Morgunblaðið - 20.01.2010, Qupperneq 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
sem sjálfsagt hefi þráð þá ást og um-
hyggju sem hún gaf mér strax frá
okkar fyrstu kynnum. Áfallið sem síð-
ar kom þegar faðir minn fórst af slys-
förum og hún gekk með systur mína
varð þungbært okkur báðum, en batt
okkur sterkum böndum sem dugað
hafa ævina á enda.
Margs er að minnast frá liðnum
dögum. Fyrst úr bókabúðinni á
Laugavegi 12. Síðan allar heimsóknir
á Barónsstíginn og síðar þegar Dísa
gifti sig, vináttan við Halla, sem var
mér alla tíð einstaklega góður og um-
hyggjusamur. Síðar vinátta barna
þeirra Dísu og Halla.
Elsku Dísa mín:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Stefán V. Skaftason.
Elsku besta amma mín, ég trúi nú
varla að þú sért farin frá mér. Við sem
áttum svo skemmtilegar stundir sam-
an. Ég man alltaf eftir þegar ég gisti
hjá þér þegar ég var yngri og á
morgnana löbbuðum við alltaf saman
út í búð. Þú áttir líka alltaf eitthvað
gott til að borða og ég man líka þegar
þú bauðst mér, mömmu, pabba og
Þórhildi í mogunkaffi um helgar í
heitt súkkulaði og meðlæti sem þú
varst kannski búin að baka.
Ég man líka svo vel eftir því þegar
þú varst í heimsókn hjá okkur eða að
passa okkur, þá varstu alltaf strauj-
andi allt og bjóst alltaf svo vel um
rúmin okkar og varst meira að segja
búin að strauja náttfötin okkar, brjóta
þau saman og setja þau fallega undir
koddann. En núna amma mín þarf ég
víst að kveðja þig og það er sárt.
Minningarnar um þig geymi ég hjá
mér, þín verður sárt saknað. Hvíldu í
friði elsku besta amma mín.
Þorgerður.
Elsku amma mín.
Ég sakna þín rosalega mikið. Ég
vona að þér líði vel hjá öllum á himna-
ríki og ég man þegar þú varst svo
hraust og sterk. Daginn sem þú fórst
frá okkur sá ég pabba gráta í fyrsta
sinn og ég veit að allir sem þú hefur
kynnst í þínu lífi sakna þín. Ég man
þegar við áttum heima í Goðaborgum,
þá komstu alltaf með strætó og þegar
ég var búin í sturtu þá greiddir þú
alltaf hárið á mér svo vel að allar
flækjurnar í því hurfu. En svo fékkstu
þennan sjúkdóm, þá fluttist þú á milli
spítala og að lokum fórstu á hjúkr-
unarheimilið Skógarbæ. En pabbi
segir að líkaminn sé bara hylki sem
við erum föst í þangað til stundin
rennur upp. Ég vona að jarðarförin
verði eins falleg og hægt er, ég ætla
að setja engil hjá þér í kistulagning-
unni þinni, þú færð rosa fallega kistu.
Hvíldu í friði elsku amma mín.
Þórhildur.
Elsku besta amma mín.
Þær eru ótal margar minningarnar
sem við eigum saman og ég mun alltaf
geyma þær innst í hjarta mínu. Vin-
konur mínar höfðu oft orð á því hvað
þú værir einstaklega ljúf, glaðlynd og
góð amma og það varstu svo sann-
arlega.
Mér er minnisstætt atvik sem átti
sér stað einhvern tímann síðastliðið
vor, þegar ég var að keyra þig heim
eftir að þú hafðir verið í sunnudags-
mat hjá okkur. Vinkona mín var með í
bílnum og við gátum vart varist hlátri
þegar þú fórst að syngja fyrir okkur
lag um leiðina heim til þín. Við hlóg-
um svo allar saman í kór.
Við brottför þína er sorgin sár
af söknuði hjörtun blæða.
En horft skal í gegnum tregatár
í tilbeiðslu á Drottin hæða.
og fela honum um ævi ár
undina dýpstu að græða.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Elsku amma mín,
þín verður sárt saknað.
