Morgunblaðið - 20.01.2010, Page 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
KOMINN TÍMI
TIL AÐ ÞURRKA AF
ER STRAX
KOMINN
JANÚAR?
...OG VIÐ
SUNGUM,
OG VIÐ
MÁLUÐUM
OG VIÐ HLUSTUÐUM Á
SÖGUR, OG VIÐ LITUÐUM Í
LITABÆKUR, OG VIÐ
HVÍLDUM OKKUR...
DAGURINN VAR
ÆÐISLEGUR!
ÖLL BÖRN ÆTTU
AÐ FARA Í LEIKSKÓLA!
TRÚÐU MÉR, ÞAÐ ER ÁKVEÐIN LEIÐ TIL
AÐ VERA HAMINGJUSAMLEGA GIFT!
OG EF ÉG KEMST AÐ
ÞVÍ HVER HÚN ER...
ÞÁ
SKAL ÉG
LÁTA ÞIG
VITA
HANN VILL
TALA VIÐ
DOLLÝ
LALLI, VIÐ ERUM
LOKSINS EIN Á RÓMAN-
TÍSKU GISTIHEIMILI OG
ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ VILT
GERA ER AÐ ATHUGA
TÖLVUPÓSTINN ÞINN!
ÞETTA
TEKUR ENGA
STUND!
MÁLIÐ ER AÐ VIÐ HÖFUM
LOKSINS TÍMA FYRIR OKKUR
TVÖ! AF HVERJU GASTU EKKI
BARA SKILIÐ SÍMANN ÞINN
EFTIR HEIMA?
HVAÐ ERTU AÐ BULLA?
ÉG ER EKKI
AÐ BULLA!
VULTURE ER AÐ
SKRIFA SKILABOÐ TIL
KÓNGULÓARMANNSINS
Á HIMININN
HANN MÁ
AÐ MINNSTA
KOSTI EIGA
EITT...
HANN ER ÁGÆTUR
Í STAFSETNINGU
VULTURE SKORAR Á
KÓNGULÓARMANNINN AÐ
HITTA SIG Á HÁDEGI OFAN
Á CHRYSLER-BYGGINGUNNI
Mamma Gógó
algjör snilld!
FRIÐRIK Þór Frið-
riksson kvikmyndaleik-
stjóri hefur gert marg-
ar góðar kvikmyndir í
gegnum tíðina. Ég fór á
dögunum og sá nýjustu
mynd hans Mamma
Gógó. Þar er á ferðinni
mynd sem Íslendingar,
sem vilja sjá íslenska
framleiðslu eins og hún
gerist best, mega ekki
missa af. Það sem heill-
aði mig mest var leikur
Kristbjargar Kjeld,
Hilmis Snæs, Gunnars
Eyjólfssonar og leikara í minni hlut-
verkum. Tónlist Hilmars Arnar er
líka magnþrungin og undirstrikar til-
finningarnar í myndinni. Og ekki má
gleyma kvikmyndatöku Ara Krist-
inssonar, en þeir félagar eru snill-
ingar, hvor á sinn hátt, og klikka ekki
þegar þeir vinna saman.
Myndin fjallar um hinn óhugn-
anlega sjúkdóm alzheimer. Móðir
Friðriks fékk þennan sjúkdóm og er
myndin um þrautagöngu hennar og
fjölskyldunnar er hún
fer smám saman inn í
þetta algleymi. Einnig
er sögð saga Friðriks er
hann gerði myndina
Börn náttúrunnar, þar
sem hann lenti í gífur-
legum fjáhagserfið-
leikum við að koma
henni á hvíta tjaldið.
Einnig er skemmtilegt
hvernig Friðrik fléttar
inn í myndina atriðum
úr kvikmyndinni 79 af
stöðinni.
Minnisstæðast er at-
riðið þar sem Friðrik
þakkar móður sinni fyr-
ir það hvað hún hafi
reynst honum vel sem móðir, það at-
riði fær hörðustu karlmenn til að
þurka tárin, allavega gerði ég það.
Ég skora á alla Íslendinga sem vilja
styrkja íslenska kvikmyndagerð (ekki
veitir af) að láta þessa frábæru mynd
ekki framhjá sér fara. Takk fyrir mig!
Magnús Ólafsson, Hafnarfirði.
Ást er…
… að þora að sýna þig
eins og þú ert.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikf. kl. 8.30, postulín
kl. 9, Grandabíó, kvikmyndakl., út-
skurð./postulín kl. 13. Skrán. í leikhús
23. jan.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, handav./
smíði/útsk. kl. 9, heilsug.kl. 10, söng-
stund kl. 11.
Bólstaðarhlíð 43 | Glerlist, brids/vist.
Bústaðakirkja | Samvera kl. 13, hand-
av., spil, spjall og kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnust. kl. 9, leikf. kl.
