Morgunblaðið - 09.02.2010, Blaðsíða 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2010
LISTAMENNIRNIR Ragnar
Kjartansson og Davíð Þór Jónsson
taka sig vel út á mynd í tímaritinu
V með galleritanum Lawrence Lu-
hring sem tekin var í teiti til styrkt-
ar Dignitas International, sam-
tökum sem berjast gegn útbreiðslu
alnæmis í heiminum. Í veisluna
mættu margir frægir, m.a. leik-
konan Chloe Sevigny og SI New-
house, forstjóri Condé Nast-
útgáfunnar sem gefur m.a. út tíma-
rit á borð við Vogue, Vanity Fair og
Portfolio.
Raggi, Davíð og Chloe
í góðgerðarveislu
Fólk
KVIKMYNDIN Boðberi verður frumsýnd í vor en
maðurinn á bak við þessa dularfullu mynd, leik-
stjórinn Hjálmar Einarsson, lærði handritagerð
og leikstjórn í Prag. Boðberi er fyrsta mynd hans
í fullri lengd og segir af ungum manni sem leik-
inn er af Darra Ingólfssyni, sem kemst að ráða-
bruggi valdamikilla manna og sértrúarhópa sem
valdið gætu fjölda manns skaða og jafnframt
samfélagshruni. Valdamiklum og háttsettum
mönnum eru sýnd banatilræði og skelfing grípur
um sig í íslensku samfélagi. Eins og sjá má af
stiklum koma englar og djöflar við sögu, spreng-
ing við alþingishúsið o.fl. krassandi. „Maður
fylgdist náttúrlega með Íslandi á netinu og þegar
ég kom heim var ég svolítið eins og útlendingur í
eigin landi, þegar mesta góðæris-geðveikin var,“
segir Hjálmar. Pressan hafi verið mikil að dansa
með. Hann hafi þá farið að velta fyrir sér sögu
frá sjónarhóli þess sem ekki tók þátt í góðærinu.
Boðberi er pólitískur hasartryllir og inn í bland-
ast yfirskilvitleg fyrirbæri, trúarofstæki, öfga-
hópar og brenglað raunveruleikaskyn. „Hvað
gerist þegar hættulegir einstaklingar eða hópar
ná saman?“ spyr Hjálmar. „Ég hef stundum sagt
að þetta sé svolítið svona Donnie Darko meets
Taxi Driver,“ segir Hjálmar. Myndin sé ólík öðr-
um sem sést hafi á Íslandi, mjög fast skotið á ís-
lenskt samfélag og í allar áttir.
helgisnaer@mbl.is
„Mjög fast skotið í allar áttir“
Boðberi Kynningarmynd sem sýnir Alþingis-húsið
verulega laskað eftir sprengingu.
Heimasíða myndarinnar er bodberi.com en hún
er einnig með síðu á Facebook. Þá má finna tvö
myndskeið um Boðbera á mbl.is.
TÓNLISTARMENNIRNIR
Hörður Torfason og Franz Gunn-
arsson eru ekki sammála um þá
fullyrðingu Emilíönu Torrini, sem
finna má í viðtali við hana á vefnum
Miðjan, að það sé „nýtt að Íslend-
ingar sæki tónleika og hlusti á laga-
smíðar tónlistarmannanna sjálfra“.
Hörður segir þetta rangt, Emilíana
þurfi að kynna sér málin betur.
„Þannig er oft að yngra fólkið
gleymir að horfa aftur fyrir sig og
kynna sér það sem á undan er
gengið,“ segir Hörður, hann hafi
haldið tónleika í 40 ár og flutt þar
eigin tónlist og texta. „Smám sam-
an fór að bera á öðru tónlistarfólki
sem tók upp á því sama,“ bætir
hann við. Franz segir þetta hins
vegar alveg rétt hjá Emilíönu. „Af
hennar reynslu og annara hafa
yngri tónlistarmenn og þá sér-
staklega hljómsveitir ávallt þurft
að spila ábreiður fyrir fulla Íslend-
inga á böllum eða því um líkt, læða
sínum lögum inn á milli,“ segir
Franz m.a. Hörður svarar og segir
Emilíönu aðeins hafa rétt fyrir sér
miði hún við tímann frá landnámi
Íslands. „Flestallir tónlistarmenn
byrja með því að flytja þekkt verk
annarra og lauma sínum inn á milli.