Þín
Kristjana.
Okkur systurnar langaði að minn-
ast elskulegrar ömmu okkar með
nokkrum orðum. Þar sem við bjugg-
um alltaf svo langt í burtu var til-
hlökkunin mikil þegar við áttum að
koma í heimsókn til Íslands. Amma
Dísa tók alltaf svo vel á móti okkur og
vildi allt fyrir okkur gera. Við erum
mjög þakklátar fyrir að hafa getað
hist í desember síðastliðnum og átt
saman góðar stundir.
Elsku amma, takk fyrir að vera
svona hlý og yndisleg.
Linda og Þórdís.
Elskulega amma Dísa hefur nú
kvatt okkur. Það gerði hún þriðjudag-
inn 12. janúar sl. eftir langt og farsælt
líf. Því lauk með stuttri sjúkdómslegu
á dvalarheimilinu Skógarbæ. Það er
skrítið að amma sé farin, því það er
stutt síðan hún var ern og sinnti
áhugamálum sínum af krafti. Hún
hugsaði vel um heilsuna, var lipur,
hraust, þróttmikil og líkamlega vel á
sig komin. Amma fór t.a.m. nær dag-
lega í gönguferðir og kom ósjaldan
við í Bakkaselinu þegar við bræðurnir
bjuggum þar. Þá passaði hún okkur
bræðurna oft ef foreldrar okkar
þurftu að bregða sér burt og sá mynd-
arlega um heimilishaldið á meðan.
Sjálf átti amma fallegt heimili, var
skipulögð og vildi hafa fínt í kringum
sig. Hún var mikil félagsvera, var fljót
að eignast vini, vinsæl og hugsaði
ávallt vel um þá sem henni þótti vænt
um og stóðu henni næst. Hún var
meðlimur í Alþjóða Sam-frímúr-
arareglunni, stundaði félagsstarf
eldri borgara og söng í Gerðubergs-
kórnum um árabil. Amma hafði gott
skopskyn, var ávallt glaðleg í fram-
komu og hún hafði góða nærveru. Það
var gott að vera með henni, hún var
hjartahlý, við nutum þess að vera með
henni og hún með fjölskyldu sinni.
Það sáum við glögglega þegar við fór-
um með henni á æskuslóðir hennar í
Haukadal og á ættarmót í Dýrafjörð-
inn í tvígang fyrir nokkrum árum.
Við bræðurnir viljum nú að leiðar-
lokum kveðja góða ömmu hinstu
kveðju og eftir stendur söknuður en
margar og góðar minningar. Góðar
minningar um elskulega ömmu veita
okkur gleði og huggun.
Vort líf er svo ríkt af ljóssins þrá,
að lokkar oss himins sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvína,
er hrynjandi geislar skína.
Vor sál er svo rík af trausti og trú,
að trauðla mun bregðast huggun sú,
þó ævin sem elding þjóti,
guðs eilífð blasir oss móti.
Vort hjarta er svo ríkt af hreinni ást,
að hugir í gegnum dauðann sjást.
– Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur – síðar.
(Jóhannes úr Kötlum)
Hjartans kveðja elsku amma.
Haraldur Ágúst Sigurðsson,
Magnús Sigurðsson,
Einar Þór Sigurðsson.
„Hún minnti mig á mömmu þína
eða allar okkar móðursystur þar sem
hún lá liðin,“ sagði Munda frænka
þegar hún sagði mér lát systur sinn-
ar, Þórdísar. Í hug mér komu orð eins
og „blóð er þykkara en vatn“ og að-
eins „fjórðungi bregður til fósturs“.
Hversu römm er ekki sú taug sem
bindur ættingja „ef það bíður að
verða vel“. Fámenni þjóðar okkar
undirstrikar þetta.
