandi og illa við og virkuðu ótrúverð- ugir og utan við sig og sjálfur var forsetinn of seinn að átta sig á hvaða skelfing hafði orðið. Ekki var kostur að kenna Bin Laden um þetta og reiði sinni getur sanntrúaður mað- ur ekki beint að Guði sínum, þótt hann telji sig eiga sitt- hvað vantalað við hann í bænum sínum. Nei, á borð forsetans hafði borist bögg- ull. Honum fannst það kannski blóraböggull, en af borðinu varð honum ekki hnikað. George W. Bush sat uppi með hann og náði eftir það aldrei vopnum sínum. Margur hafði horn í síðu Bush af hinum og þessum ástæðum, en ekkert eitt mál skaðaði hann meira. Haítí er ekki hluti Banda- ríkjanna. En þau hafa löngum áskilið sér ríkan íhlutunarrétt í málefni þessa bláfátæka nágranna síns. Má draga mjög í efa að sú íhlut- un hafi endilega alltaf verið til góðs. Ef Bandaríkin bregðast nú, þegar þau eru ein í færum um að gera eitt- hvað sem munar um þegar þetta litla land er svo hætt komið, er viðbúið að sam- skotasöfnun fyrir end- ursendingarkostnaði á frið- arverðlaunum Obama til Oslóar muni ganga vel. Bandaríkin verða að beita öllu sínu afli til hjálpar Haítí } Veikasti nágranninn í heljarnauð E f maður ætti að sjúkdómsgreina íslensku þjóðarsálina, yrði niðurstaðan sú að hún væri geð- hvarfasjúk. Tveir eiginleikar vega þar þungt. Mikilmennsku- brjálæði og minnimáttarkennd. Í maníuköstum teljum við gjarnan upp þá kosti sem prýða Íslendinga og vílum ekki fyrir okkur að rökstyðja það með einföldum tilvís- unum í þjóðveldisöldina, víkingatímann og það hversu kalt sé hér á landi. Í niðursveiflum sjáum við ekkert nema ókostina. Þá teljum við okkur fá, smá og ómerkileg. Þá megum við varla heyra á neitt jákvætt minnst um Íslendinga. Það nýjasta er að ekki megi segja frá björgunarafrekum Ís- lendinga á Haítí. Það sé svo sjálfhverft! Þar að auki teljum við að allir gallar samfélagsins séu séríslenskir. Ef eitthvað er gagnrýnivert er sagt að það sé „alveg dæmigert fyrir Íslendinga“, eins og sömu vandamál séu ekki fyrir hendi annars staðar. Fjölmargt mætti tína til, en umræðuhefðin er eitt af því sem fólk virðist almennt sammála um að sé sér- staklega vanþroskuð á Íslandi og mikil meinsemd. Hún einkennist víst af sífelldum upphrópunum og Íslendingar fara að sögn alltaf „í manninn“ en ekki málefnið. Í þessu samhengi mætti rifja upp að umræðan er lítt merkilegri annars staðar. Hér erum við til dæmis nokk- urn veginn laus við rammpólitískar sjónvarpssleggjur. Í Bandaríkjunum taka þær viðtöl í þeim eina tilgangi að reyna að krossfesta viðmælendur sína í beinni útsend- ingu. Tilgangurinn er ekki sá að fræða áhorf- andann eða miðla upplýsingum. Í þetta sækir almenningur grundvöll skoðanamyndunar sinnar, ekki síður en í fréttatímana. Dæmi um þetta kom upp í tengslum við hamfarirnar á Haítí. Sjónvarpspredikarinn Pat Robertson sagði vandamálið það að Haítí-búar væru á mála hjá djöflinum og íhaldsmaðurinn Rush Limbaugh gagnrýndi Obama fyrir að bregðast hraðar við þá en við hryðjuverkatilræðinu í Detroit. Til að bregðast við þessum ummælum ávarpaði frjálslynda sleggjan Keith Olber- mann, sem stjórnar misvinsælum þætti á fréttastöðinni MSNBC þá Robertson og Lim- baugh, í þætti sínum: „Herra Robertson, vegna taktleysis þíns og ánægju þinnar af eymd annars fólks, slepjulegrar sjálfsánægju þinnar og „ég er heilagari en þú“-elliglapakjaftæðinu í þér, er ég nú líklegri til þess að trúa því að þú sjálfur sért djöfullinn. Herra Robertson, herra Limbaugh, líf ykkar eru minna virði en líf þeirra lágkúrulegustu, verstu og fátækustu af þeim sem enn liggja í rústunum á Haítí í kvöld. Þið þjónið engu góðu, þið þjónið engum guði. Þið hvetjið til heimsku og haturs og ég myndi óska ykkur til helvítis. En vitandi hversu sálarlausir þið hljótið að vera, fyrst þið segið svona hluti á svona sársaukafullum tíma- punkti, grunar mig að það tómlega og tilgangssnauða líf sem þið lifið sé nú þegar nógu mikið helvíti fyrir ykkur.