Morgunblaðið - 09.02.2010, Síða 10

Morgunblaðið - 09.02.2010, Síða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2010 Vilhjálmur Bjarnason framkvæmda-stjóri Samtaka fjárfesta undrast hugmyndir Arion banka um Haga.     Hann segir: „Ég er gáttaður á þvíað verið sé að semja við aðila, og félög þeim tengd, sem hafa valdið hér gjaldþroti sem nemur 500-700 millj- örðum króna, kannski meira. Bank- inn þarf hugsanlega að afskrifa 50 milljarða vegna þessara sömu aðila út af þessu eina fyrirtæki.“     Vilhjálmur gagnrýndi einnig að Ar-ion banki skyldi hafa samþykkt að Ólafur Ólafsson fengi á ný að eign- ast skipafélagið Samskip.     Vilhjálmur sagði um það: „Þarna erbankinn að semja við mann sem hefur stöðu grunaðs manns í ein- hverju alvarlegasta markaðsmis- notkunarmáli sem upp hefur komið og snerist að hluta til um það að for- veri Arion banka, þ.e. Kaupþing, féll.“     Er ekki líklegt að fleiri en Vil-hjálmur Bjarnason séu gáttaðir? Sennilega er óhætt að snúa spurning- unni við. Gefur sig einhver fram sem er ekki gáttaður? Skilur einhver banka sem telur þá sem skulda hon- um fimmtíu milljarða, sem þeir ætla ekki að borga, líklegasta til að koma með nýja peninga? Ættu þeir „nýju“ peningar ekki að ganga upp í skuldir? Því á almenningur að venjast.     Og þessir fimmtíu milljarðar erubara eftir eitt af gjaldþrotunum þeirra. Þeir skilja eftir sig sviðna jörð og skuldsetta þjóð. Hefur nokkur banki, sem vitað er um, farið eins illa af stað og Arion banki er spurt. Finnur Sveinbjörnsson Vilhjálmur gáttaður Vilhjálmur Bjarnason Sauðárkrókur | „Við erum að safna undirskriftum gegn þeirri gríðarlegu aðför sem gerð er að einni veigamestu grunnstoð samfélagsins hér, heil- brigðisstofnuninni, og boðuð hefur verið af heil- brigðisráðherra. Við munum ekki láta það yfir okkur ganga að þessi stofnun, sem hefur fram til þessa verið mjög vel rekin og alltaf innan ramma fjárlaga, verði nánast lögð í rúst með 11% skerð- ingu á fjárlögum, langt umfram landsmeðaltal,“ segir Helga Sigurbjörnsdóttir, sem stofnað hefur Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og stendur jafnframt fyrir undir- skriftasöfnun þessa dagana. Boðað hefur verið til mótmælafundar við stofnunina nk. föstudag kl. 15.30. Heilbrigðisráðherra og þingmönnum hefur verið boðið til þeirrar samkomu en samskonar mótmæli verða einnig á Blönduósi sama dag kl. 14. Helga segir að nú þegar hafi fæðingardeild stofnunarinnar á Sauðárkróki verið lokað, starfs- stöð hjúkrunarfræðings á Hofsósi einnig, auk þess sem fjölda starfsmanna, þar á meðal læknum, hef- ur verið sagt upp störfum. Einnig er ljóst að kom- um þeirra sérfræðinga, að sunnan eða norðan, sem hér hafa starfað tímabundið, muni stórlega fækka. Þannig muni Skagfirðingar nú þurfa að sækja ýmsa þá þjónustu til Reykjavíkur eða til Akureyrar sem þeir áður gátu fengið í heima- byggð. Með þeirri skipan mála sem fyrirhuguð er segir Helga að stigið sé spor til baka, eða allt til miðrar síðustu aldar, þegar líf manna valt á því hvort unnt yrði að koma viðkomandi nógu fljótt undir læknishendur. „Við munum sætta okkur við að þurfa að rifa seglin í því umróti sem nú steðjar að þjóðinni, en að leggja eigi Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar í rúst – það munum við ekki láta við- gangast,“ segir Helga að lokum. Rísa upp og mótmæla í Skagafirði  Undirskriftasöfnun hafin til stuðnings Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki VÆNGJAMESSA er nýjung í starfi kirkjunnar og verða þær í Guðríð- arkirkju í Grafarholti. Fyrsta mess- an verður á morgun, miðvikudaginn 10. febrúar næstkomandi kl. 20.00, en vængjamessa er hversdagsmessa að kvöldi dags og kallast á við æðru- leysismessurnar á sunnudags- kvöldum