10, verslunarferð kl. 14.40.
Dalbraut 27 | Handav.st. kl. 8, vefn. kl.
9, leikf. kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-Hrólfar kl. 10, söngvaka kl. 14,
söngfél. FEB æf. kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.30/10.30, glerl. kl. 9.30. Sala á þorra-
blóti kl. 10. Félagsv. kl. 13, viðtalst. FEBK
kl. 15, bobb kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndl.
kl. 9, ganga kl. 10, leikf. kl. 12.45, postu-
lín./kvennabrids kl. 13, Sturlunga kl. 16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikf. kl. 8 og 9, kvennal.f. kl. 9.45/
10.30/11.15, brids/bútas. kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnust. kl. 9,
handav./tréútsk., vatnsleikf. kl. 9.50,
leikf. kl. 10.30, spilasalur op. f. hád. Á
morgun kl. 7.30 pottakaffi í Breiðholts-
sundlaug.
Grensáskirkja | Samverust. í safn-
aðarheimilinu kl. 14.
Háteigskirkja | Brids í Setrinu kl. 13,
komið saman um kl. 10, kl. 11 er bæna-
guðsþjónusta, brids kl. 13 og kaffi.
Hraunbær 105 | Hjúkrunarfr. og handa-
vinna kl. 9, útsk., matur og kaffi.
Hraunsel | Rabb kl. 9, pútt, bókm./
söguklúbb. kl. 10, línud. kl. 11, handav.
/útsk. kl. 13, bingó kl. 13.30, Gaflarakór-
inn kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/9.30/
10.30, vinnust. kl. 9, samvera kl. 10.30.
Hæðargarður 31 | Hringborð kl. 8.50,
Stefánsganga, postulín/handverk og
framsögn kl. 9. Hláturhóp. og ókeypis
ölvuleiðb. kl. 13, gáfumannakaffi kl. 15,
myndl.sýn. Geirharðs Þorsteins.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Kópa-
vogssk. kl. 15.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 10
keila í Keiluh. v/Öskjuhlíð og listasm. á
Korpúlfsst. kl. 13, gler-/tréútskurður.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfr. kl. 10.30, iðjustofa – glerm. kl.
13, laus sæti, myndlistarnámsk. kl. 13,
laust, kaffi.
Leshópur FEBK Gullsmára | Arngr. Ís-
berg les Sturlungu í Gullsmára kl. 16.
Neskirkja | Opið hús kl. 15. Ragnheiður
Sverrisd. talar um starf djáknans.
Norðurbrún 1 | Hljóðbók kl. 10.30, útsk.
kl. 9, félagsv. kl. 14.
Vesturgata 7 | Sund kl. 10, mynd-
mennt/postulín. kl. 9, Bónus kl. 12, tré-
sk. kl. 13, kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
handav.st. kl. 9, morgunst.
kl. 10, verslunarf. kl. 12.20, saga kl.
12.30, bókband kl. 9, dans kl. 14.
Hallmundur Kristinsson yrkir íléttum dúr:
Þótt ég sé stríðinn þá er ég nú ekki
alltaf með hrekki;
oftast er ljúfur við þá sem ég þekki
þó að ég drekki.
Til að fyrirbyggja misskilning
tekur hann það fram að síðasta
hendingin sé eingöngu rímsins
vegna! Og Jón Gissurarson var
fljótur að svara í kerskni:
Ég er ljúfur við landsins þegna,
er lykilstörfum hér gegna.
Við aðra er fár
og dreg að þeim dár,
en drekk bara rímsins vegna.
Kristján Runólfsson bregður upp
svipmynd af presti, Halldóru og
reiðtúr:
Ef sér maður Halldóru á hesti,
halda í langferð með nesti,
þá í lautu ég vil,
leggj́ana til,
því mér líður sem langstöðnum presti.
Björn Ingólfsson er fljótur að
barna limruna:
Karlmennskutökin ég kenni,
Kristjáns á Halldóru í Enni.
Í lautinni er far
eftir liggjandi par
þar sem messaði hann yfir henni.
Í Íslenskri fyndni er vísa eignuð
Tómasi Guðmundssyni undir yf-
irskriftinni Eftir loftárás:
Þú ert eins og eftir loft-
árás. Það er lýgi-
legt, en þú ert ennþá oft-
ast á fylliríi.
Jón Arnljótsson veltir fyrir sér
þjóðmálunum:
Áttu pening eftir jól?
Engin dugir voma.
Drífðu hann í skattaskjól,
„Skalli“ fer að koma.
Í vísnasafni Héraðsskjalasafns
Skagfirðinga má finna vísu eftir
Friðgeir H. Berg:
Meðan Hekla gamla gýs
gifta Íslands smækkar.
Meðan á skrokknum skríða lýs
skattana þingið hækkar.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af limrum og loftárás