Morgunblaðið - 09.02.2010, Qupperneq 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
7 9 6
3 7 2 1
8 2
6 5 8 9
9 1 7
8 3 6 2
8 3
1
9 8
8 6
3 5 7
9 8 7
3
2 8 4 6
6 3 4 5
2 9
3 7 4
8 5 2 4
6 8 3
1 5 2 6
9 1 3 6
6 2
5 4
3
1
9 2 4 5
2 3 7 5 9 8 4 6 1
8 5 6 4 1 7 9 3 2
4 1 9 2 6 3 8 5 7
1 9 3 8 7 6 5 2 4
5 6 8 1 2 4 3 7 9
7 2 4 9 3 5 6 1 8
6 4 2 7 5 9 1 8 3
3 8 1 6 4 2 7 9 5
9 7 5 3 8 1 2 4 6
6 8 1 2 5 4 7 9 3
5 4 7 3 8 9 2 6 1
9 3 2 6 7 1 8 5 4
7 5 3 8 6 2 1 4 9
1 2 9 5 4 7 3 8 6
8 6 4 1 9 3 5 2 7
3 7 5 4 2 6 9 1 8
4 1 8 9 3 5 6 7 2
2 9 6 7 1 8 4 3 5
8 9 1 5 2 7 4 3 6
2 5 4 8 6 3 1 7 9
7 6 3 9 1 4 2 8 5
5 4 2 6 9 8 7 1 3
6 8 7 2 3 1 5 9 4
3 1 9 4 7 5 6 2 8
9 2 8 1 4 6 3 5 7
4 7 5 3 8 2 9 6 1
1 3 6 7 5 9 8 4 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 9. febrúar, 40. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa
öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir
hann enn ekki eins og þekkja ber.
(I. Kor. 8, 2.)
Víkverji var á menningarlegumnótum um helgina og fór í leik-
hús og á tónleika. Lyftir ætíð and-
anum í skammdeginu að sjá og
heyra listamenn tjá túlkun sína í
hinu fjölbreyttasta formi, hvort sem
það eru atvinnu- eða áhugamenn.
Brennuvargarnir í Þjóðleikhúsinu er
flott leikhúsverk með skemmtilegri
skírskotun til atburða líðandi stund-
ar á þessu kreppuþjáða landi. Átti
Víkverji auðvelt með að heimfæra
flestar persónur leikritsins yfir á
ljóslifandi einstaklinga meðal vor en
ætlar ekki að fara nánar út í þá
sálma hér. Leikararnir standa sig
allir með prýði en ekki verður hjá
því vikist að nefna stórleik Eggerts
Þorleifssonar, Björns Thors, Ólafíu
Hrannar og Eddu Arnljótsdóttur.
Sú síðasttalda hlýtur að þurfa á góðu
sjúkranuddi að halda á milli sýninga.
Víkverji hvetur landsmenn til að sjá
Brennuvargana en líkast til mega
astmasjúklingar, og þeir sem við-
kvæmir eru fyrir vindlareyk, vara
sig á að sitja ekki í fremstu sætum!
x x x
Tónleikarnir sem Víkverji fór ávoru í Fella- og Hólakirkju. Þar
komu fram Söngsveitin Fílharm-
ónía, Kór Fella- og Hólakirkju og
Lúðrasveit verkalýðsins og fluttu
tónverkið Magnificat eftir John
Rutter. Snorri Heimisson hélt fim-
lega um tónsprotann og Nanna
María Cortes söng einsöng. Hreint
út sagt stórkostlegir tónleikar. Vík-
verji er ekki frá því að tónninn hafi
óvænt verið sleginn strax í upphafi
af kornungum tónleikagesti, sem
létti áreiðanlega á spennu flytjenda
og annarra viðstaddra í salnum.
Það tók sína stund fyrir kór og
hljómsveit, alls um 130 manns, að
koma sér fyrir á altari kirkjunnar.
Þegar því var lokið, og beðið var eft-
ir stjórnandanum, rauf hinn ungi,
óþolinmóði og óreyndi tónleikagest-
ur þögnina með því að varpa fram
sakleysislegri spurningu af fremsta
bekk, hátt og snjallt: „Ætliði ekki að
syngja?“
Lætur nærri að salurinn hafi
sprungið úr hlátri, frá aftasta bekk
og upp á efsta pall í kórnum.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ískyggileg, 8
blístur, 9 bölva, 10 veið-
arfæri, 11 sanna, 13 rík,
15 röska, 18 líffæri, 21
leyfi, 22 stólpi, 23 daufa
ljósið, 24 einber.
