Morgunblaðið - 20.01.2010, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
Plastklæddur Styttan af Jesú Kristi í Hallgrímskirkju er pökkuð inn í plast þessa dagana vegna framkvæmda í kirkjunni innandyra. En kristindómurinn hefur kennt manninum að það eru ekki
umbúðirnar sem skipta máli heldur innihaldið. Neysluæði síðustu ára ætti að hafa sýnt mannfólkinu fram á þá staðreynd. Andi Jesú Krists fylgist áfram vel með, klæddur í plast eða ekki.
Ómar
Prag | Á jóladag á síðasta ári var
einn þekktasti mannréttinda-
frömuður Kína, rithöfundurinn og
háskólaprófessorinn Liu Xiaobo,
dæmdur í ellefu ára fangelsi. Liu
er einn af helstu höfundum Chart-
er 08, áskorunar, sem á sér fyrir-
mynd í Charter 77 í Tékkó-
slóvakíu. Þar eru kínversk
stjórnvöld hvött til þess að fylgja
eigin lögum og stjórnarskrá og
þess krafist að opinberir ráðamenn
verði kosnir opinni kosningu, trú-
og tjáningarfrelsi verði virt og
„undirróðurslögin“ afnumin.
Liu á skilið að fá friðarverðlaun
Nóbels 2010 fyrir hugrekki sitt og
skýra hugsun. Tvær ástæður eru
fyrir því að við teljum að Liu yrði
verðugur handhafi þessara merku
verðlauna.
Fyrst og fremst ber að gæta
þess að hann fetar í fótspor hand-
hafa friðarverðlauna Nóbels sem
hafa fengið viðurkenningu fyrir
framlag sitt til baráttunnar fyrir
mannréttindum. Nóbelshafar á
borð við Martin Luther King,
Lech Walesa og Aung San Suu
Kyi eru aðeins nokkur dæmi um
þá fjölmörgu sem nóbelsnefndin
hefur veitt viðurkenningu fyrr á
árum.
Háleitustu markmið
mannkyns
Við erum sannfærðir um að þær
hugmyndir, sem Liu og félagar
hans settu á blað í desember 2008,
eru bæði algildar og óbundnar í
tíma. Þessar hugsjónir – virðing
fyrir mannréttindum og mannlegri
reisn og ábyrgð borgara á að
tryggja að ríkisstjórnir þeirra virði
þessi réttindi – eru dæmi um há-
leitustu markmið mannkyns.
Ákveði nóbelsnefndin að heiðra
hugrekki Lius og fórnir við að
setja þessar hugmyndir fram
myndi það ekki aðeins draga at-
hygli heimsins að óréttlæti 11 ára
fangelsisdóms hans. Það myndi
einnig hjálpa til við að efla innan
Kína þau algildu og mannúðlegu
gildi, sem Liu hefur barist fyrir
stóran hluta ævi sinnar.
Önnur ástæðan fyrir því að Liu á
friðarverðlaun Nóbels skilin er
upprunalegur tilgangur Alfreds
Nóbels með verðlaununum. Með
því að vinna að auknum mannrétt-
indum, pólitískum umbótum og
auknu lýðræði í Kína hefur Liu
lagt mikið af mörkum til friðar og
bræðralags meðal þjóða heims og
það hafði Nóbel í huga þegar hann
bjó verðlaunin til fyrir rúmri öld.
Auðvitað tryggir lýðræðisvæðing
ekki sjálfkrafa betri hegðun í
heimsmálum. En hún greiðir fyrir
rækilegri og aðgangsharðri um-
ræðu um lykilatriði í utanríkis- og
innanríkisstefnu ríkis. Slíkt samtal,
virkt og leitandi, er einkenni lýð-
ræðisríkis og gefur bestar vonir til
að ríkisstjórnir taki betri ákvarð-
anir, bæði heima og erlendis.
Krefst viðbragða
Markmið Lius með málflutningi
sínum í þágu lýðræðis í Kína er
fyrst og fremst að bæta hlutskipti
Kínverja. En hugrekki hans og for-
dæmi gæti flýtt fyrir dögun þess
dags þegar sérþekking og aðhald
hópa innan hins siðmenntaða sam-
félags og sjálfstæðir fjölmiðlar geta
átt þátt í að móta hegðun Kína á
alþjóðlegum vettvangi og virkir
borgarar geta sagt hug sinn í kjör-
klefanum.
Það er einkum af þessum ástæð-
um sem við teljum að Liu yrði
verðugur handhafi nóbelsverð-
launanna 2010. Með því að veita
Liu einn helsta heiður heimsins
myndi nefndin á ný gefa merki um
mikilvægi mannréttinda og lýðræð-
is annars vegar og alþjóðlegrar
samstöðu hins vegar.
Harður fangelsisdómurinn yfir
Liu á að vera fordæmi, víti til varn-
aðar öðrum Kínverjum, sem kynnu
að vilja feta í fótspor hans. Við er-
um sannfærðir um að það koma
augnablik þar sem viðbrögð við
fyrirmyndar framtaki í þágu borg-
aranna á borð við framgöngu Lius
þurfa að vera til fyrirmyndar. Frið-
arverðlaun Nóbels eru einmitt þau
verðlaun sem hugrekki hans á skil-
ið.
Eftir Václav Havel, Dalai
Lama, André Glucksmann,
Vartan Gregorian, Mike Moore,
Karel Schwarzenberg, Des-
mond Tutu og Grígorí Javlinskí
» Þessar hugsjónir –
virðing fyrir mann-
réttindum og mannlegri
reisn og ábyrgð borgara
á að tryggja að ríkis-
stjórnir þeirra virði
þessi réttindi – eru
dæmi um háleitustu
markmið mannkyns.
Andófsmaðurinn Liu Xiaobo var
um jólin dæmdur í 11 ára fangelsi í
Kína fyrir skoðanir sínar.
Václav Havel er fyrrverandi forseti
Tékklands, Dalai Lama er andlegur
leiðtogi tíbesks búddisma, André
Glucksmann er heimspekingur, Vart-
an Gregorian er forseti Carnegie-
félagsins í New York, Mike Moore er
fyrrverandi stjórnandi Heimsvið-
skiptasamtakanna (WTO), Karel
Schwarzenberg er fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Tékklands, Desmond
Tutu er handhafi friðarverðlauna
Nóbels, Grígorí Javlinskí er fyrrver-
andi formaður Jabloko, hins samein-
aða lýðræðisflokks Rússlands.
© Project Syndicate, 2010,
www.project-syndicate.org
Reuters
Áskorun Václav Havel, fyrrverandi andófsmaður og síðar forseti Tékk-
lands, stingur áskorun til kínverskra stjórnvalda vegna fangelsunar and-
ófsmannsins Liu Xiaobo inn um lúgu kínverska sendiráðsins í Prag.
Kínverskur málsvari friðar og frelsis