í Dómkirkjunni. Allir eru velkomnir en messan miðar að því að lyfta mönnum upp frá áhyggjum af sínu nánasta fólki vegna erf- iðleika, kvíða eða vímuefnaneyslu. Vængjamessan dregur nafn sitt af texta Hómilíubókarinnar, en þar er okkur sagt að berast um á tveim- ur vængjum; elsku til Guðs og elsku til náungans. „Í Biblíunni er víða tekin líking af Guði sem fugli sem skýlir okkur undir vængjum sínum og þess vegna hæfir vængjamessa vel sem tákn um stað þar sem við getum fengið huggun, styrk og nýjan anda,“ segir Karl Matthíasson prestur. Undirbúningshópi um messurnar hefur verið komið á legg og í honum eru Jóhanna Arnþórsdóttir, Sig- urrós Yrja, Inda Hrönn Björnsdóttir og Inga Valdís Heimisdóttir. Í vængjamessunum munu leikmenn líka miðla af reynslu sinni. Eftir messu er boðið upp á kaffi og spjall. Í fyrstu messunni mun Sylvía Rún leiða söng og syngja einsöng en undirleikari er Björn Tómas Kjaran Njálsson. Séra Karl Matthíasson stýrir vængjamessunum sem til stendur að halda fyrsta mið- vikudagskvöld í hverjum mánuði yf- ir veturinn. Vængjamessur nýj- ung í Guðríðarkirkju Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 4 léttskýjað Lúxemborg -1 léttskýjað Algarve 18 léttskýjað Bolungarvík 0 alskýjað Brussel 0 skýjað Madríd 10 skúrir Akureyri -3 léttskýjað Dublin 4 skýjað Barcelona 10 skúrir Egilsstaðir -8 heiðskírt Glasgow 5 skýjað Mallorca 13 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 4 skýjað London 1 snjóél Róm 10 léttskýjað Nuuk 5 skýjað París 4 alskýjað Aþena 10 skýjað Þórshöfn 3 léttskýjað Amsterdam -3 skýjað Winnipeg -14 léttskýjað Ósló -10 heiðskírt Hamborg -4 skýjað Montreal -9 skýjað Kaupmannahöfn -5 skýjað Berlín -4 skýjað New York -3 heiðskírt Stokkhólmur -5 heiðskírt Vín -4 skýjað Chicago -4 skýjað Helsinki -3 snjókoma Moskva -15 léttskýjað Orlando 13 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 9. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3.24 3,0 9.54 1,4 15.52 2,8 22.07 1,4 9:43 17:42 ÍSAFJÖRÐUR 5.33 1,8 12.07 0,8 17.58 1,5 10:01 17:34 SIGLUFJÖRÐUR 0.57 0,6 7.14 1,1 13.58 0,5 20.49 1,0 9:44 17:17 DJÚPIVOGUR 0.29 1,6 6.52 0,8 12.38 1,3 18.49 0,6 9:16 17:08 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á miðvikudag Suðaustan 5-10 m/s, skýjað og lítilsháttar væta SV-lands, en annars hægari vindur og létt- skýjað með köflum. Hiti 0 til 6 stig á S- og V-landi, en annars frost 0 til 8 stig. Á fimmtudag, föstudag og laugardag Sunnan 5-8 m/s, skýjað og rigning eða súld öðru hverju um suðvestan- og vestanvert landið, en annars hægari suð- vestanátt og víða léttskýjað. Hiti breytist lítið. Á sunnudag Snýst líklega í norðanátt með snjókomu norðantil á landinu og kólnar í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Léttskýjað eða bjart- viðri á norðanverðu landinu, en annars skýjað að mestu með köflum. Sums staðar dálítil væta við suðurströndina og einnig SV-lands. Hiti 0 til 6 stig, en frost 0 til 9 stig á N- og A- landi, kaldast í innsveitum. ALMANAK Siðbótar er komið út en almanaksár þeirra miðast við 22. janúar, daginn sem búsáhaldabylt- ingin fékk byr undir báða vængi á síðasta ári. Að þessu tilefni ætlar Siðbót að færa lögreglustjóra höfuðborg- arsvæðisins „Kúlulánasiðbót með al- væpni“ að gjöf kl. 15.30 í dag. Að því loknu fer hópurinn siðbótarleið- angur í strætó, nánar tiltekið með leið 15 kl. 16.02 frá Hlemmi. Þar verður almanakið kynnt en á því má finna myndir sem minna á atburði síðasta árs, m.a. prýðir mynd af Óslóartrénu sem var eftirminnilega fellt í búsáhaldabyltingunni, einn mánuð þess. Á almanakinu má einn- ig finna nýja málshætti á borð við „Betra er þrotabú en þrjótabú.“ Almanak Siðbótar komið út

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.