Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 11

Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010 Tilb kr 379.000 DUX CLASSIC 2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard yfirdýna 180x200cm og fætur DUX VISTA CLASSIK PAKKI 2 DUX Classic 90x200cm/Xtandard yfirdýna 180x200cm/23cm fætur/ Vista höfuðgafl og Mathilda rykfaldur. Tilb kr 479.000 Ármúla 10 | sími: 5689950 | www.duxiana.com C GUNNSTEINN Sigurðsson, bæj- arstjóri í Kópavogi, og Gunnar Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferð- arstofu, hafa undirritað samstarfs- samning um öryggisáætlun fyrir Kópavogsbæ. Með samningnum hafa bæjar- félagið og Umferðarstofa tekið höndum saman um gerð áætlunar sem leiða á til aukins öryggis í um- ferðinni í bænum. Með því að virkja ýmsa hagsmunaaðila til þátttöku verður stefnt að fækkun óhappa og slysa í umferðinni. Umferðarstofa annast fræðslu meðal starfsmanna Kópavogsbæjar og aðstoðar við gerð áætlunarinnar. Undirritun Gunnar og Gunnsteinn. Öryggi í Kópavogi AÐALSTJÓRN Öryrkjabandalags Íslands mótmælir þeim skerðingum sem felast í því að aftengja lög er tryggja hækkun lífeyris miðað við vísitölu en halda verðtryggingu lána, sem hefur hækkað húsnæðis- kostnaðinn upp úr öllu valdi. Þá er mótmælt breytingu á lög- um sem gera Úrskurðarnefnd al- mannatrygginga kleift að beita að- fararhæfi gegn þeim er Trygginga- stofnun ríkisins telur sig hafa ofgreitt. Loks er mótmælt þeirri áráttu stjórnvalda að byrja ávallt á lífeyr- isþegum þegar þarf að draga sam- an seglin. Öryrkjabandalagið á móti skerðingu HÚMANISTAR á Haítí hafa opnað söfnunarsímann 901 5015. Húm- anistar hafa verið með öflugt starf á Haítí sl. 15 ár. M.a. verið með 200 skóla fyrir börn, kröftuga lestrar- kennslu fyrir fullorðna o.fl. Framundan er mikið verk, fyrst í stað að hjálpa þeim eftirlifandi með brýnustu nauðsynjar. Síðan þarf að hefjast handa á nýjan leik við upp- byggingu. „Vel er að mörg samtök hafa brugðist við, því hér þurfa margar hendur að koma að verki. Húmanistar leggja áherslu á að það fé sem safnast í gegnum þá fer nú sem endranær í verkefnin sjálf, því hjá húmanistum er engin yfir- bygging. Allt fé fer beint til fólksins á Haítí,“ segir í tilkynningu. Söfnun fyrir Haítí Í ÁR bárust alls 295 viðskipta- hugmyndir í frumkvöðla- keppni Innovit, Gulleggið 2010, og hafa aldrei verið jafnmargar hugmyndir send- ar inn. Hug- myndasmiðir munu fá aðstoð frá sérfræðingum Innovit og samstarfs- aðilum þess til að byggja upp full- mótaða viðskiptaáætlun. Þá munu tíu efstu viðskiptaáætlanirnar kom- ast áfram í lokahóf keppninnar hinn 10. apríl og keppa um Gulleggið. Heildarverðlaun í ár eru metin á meira en þrjár milljónir króna. Þá munu ýmis fyrirtæki bjóða upp á sérverðlaun til þátttakenda. 295 viðskiptahug- myndir bárust STUTT FÉLAG kvenna í atvinnurekstri (FKA) afhenti sínar árlegu við- urkenningar við hátíðlega athöfn í Perlunni í gær. FKA-viðurkenninguna hlaut Vil- borg Einarsdóttir, framkvæmda- stjóri Mentors. Hvatningarvið- urkenningu FKA hlaut Marín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Practical. Þakkarviðurkenningu FKA hlaut Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Jazzballettskóla Báru. Loks hlaut fyrirtækið Stigi gæfusporið 2010 fyrir að hafa skar- að fram úr við að virkja kraft kvenna innan sinna raða. Morgunblaðið/Heiddi Fengu viðurkenningar FKA Viðurkenningarnar voru afhendar í ellefta sinn í gær í Perlunni. Vaskar konur verðlaunaðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.