“ Þetta er auðvitað mjög fágað og þroskað miðað við hina íslensku umræðu. Eða hvað? onundur@mbl.is Önundur Páll Ragnarsson Pistill Nei, þú ert djöfullinn! STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Eftir Andra Karl andri@mbl.is N ýtt ákvæði í skattalög- um um skattlagningu arðs gerir það að verkum að margir sjá hag sínum betur borg- ið í samlagsfélagi eða sameign- arfélagi heldur en einkahlutafélagi. Fyrrnefndu rekstrarformin bjóða upp á léttbærari skattlagningu á hagnað fyrirtækja og félaga og við núverandi aðstæður má nánast ganga svo langt að segja einkahlutafélagið ónýtt rekstrarform þegar um er að ræða fáa hluthafa. Sýslumenn sjá um skráningar á stofnun samlagsfélaga og sameignar- félaga. Þegar í lok síðasta árs mátti greina töluverða aukningu á skrán- ingu slíkra félaga og sama þróun hef- ur einkennt fyrstu tuttugu daga þessa árs. Mest hefur fjölgunin orðið í Reykjavík. Nær ekki til Suðurnesja Hjá sýslumanninum í Reykjavík fengust þær upplýsingar að aðallega hefði orðið sprenging í stofnun sam- lagsfélaga. Á árinu 2008 voru 45 sam- lagsfélög stofnuð og 12 sameign- arfélög. Á árinu 2009 voru stofnuð samlagsfélög hins vegar 82 en þar af voru 40 félög skráð á síðustu fjórum dögum ársins. Þá voru 20 sameignar- félög stofnuð á síðasta ári. Það sem af er árinu 2010 hafa 25 ný samlagsfélög verið stofnuð og fimm sameignarfélög. Þróunin er hins veg- ar ekki jafn skörp hjá öðrum emb- ættum. Í Hafnarfirði voru 33 sam- lagsfélög eða sameignarfélög stofnuð á síðasta ári. Sex félög hafa verið stofnuð á fyrstu dögum þessa árs en það er rétt tæplega helmingi færri fé- lög en allt árið 2008 þegar fjórtán slík félög voru skráð. Þessi bylgja virðist þó ekki hafa náð til Suðurnesja eða Kópavogs. Hjá sýslumanninum í Keflavík voru þrjú samlagsfélög eða sameignarfélög stofnuð á árinu 2008, fjögur árið 2009 og eitt samlagsfélag það sem af er ári. Í Kópavogi voru sextán félög skráð 2008, fimmtán á síðasta ári og fimm það sem af er mánuði. Einkahlutafélag ber ábyrgðina Eigendur sameignarfélags ábyrgj- ast allir sem einn, með öllum eigum sínum, skuldir félagsins. Ábyrgðin er bein, óskipt og ótakmörkuð. Í sam- lagsfélögum ber hins vegar að minnsta kosti einn aðili ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Aðrir bera takmarkaða ábyrgð miðað við framlagt stofnfé. Skýringin á því hvers vegna færri hafa stofnað samlagsfélög og sam- eignarfélög hingað til er hin ótak- markaða ábyrgð félagsmanna. Menn leysa það í dag með því að stofna einkahlutafélag sem látið er bera hina ótakmörkuðu ábyrgð og eru eigendur þess svo einnig stofnendur í félaginu en bera einungis takmarkaða ábyrgð. Þar sem eigendur einkahlutafélaga bera takmarkaða ábyrgð ber í raun enginn fulla persónulega ábyrgð á skuldbindingum samlagsfélagins. Allar eignir einkahlutafélagsins standa þó að sjálfsögðu að baki ótak- mörkuðu ábyrgðinni og renna upp í skuldir samlagsfélagsins sé það tekið til gjaldþrotaskipta. Morgunblaðið/Golli Rekstur Sífellt fleiri sjá sér í hag í því að stofna samlagsfélög eða sameign- arfélög, í kjölfar breytinga á skattalögum sem tóku gildi um áramót. Komast undan persónulegri ábyrgð Breytingar á skattalögum sem tóku gildi um áramót hafa orðið til þess að samlagsfélögum fjölg- ar ört. Fjölgunin er þó að mestu bundin við höfuðborgina, en á því eru ekki einhlítar skýringar. Hvað er samlagsfélag? Samlagsfélag er blanda af sam- eignarfélagi og hlutafélagi. Að minnsta kosti einn aðili ber ótak- markaða ábyrgð á skuldbind- ingum félagsins. Aðrir bera tak- markaða ábyrgð sem miðuð er við tiltekna fjárhæð eða hlutfall. Sam- lagsfélög eru skammstöfuð slf. Um tilkynningu samlagsfélags gildir hið sama og um tilkynningu sameignarfélags. Hvað er sameignarfélag? Sameignarfélag er samstarfsform sem byggist á samningi tveggja eða fleiri aðila um sameiginlega fjárhagslega starfsemi, þar sem allir félagsmenn bera beina, óskipta og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Um sameignarfélög gilda engin sér- stök lög en víða í löggjöfinni er að finna ýmis ákvæði. Tvö tekju- skattsþrep gilda um sameignar- félög. Sameignarfélög eru skammstöfuð sf. Sameignarfélag á að skrá hjá sýslumanni viðkomandi umdæm- is. Félagið þarf kennitölu og út- hlutar ríkisskattstjóri henni gegn framvísun skráningarkvittunar frá sýslumanni. S&S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.