Morgunblaðið - 22.01.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010
25-60%
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
NALÚT AS
ER Í FULLUM GANGI
AF VÖLDUM VÖRUM
YFIR 1000 VÖRUNÚMER Á LÆKKUÐU VERÐI
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
ÆTLUNIN er að samþykkja á hlut-
hafafundi fjárfestingafélagsins
Atorku í dag að afskrifa allt hlutafé
félagsins, sem í október fór fram á
nauðasamninga vegna erfiðrar
stöðu. Stærsti hluthafi og stjórnar-
formaður félagsins er Þorsteinn Vil-
helmsson, sem áður var kenndur við
útgerðarfyrirtækið Samherja. Tveir
stærstu eignarhlutar Atorku voru í
plastframleiðslufyrirtækinu Pro-
mens og orkufyrirtækinu Geysi
Green Energy.
Gert er ráð fyrir því að sögn Bene-
dikts Olgeirssonar, sem var forstjóri
Atorku fram að síðustu áramótum og
hefur síðan veitt stjórninni ráðgjöf
vegna nauðasamninganna, að minnst
40% fáist upp í kröfur. Það telur
hann þó afar varlegt mat, segir að fé-
lagið eigi ýmsar góðar eignir, ekki
síst erlendis í fyrirtækjum í ágætum
rekstri. Meðal stærstu kröfuhafa
Atorku eru NBI, Íslandsbanki og
ýmsir lífeyrissjóðir.
Hluthafar eru um 4.000. Kröfuhaf-
ar munu eignast félagið í samræmi
við kröfur sínar, síðan skrá þeir sig
fyrir nýju hlutafé. Þeir samþykktu
nauðasamninga í desember.
„Undirliggjandi eignir eru miklar
og hafa ekki brunnið niður í eins
stafs tölu eins og gerst hefur víða,“
segir Benedikt. „En efnahagsreikn-
ingurinn þoldi ekki þetta þrefalda
fall, það þolir enginn heimskreppu,
bankahrun og krónuhrun.“
Hluthafar Atorku tapa öllu
STAÐREYNDIR
»Atorka átti 41% eignarhlutí Geysi Green Energy og
tóku kröfuhafarnir þegar sæti
í stjórn GGE eftir að fallist var
á nauðasamningana.
»Um 95% kröfuhafa sam-þykktu á endanum nauða-
samningana í desember.
»Tap á rekstri Atorku var45 milljónir króna árið
2006 og 207 milljónir árið
2007.
Hlutafé afskrifað Kröfuhafar munu taka félagið yfir á hluthafafundi í dag og
skrá fyrir nýju hlutafé Gert er ráð fyrir að minnst 40% fáist upp í skuldirnar
Morgunblaðið/Kristinn
Atorka Hluthafar tapa öllu.
MIKIÐ rót var á sjónum í Reykjavíkurhöfn í gær, ljósin
vörpuðu dramatískri birtu á öldurnar í hviðunum en
smábátarnir létu sér fátt um finnast enda ýmsu vanir á
norðurslóðum. Vafalaust hafa margir eigendurnir
samt til vonar og vara farið niður á höfn til að huga að
því hvort bátarnir væru ekki örugglega vel bundnir.
Morgunblaðið/Golli
Kári ygglir brún og lemur sjóinn við Reykjavík
Særót í smábátahöfninni
KRÖFUR í
þrotabú Björg-
ólfs Guðmunds-
sonar nema um
101 milljarði
króna, en frestur
til að skila kröf-
um rann út 4.
janúar sl. Þetta
eru heldur meiri
skuldir en komu
fram þegar búið
var lýst gjaldþrota 4. maí á síðasta
ári, en þá voru skuldirnar taldar 96
milljarðar. Þessi mismunur skýrist
af nýrri kröfu sem Landsbankinn
gerði í búið. Skiptastjóri á eftir að
taka afstöðu til krafna í búið.
Sveinn Sveinsson, skiptastjóri
þrotabúsins, segir að ekkert liggi
enn fyrir um hversu miklar eignir
séu í búinu. Eitt af þeim félögum
sem Björgólfur átti er Bell Global
Investments sem er skráð á Kýpur,
en vonast er eftir að í því félagi séu
eignir. Félagið er bókhaldsskylt fé-
lag og hefur Björgólfur ávallt gert
grein fyrir því hjá skattayfir-
völdum á Íslandi. egol@mbl.is
Kröfur í þrotabú
Björgólfs nema 101
milljarði króna
Björgólfur
Guðmundsson
MIKILL viðbúnaður var af hálfu
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í
gærkvöldi eftir að tilkynning barst
um að eldur væri laus í húsi í Selja-
hverfi í Breiðholti. Eldurinn reynd-
ist vera í potti og var íbúi búinn að
slökkva eldinn þegar slökkviliðs-
menn komu á staðinn. Liðsmenn
allra stöðva voru ræstir út til að
byrja með en dregið var úr viðbún-
aði þegar í ljós kom að búið var að
slökkva eldinn.