Lóðrétt | 2 kátt, 3
brynna, 4 kroppa, 5 kven-
kynfruman, 6 mjög, 7
skrökvaði, 12 verkur, 14
dvelst, 15 upphá krukka,
16 drykkjuskapur, 17
frægðarverk, 18 smá, 19
gömlu, 20 heimili.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 lynda, 4 herra, 7 útför, 8 landi, 9 afl, 11 tían, 13
amla, 14 álfar, 15 grær, 17 græt, 20 ask, 22 tusku, 23
ástin, 24 neita, 25 asnar.
Lóðrétt: 1 ljúft, 2 nefna, 3 aðra, 4 holl, 5 rónum, 6 aðila,
10 fífls, 12 nár, 13 arg, 15 gætin, 16 ærsli, 18 rótin, 19
tínir, 20 ausa, 21 kála.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 Bc5
5. c3 0-0 6. Rbd2 d6 7. h3 Re7 8. Ba4
Rg6 9. Rf1 d5 10. Rg3 Rf4 11. d4 Bb6
12. dxe5 Rxe4 13. Rxe4 Rxg2+ 14. Kf1
dxe4 15. Dxd8 Hxd8 16. Bg5
Staðan kom upp á Kornax-mótinu,
Skákþingi Reykjavíkur, sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Ingvar Þ. Jóhannesson
(2.330) hafði svart gegn Daða Ómars-
syni (2.131). 16. … exf3! 17. Bxd8 Rf4
18. Bg5 Bxh3+ 19. Kg1 Re2+ 20. Kh2
Bg2 og hvítur gafst upp enda staða
hans afar erfið eftir t.d. 21. Hhd1 Bxf2
þar sem svartur hótar máti á g3. Gæfi
hvítur skiptamuninn til baka í því skyni
að valda f2-peðið myndi hann verða
tveim peðum undir.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Slök dómgreind.
Norður
♠Á
♥K10653
♦ÁK94
♣G75
Vestur Austur
♠105 ♠D987642
♥DG84 ♥Á972
♦DG7 ♦83
♣D1063 ♣--
Suður
♠KG3
♥--
♦10652
♣ÁK9842
Suður spilar 4G.
Það tekur nútíma tölvuforrit aðeins
andartak að reikna út möguleika
hverrar gjafar. Spil dagsins er frá
sveitakeppni Bridshátíðar og sam-
kvæmt útreikningum tölvunnar má
vinna 6♣ í NS. Unnin slemma gefur
1.370 stig á hættunni og af því dregur
tölvan þá ályktun að par-skor sé 6♠ do-
blaðir í AV, 1.100 niður. En það er eins
og venjulega með tölvuna: hún reiknar
rétt, en dæmir rangt – flest NS-pörin
spiluðu 3G.
Svíarnir Magnusson og Eliasson
villtust í 4G gegn Úlfi Árnasyni og
David Probert. Vörnin var nákvæm.
Úlfur kom út með ♠10 í hindrunarlit
makkers og Probert vísaði frá. Sagn-
hafi spilaði laufi á ás og litlu að blind-
um. Úlfur drap og skipti yfir í hjarta-
fjarka – lítið úr borði og nían frá
Probert. Tígull til baka og tveir niður.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fátt jafnast á við skemmtilegar
stundir í hópi góðra vina. Rök þín eru góð
og gild. Njóttu útiveru og borðaðu hollt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú meltir í sífellu það sem er að ger-
ast í kringum þig, það er eins konar sjálfs-
vörn. Eigingirni ættingja fer í taugarnar
á þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er þér í hag að málamiðlun
náist í mikilvægu máli. Njóttu þess að
slaka á eftir amstur dagsins. Þú færð
óvænta heimsókn og jafnvel heimboð líka.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Aðdáun er mögnuð hvatning. Dag-
urinn hentar vel til naflaskoðunar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er stutt í einhvern stóratburð
sem þú þarft að vera reiðubúin/n fyrir
hvað sem það kostar. Peningamálin eru
að komast í lag. Þakkaðu fyrir það sem þú
átt og hefur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ekki gleyma að gefa þér tíma til
einveru þótt einhver innan fjölskyldunnar
þurfi á þér að halda. Farðu að skipuleggja
sumarfríið og fáðu álit allra í fjölskyld-
unni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er hverjum manni nauðsynlegt
að vera einn með sjálfum sér öðru hverju.
