Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 17

Morgunblaðið - 22.01.2010, Side 17
Daglegt líf 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2010 Reuters Götufólk Sýning Vivienne Westwood var innblásin af klæðaburði götufólks. „Glamúr“ umrennings í tískuheiminum TÖTRALEGUR maður ýtir á undan sér inn- kaupakerru. Annar skríður út úr pappakassa og rúllar saman svefnpoka. Heimilislausir vesalingar fastir í fátæktargildru? Nei, þetta eru karlmódel í nýjustu hátískusýningu Vivienne Westwood, sem sýnd var í Mílanó á sunnudaginn. Þessari nýju vetrarlínu Westwood var fagnað með standandi lófataki en hún hefur þó líka vakið hneykslan. Þetta er samt ekki í fyrsta skipti sem „stíll“ heimilislausra er gerður að glamúr í hönd- um tískumógúla. Christian Lacroix lét t.a.m. hafa eftir sér í Vogue fyrir um áratug að þótt það væri „hræðilegt að segja það, þá má oft sjá mest spennandi klæðn- aðinn á fátækasta fólkinu“. Tötrar heimilislausra voru líka hönnuðinum John Galliano innblástur í vorlínunni sem hann hannaði fyrir Dior árið 2000. Aðrir kannast svo kannski við heim- ilislausu tískuna úr grínmyndinni Zo- olander, þar sem tískumógúllinn Mu- gatu réð Derek Zoolander sem módel í sýningu sem var inn- blásin af „heimilislausum, um- renningum og krakkhórum“. Zoolander var skrumskæld háðshádeila á tískuheiminn en kannski var hún ekki svo ýkt eftir allt sam- an … Í tötrum Heim- ilislausir oft í mest spennandi fatnaðinum? Klassíkin er ekki allra Það sem síðar verður sígilt fær ekki alltaf góðar viðtökur í fyrstu. Hér má sjá nokkur dæmi um klassísk bókmenntaverk sem fengu hörmulega umsögn sumra gagnrýnenda. Draumur á Jónsmessunótt – frumsýnt árið 1662 í London „Þetta er það allra heimsku- legasta og fáránlegasta leikrit sem ég hef nokkurn tíma á ævi minni séð.“ – Úr dagbókum Samuels Pe- pys Ferðir Gúllívers eftir Jonathan Swift 1726 „Þessi skrif bera vitni um sýktan huga og sundurtætt hjarta.“ – John Dunlop úr „The Hi- story of Fiction“ Madame Bovary eftir Gustave Flaubert 1857 „Herra Flaubert er enginn rit- höfundur.“ – Le Figaro Anna Karenína eftir Leo Tolstoj 1877 „Væmið kjaftæði.“ – The Odessa Courier Hinn mikli Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald 1925 „Það sem aldrei hefur verið með lífsmarki mun ekki svo auð- veldlega haldast lengi á lífi. Þessi bók mun ekki endast lengur en þetta misseri.“ – New York Herald Tribune Catch-22 eftir Josep Heller 1961 „Heller veltir sér upp úr eigin fyndni … og hagar sér á álíka trúðslegan hátt og börn grípa til þegar þau finna að þau eru að missa athygli þína.“ – New Yorker Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 Fyrst og fremst í heilsudýnum 3 mán. vaxtalausar greiðslur Opið virkadaga frá 10.00-18.00 lau 12.00-16.00 ÚTSALA 20-50% afslátturaf völdum vörum TÍU ÞÚSUND KRÓNUR PENINGABAN KI ÍSLANDS SAMKVÆMT S VEFN & HEILS U JANÚAR 2005 E20052006 E20052006 Matthías Ásgei rsson TTT 10.000 kr. vöruúttekt fylgir hverju heilsurúmi Á morgun fer fram handboltaleikur á milli Íslands og Danmerkur og liggur spennan í loftinu eins og eðli- legt er þegar silf- urdrengirnir okkar stíga fram á sjón- arsviðið, skjóta fast fram, verja af miklum dug og vinna oftar en ekki. Síðar um kvöldið mun fara fram annar hand- boltaleikur en leikvöllurinn verður með öðru sniði og spannar í raun allan miðbæ Reykja- víkurborgar. Því að vera á markaðnum er jú dálítið eins og að spila handbolta, sífellt þarf að vera í vörn og sókn (það er jú öllu flóknara en hjá hand- boltamönnunum), stundum geigar skotið en stundum hittir það beint í mark eða þetta bara endar í jafntefli með svo sem ágætis leik en engum frekari áhuga á að spila meira. Í íþróttum er drengskapur við lýði, þetta á líka við um stelpur því María var jú drengur góður, og frá drengskapnum skal ekki víkja. Stór hluti drengskaparins er kurteisi, en á leikvelli öldurhúsanna virðist hún því miður oft skilin eftir heima. Þá er hér komið að kjarna málsins sem er einmitt sá að sjá til þess að kurteisin fari örugglega með ofan í vasann ásamt lyklunum, símanum, pen- ingnum og smokknum (íþróttamenn forðast meiðsli í lengstu lög). Kurteisi kostar ekkert og þú verður mun álitlegri í augum dömunnar ef þú ryðst ekki fram fyrir hana á barnum, skutlast fram fyrir hana í fataheng- inu eða gloprar einhverju ókurteislegu út úr þér við hana. Sem dæmi um það sem þú færð ekki plús í kladdann fyrir að segja gæti verið að hlaupa á eftir stelpum og segja; viljið þið koma í partí?, stansa síðan fyrir framan þær og segja; æ nei, þið eruð miklu fallegri að aftan en fram- an. Eða að segja; viltu koma með mér heim? og þegar svarið er nei, að spyrja þá; ertu lesbía? Taki þetta til sín þeir sem eiga en fagleg og drengileg taktík virkar oftast mun betur. Þangað til þið náið að fínpússa hana getum við döm- urnar í það minnsta hlegið dátt að vitleysunni í ykkur og skemmt heilu saumaklúbbunum með sögum af gullkornum sem rignt hefur yfir okkur. Svo mætum við galvaskar á völlinn í næsta leik, enda skiptir jú ekki öllu máli að vinna heldur bara að vera með. María Ólafsdóttir | maria@mbl.is HeimurMaríu ’Þú verður munálitlegri í augum dömunnar ef þú gloprar ekki ein- hverju ókurteislegu út úr þér við hana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.