Dísa var elsta lifandi barn Jóu,
móðursystur minnar, og Leifa. Fjöl-
skyldan fluttist suður vegna veikinda
Leifa fyrir mitt minni þannig að ég
kynntist Dísu fyrir alvöru fyrst þegar
ég var fullorðin, sem vinkona dóttur
hennar, Sjafnar, og sem systur í
Samfrímúrarareglunni. Fyrir mér er
hún æ síðan ein vandaðasta mann-
eskja sem ég hef kynnst. Alltaf var
Dísa þó nálæg og þau systkinin Dísa
og Nonni nefnd í sömu andrá á Vé-
steinsholti fyrir margt löngu. Amma
okkar og afi bjuggu hjá okkur og
Munda þar jafnan í sumardvöl.
Tengslin við stóran hóp ættingja
syðra meiri en ella vegna þess að afi
og amma voru miðdepill fjölskyldunn-
ar. Þau eignuðust 13 börn og frá þeim
er mikill ættbogi kominn þar sem
frændrækni er í fyrirrúmi.
Dísa frænka var vel af Guði gerð.
Hún var vönduð manneskja, þraut-
seig, æðrulaus, vinföst, glaðsinna en
föst fyrir. Með slíkt veganesti eru allir
vegir færir en mér er vel ljóst að ver-
öldin dillaði Dísu ekki ævinlega en
hún var þeirrar gerðar að hún stóð
erfiðleika af sér. Ekki síst sást þetta í
veikindum hennar á síðasta ári þegar
í ljós kom krabbamein til viðbótar al-
varlegum minnisglöpum sem höfðu
gert vart við sig. Eftir það dvaldi Dísa
á sjúkrastofnunum, sagðist sætta sig
við orðinn hlut, hún hefði skilað sínu,
allir væru sér góðir og nú ætlaði hún
að vera „heldri“ kona. Hafði farið á
sjúkrahús til rannsóknar en komst
aldrei aftur heim til dvalar. Ég undr-
aðist æðruleysi hennar því þrátt fyrir
minnistapið, sem stundum var aug-
ljóst, má segja að Dísa hafi haldið
reisn sinni til hinstu stundar.
Er hugsanlegt að þegar ellin herjar
á og einstaklingurinn tekur breyting-
um þá gægist hinn innri maður aug-
ljósar fram? Bjarni Thorarensen er
þeirrar skoðunar þegar hann segir:
Því þá fatið fyrnist,
fellur það betur að limum
og lætur skýrar í ljósi
lögun hins innra.
Þegar frænku minni fór að förlast
varð gleði, góðvild og einlægni enn
frekar áberandi í fari hennar. Kær-
leikur og þakklæti streymdu frá
henni til fjölskyldu og vina. Börn Dísu
og barnabörn áttu hug hennar og
hjarta og var unun að sjá hversu vel
þau hlúðu að henni, ekki síst seinasta
spölinn þegar heilsuleysið knúði dyra.
Hún gladdist yfir velgengni þeirra,
hafði áreiðanlega sjálf þurft að kæfa
ýmsar langanir því að á hennar yngri
árum buðu aðstæðurnar ekki upp á
nám eða ástundun ýmissa hugðar-
efna.
Í Samfrímúrarareglunni undi Dísa
hag sínum vel uns heyrnardeyfa
hamlaði henni að njóta funda sem
skyldi. Hún var góð systir, elskuð af
systkinum sínum í stúkunni Baldri
sem nú þakka samfylgdina, varðveita
minningarnar og biðja henni farar-
heilla inn í ljósið.
Kristín Jónsdóttir.
Minningar á mbl.is
Elva Björg
Egilsdóttir
Höfundar: Ólöf Dís, Birgir, Ari
og Björn Hinrik.
Grímur Bjarni
Bjarnason
Höfundar: Sigurgeir Sig-
urpálsson, Signý Björg Sig-
urjónsdóttir, Salný Kaja, Sólný
Inga og Sigurpáll Valmar.
Gunnar Hallur
Jakobsson
Höfundar: Hildur Gunn-
arsdóttir og fjölskylda.
Halldór Bjarnason
Höfundar: Stjórn Félags um
átjándu aldar fræði.