Fólk sem skilur þig er snjallara en aðrir
og því áttu ekki að láta það sleppa.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú brýtur heilann um leiðir til
tekjuöflunar þessa dagana. Hamingju-
samt fólk veit að lykillinn að hamingjunni
er að leita hennar ekki, heldur njóta dags-
ins. Settu þér takmark.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Gættu þess að láta fólk ekki
hafa of mikil áhrif á þig því það hefur þú
reynt áður. Vinir sakna þín, sinntu þeim.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það hefur ekkert upp á sig að
lenda í orðaskaki við fólk sem aldrei skil-
ur sinn vitjunartíma. Mundu að engin
manneskja er annars eign.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Því verður ekki neitað að and-
leg lögmál eiga stærri þátt í fjármálum
þínum en beinharðar tölur. Allt sem teng-
ist peningum og vinnu er hagstætt í dag.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú veist sitt af hverju en til allrar
hamingju ekki allt, enda væri það mjög
þreytandi fyrir félagana. Jafnvægi skap-
ast þegar þú leyfir loftinu að endurnæra
þig. Matarboð vekur lukku hjá yngri kyn-
slóðinni.
Stjörnuspá
9. febrúar 1827
Kambsránið. Brotist var inn
og peningum rænt á Kambi í
Flóa. Ránsmennirnir voru
síðar handteknir og dæmdir
að loknum umfangsmiklum
réttarhöldum.
9. febrúar 1946
Maður hrapaði í djúpa gjá í
Aðaldalshrauni í Þingeyj-
arsýslu. Hann fannst ekki
fyrr en eftir þrjá daga og var
þá „heill og hress,“ eins og
það var orðað í Morg-
unblaðinu.
9. febrúar 1959
Togarinn júlí frá Hafnarfirði,
fórst í fárviðri við Nýfundna-
land og með honum 30 manns
á aldrinum frá 16 til 48 ára.
„Eitt mesta sjóslys á þessari
öld,“ sagði Morgunblaðið.
9. febrúar 1972
Loðnugeymir í Hafnarfirði
rifnaði í sundur. Um tvö þús-
und tonn af loðnu flæddu úr
honum.
9. febrúar 2001
Tilkynnt var um 1,7 milljarða
króna styrk sem Hjartavernd
fékk frá Öldrunarstofnun
Bandaríkjanna til rannsókna
á áhrifum öldrunar. Rann-
sóknin átti að taka sjö ár og
ná til tíu þúsund ein-
staklinga.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Svavar F.
Kjærnested
skrúðgarð-
yrkjumeistari er
níræður í dag,
þriðjudaginn 9.
febrúar.
90 ára
AÐSTOÐARLEIKSKÓLASTJÓRINN á Akraseli,
Margrét Þóra Jónsdóttir, verður með bekkjar-
afmæli á fertugsafmælisdaginn, en hún deilir deg-
inum með syni sínum Jóni Inga Einarssyni sem er
níu ára í dag. „Við verðum með bekkjarafmæli í
dag og svo verður veisla fyrir fjölskylduna á laug-
ardag. Sjálf ætla ég hins vegar að fresta mínu af-
mælishaldi til sumars,“ segir Margrét Þóra sem er
þessa dagana heima í fæðingarorlofi með dóttur
sem fæddist í byrjun janúarmánaðar.
Margrét Þóra er framsóknarmaður í húð og
hár. Hún var í framboði fyrir flokkinn á Akranesi
fyrir síðustu alþingiskosningar og er nú að hugleiða hvort hún eigi að
bjóða sig fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. „Ég var ekki
nema átta ára gömul þegar ég ákvað að verða framsóknarmaður og
stend við það enn,“ segir Margrét Þóra. Ákvörðunina telur hún sig
ekki síst geta þakkað framsóknarmanninum afa sínum Þorgrími
Jónssyni frá Kúludalsá. „Pabbi er líka framsóknarmaður, en mamma
er með öllu ópólitísk svo það var lítið rætt um stjórnmál á heimilinu.
Við systkinin erum hins vegar öllu pólitískari og skiptum okkur milli
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks.“ annaei@mbl.is
Margrét Þóra Jónsdóttir, 40 ára
Ákvað 8 ára að ganga í Framsókn
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is