Slökkviliðsmenn frá einni stöð
fóru á staðinn til að reykræsta.
Töluverður reykur myndaðist og
nokkurt tjón varð vegna þess. Eng-
an íbúa sakaði hins vegar.
Eldur út frá potti
MANNANAFNANEFND hafnaði
því, að taka karlmannsnafnið Háv-
arr á mannanafnaskrá á þeirri for-
sendu að það uppfyllti ekki skilyrði
laga um mannanöfn.
Í greinargerð nefndarinnar segir
m.a. að eiginnafnið Hávar sé á
mannanafnaskrá. Nafnið komi fyrir
í fornum heimildum með rithætt-
inum Hávarr en þá hafi verið gerður
sá greinarmunur að nefnifall endaði
á -rr en þolfallið og önnur föll í orð-
um af þessu tagi höfðu aðeins eitt r.
Þessi hljóðlega aðgreining sé löngu
horfin úr íslensku máli og nútíma-
stafsetning endurspegli hana ekki.
Karlmannsnafninu
Hávarr hafnað
„VIÐ reiknum með því að lenda í
Keflavík um eittleytið,“ sagði Hlyn-
ur Sigurðsson, fréttastjóri Mbl sjón-
varps, síðdegis í gær er hann og ljós-
myndari Morgunblaðsins ásamt
íslensku rústabjörgunarsveitinni
voru að stíga um borð í flugvélina á
Bahamaeyjum. „Stemningin í hópn-
um er betri en ég átti von á. Eftir það
sem þeir hafa séð átti ég von á að
mjög þungt væri í þeim hljóðið. En
svo er ekki, enda eru þetta náttúr-
lega vanir menn,“ bætti hann við.
Björgunarmennirnir, sem hafa
verið á Haítí síðan á miðvikudaginn í
síðustu viku, flugu frá Haítí til Ba-
hamaeyja enda þurfti vélin að taka
þar bensín.
Einn björgunarmannanna sem
Hlynur ræddi við í ferðinni segir
þetta erfiðustu björgunarferð sína til
þessa, en björgunarmaðurinn hefur
tvisvar áður farið utan í leiðangur í
kjölfar náttúruhamfara.
Fegnir að fá samlokur
„Þeir voru afar fegnir því að fá
samloku í flugvélinni á leiðinni frá
Haítí,“ sagði Hlynur en björgunar-
mennirnir hafa undanfarna daga
verið á fæði sem er sérstaklega útbú-
ið með það í huga að það taki sem
minnst pláss. „Þeir nutu gærkvölds-
ins einnig vel þar sem farið var á
steikarhlaðborð á hótelinu.“
Erfið ferð á enda
Björgunarsveitin
var væntanleg
heim í nótt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimleið Íslensku björgunarsveitarmennirnir skoða Morgunblaðið á flug-
vellinum á Bahamaeyjum í gær, á leið til Íslands eftir strembna ferð.
TALSVERT var um óveðursútköll
hjá björgunarsveitum á sunnan- og
vestanverðu landinu í gær vegna
óveðursins sem gekk yfir landið. Í
Keflavík var tilkynnt um að þakið
væri að fjúka af Officeraklúbbnum á
vallarsvæðinu, vinnuskúr fauk og
bátur slitnaði frá bryggju. Í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi var björgunar-
sveitin Sigurgeir kölluð út þegar
hlaða fauk.
Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík var kölluð út vegna foks í
bænum, einnig sveitirnar í Vest-
mannaeyjum, Hafnarfirði, á Hellu
og Patreksfirði. Gert var ráð fyrir að
veðrið myndi ganga niður þegar liði
á kvöldið og nóttina. Undir Eyjafjöll-
um fór vindur í 50 metra á sekúndu í
hviðum. Afar slæmt veður var um
hríð í Eyjum, vindur um 33 m/s og
mikil rigning. Sinnti björgunarfélag-
ið nokkrum aðstoðarbeiðnum. Raf-
magnslaust var um hríð í Höfnum á
Suðurnesjum eftir að tveir staurar í
háspennulínu skemmdust í rokinu.
Veðurstofa Íslands spáir að suð-
lægar áttir verði ríkjandi næstu
daga og að það verði vætusamt en þó
úrkomulítið norðanlands. Veður fer
kólnandi frá þriðjudegi. kjon@mbl.is
Rokið upp
í 50 m/s í
hviðum
Talsvert um útköll