Kristinn Freyr
Arason
Höfundar: Elías og fjölskylda.
Sigurður Guð-
mundsson vígslu-
biskup
Höfundur: Baldur
Kristjánsson.
Meira: mbl.is/minningar
Bridsfélag Kópavogs
Fimmtudaginn 14. janúar var
spilað annað kvöldið í þriggja
kvölda tvímenningi hjá félaginu.
Guðmundur Pétursson og Sigur-
jón Þór Tryggvason tóku hörku-
skor um kvöldið og söxuðu veru-
lega á efsta parið.
Úrslit kvöldsins urðu þessi.
n-s
Guðm. Péturss. – Sigurjón Tryggvas.
67,1%
Birna Stefnisd. – Aðalst. Steinþórss.
60,9%
Sigurður Sigurjóns. – Ragnar Björnss.
58,6%
Árni Björnss – Heimir Tryggvas 56,5%
a-v
Gísli Tryggvason – Leifur Kristjánss.
61,3%
Guðlaugur Bessas. – Jón St. Ingólfss.
60,2%
Baldur Bjartmars.– Jóhannes Bjarnas.
59,3%
Skúli Sigurðsson – Vigdís Sigurjónsd.
51,2%
Staðan er þessi eftir tvö kvöld.
Sig. Sigurjónss.– Ragnar Björnss. 58,9%
Guðm. Péturss. – Sigurjón Tryggvas.
58,6%
Guðlaugur Bessas. – Jón St. Ingólfss.
58,3%
Skúli Sigurðss. – Vigdís Sigurjónsd.
58,2%
Gísli Tryggvas. – Leifur Kristjánss.
57,9%
Keppnin heldur áfram fimmtu-
daginn 21. janúar. Spilamennska
hefst stundvíslega klukkan 19.
Spilað er í félagsheimilinu Gjá-
bakka í Hamraborginni
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 15. janúar var spil-
að á 14 borðum. Meðalskor var
312. Úrslit urðu þessi í N/S:
Magnús Oddss. – Oliver Kristófersson
375
Ragnar Björnsson – Pétur Antonsson 356
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 347
Jón Hallgrímsson – Jón Lárusson 347
A/V
Guðrún Gestsd. – Bragi V. Björnsson 399
Knútur Björnss. – Birgir Sigurðsson 380
Bragi Björnss. – Bjarnar Ingimarsson
347
Óli Gíslason – Sverrir Jónsson 341
Sigurjón Harðarson og
Haukur Árnason
Reykjanesmeistarar
Reykjanesmót í tvímenningi
var háð laugardaginn 16. janúar á
Mánagrund með þátttöku 20 para.
Karl G. Karlsson og Símon Sím-
onarson skutust á toppinn eftir
síðustu setu, eftir að Jón Steinar
og Guðlaugur höfðu leitt mótið
nánast allan tímann. En þar sem
Símon er í félagi utan Reykjaness
gátu þeir félagar ekki orðið
Reykjanesmeistarar og því urðu
þeir Sigurjón Harðarson og
Haukur Árnason Reykjanes-
meistarar í tvímenningi 2010 með
minnsta mun, slík var spennan, en
þeir skutust líka þangað á loka-
sprettinum.
Röð efstu para:
Karl G. Karlss. – Símon Símonarson
56,8%
Haukur Árnas. – Sigurjón Harðarson
55,8%
Kristín Þórarinsd. – Loftur Pétursson
55,7%
Guðlaugur Bessas. – Jón St. Ingólfss.
55,7%
Sigurj. Ingibjörnss. – Oddur Hanness.
54,5%
Brynjar Jónsson – Ingvar Hilmarss.
52,9%
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, fimmtud. 14.
jan. Spilað var á 12 borðum.
Meðalskor 216 stig. Árangur
N-S:
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnss. 261
Ásgrímur Aðalstss. - Jón Hallgrímss. 247
Jón Þór Karlss. - Birgir Sigurðss. 239
Björn Svavarss. - Jóhannes Guðmannss.
235
Árangur A-V:
Þorsteinn Sveinss. - Matthías Helgas.
255
Friðrik Jónss. - Tómas Sigurjónss. 238
Magnús Ingólfss. - Guðbjörn Axelss. 236
Sigurður Tómasson - Guðjón Eyjólfss.
230
Tvímenningsseppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, mánud. 18.
jan. Spilað var á 13 borðum. Með-
alskor: 312 stig. Árangur N - S:
Ólafur B Theodórs - Björn E Péturss. 382
Ólafur Gíslason - Guðm. Sigurjónss. 359
Ingibj. Stefánsd. - Margrét Margeirsd.
354
Svava Ásgeirsd. - Þorvaldur Matthíass.
331
Árangur A - V:
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 392
Oddur Halldórsson - Oddur Jónsson 390
Ægir Ferdinandss. - Þröstur Sveinss. 383
Helgi Hallgrímsson - Jón Hallgrímss.
382
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Sveit Maríu Haraldsdóttur
vann tvo góða sigra á fjórða kvöldi
aðalsveitakeppninnar og hefur nú
23 stiga forystu.
Efstu sveitir:
161 María Haraldsdóttir
138 Guðlaugur Bessason
137 Guðlaugur Sveinsson
131 Högni Friðþjófsson
127 Tölvustoð
Næsta mánudag, 25. janúar,
verður spilaður einn leikur og
stuttur tvímenningur seinni hluta
kvölds þar sem verður keppnis-
gjald á tvímenning Bridshátíðar í
verðlaun. Ekki verður spilað
mánudaginn eftir Bridshátíð.
Gullsmárinn
Spilað var á 14 borðum í Gull-
smára mánudaginn 18. janúar.
Úrslit í N/S:
Stefán Friðbjs. – Viðar Valdimarss. 330
Leifur Jóhanness. – Guðm. Magnúss. 324
Dóra Friðleifsd. – Heiður Gestsd. 300
Örn Einarsson – Jens Karlsson 290
A/V
Sigurður Njálss. – Pétur Jónsson 323
Þorsteinn Laufdal – Jón Stefánss. 320
Guðbjörg Gíslad. – Sigurður Sigurðsson
312
Magnús Hjartars. – Narfi Hjartars. 299
Elís Kristjánss. – Páll Ólason 299
Keppnin
um Súgfirðingaskálina
Önnur lota í Súgfirðingaskál-
inni, tvímenningsmóti Súgfirð-
ingafélagsins, var spiluð á mánu-
daginn. Fimmtán pör mættu til
leiks. Voru nokkrar sviptingar á
stöðu para milli lotna. Þrjár lotur
eru eftir í keppninni og gilda fjög-
ur bestu til verðlauna. Meðalskor
eftir tvær lotur er 360 stig.
Björn Guðbjörnss. – Gunnar Ármannss.
395
Hlynur Antonsson – Auðunn Guðmss. 388
Einar Ólafss. – Þorsteinn Þorsteinss. 383
Guðbj. Björnss. – Steinþór Benediktss.
378
Valdimar Ólafss. – Karl Bjarnason 375
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd.
374
Úrslit í 2. lotu urðu þessi, með-
alskor 180 stig:
Einar Ólafss. – Þorsteinn Þorsteinsson
224
Björn Guðbjörnss. – Gunnar Ármannss.
202
Hlynur Antonsson – Auðunn Guðmss. 195
Valdimar Ólafss. – Karl Bjarnason 193
Næsta lota, sú þriðja, verður
spiluð mánudaginn 22. febrúar.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 17/1 var fyrsta
kvöld í fjögra kvölda tvímennings-
keppni. Spilað var á 12 borðum.
Hæsta skor kvöldsins í N/S.
Haukur Guðbjartsson – Karl Karlsson
259
Kristín Andrews – Jón Þór Karlsson 258
Sveinn Sveinsson – Gunnar Guðmss.243
Austur/Vestur
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss.
284
Þorleifur Þórarinss. – Haraldur Sverriss.
262
Birgir Kristjánsson – Jón Jóhannss. 239
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is