Það er ákaflega eðlilegt þegar mað-
ur er að vinna sér nafn og fá athygli
á verk sín. Áframhaldið ræðst svo
af því hvort viðkomandi hafi það
mikið að segja að fólk biðji tónlist-
armanninn að sleppa efni eftir
aðra,“ segir Hörður.
Hörður og Franz rök-
ræða um svar Emilíönu
TÓNLISTARKONAN Elíza Newm-
an heldur útgáfutónleika í kvöld
vegna plötunnar Pie in the Sky sem
kom úr fyrir jól.
„Já, loksins er ég með útgáfu-
tónleika,“ segir Elíza. „Það verða
tvær upphitunarhljómsveitir, Pas-
cal Pinon og Andvari sem Myrra
Rós Trúbatrixa er í. Þær verða með
stutta dagskrá og svo kem ég og
spila alla plötuna með hljómsveit,“
segir Elíza um fyrirkomulag tón-
leikanna. Hún syngur og spilar á
fiðlu og ukulele og með henni eru
Gísli Kristjánsson á trommur, Ken
Rose á gítar, Alex Yeoman á bassa
og Sy Davis á hljómborð. „Ég var
að setja þessa hljómsveit saman
núna fyrir tónleikana en vonandi
eiga þeir eftir að spila meira með
mér úti,“ segir Elíza sem mun spila
heilmikið erlendis í vor. „Platan
kemur út í Evrópu með vorinu og
því mun fylgja einhver spila-
mennska m.a. í London. Ég hef
fengið mjög góð viðbrögð við plöt-
unni og er að skoða tónleika víða.“
Elíza nemur nú kennslufræði
tónlistar og á námið allan hennar
tíma. „Ég ætlaði bara að vera í
námi en svo gerði ég óvart plötu
líka. Ég er að reyna að sinna þessu
hvoru tveggja, þegar það verður
minna að gera í náminu í vor hef
meiri tíma fyrir plötuna.“
Tónleikarnir í kvöld fara fram á
Café Rósenberg sem er í uppáhaldi
hjá Elízu. „Mér finnst viðeigandi að
halda tónleikana á Rósenberg, stað-
urinn höfðar til mín og ég hef líka
spilað nokkrum sinnum þarna upp
á síðkastið með Trúbatixunum,“
segir Elíza. Hún skipuleggur nú
ásamt hinum Trúbatrixunum út-
gáfu annars geisladisks í sumar.
Útgáfutónleikar Elízu hefjast kl.
21 í kvöld og kostar 1.500 kr. inn.
ingveldur@mbl.is
Fagnar úgáfu Elíza Newman spilar á ukulele á tónleikunum og mun mjög
líklega leika lagið „Ukulele song for you“ sem er á plötunni.
Útgáfutónleikar Elízu
Elíza Newman fagnar útkomu Pie in the Sky í kvöld á
Café Rósenberg Platan kemur út í Evrópu með vorinu
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
SAUMAVÉLIN hennar Bryndísar Þorsteins-
dóttur þagnar ekki um þessar mundir, eða síðan
Bryndís fékk það einstaka tækifæri, ásamt sam-
starfskonu sinni Rosu Winther Denison, að sýna
hönnun þeirra á Tískuviku í Kaupmannahöfn
sem hefst á morgun og stendur til fjórtánda
febrúar.
„Ég ákvað að breyta aðeins til þegar ég lauk
BA-gráðu í arkitektúr frá Konunglega arki-
tektaskólanum hér í Köben í sumar og fór í
fatahönnun í lýðháskólanum Veru í þrjá mánuði.
Ég hef alltaf verið að sauma en þar fékk ég enn
meiri áhuga á fatahönnun og ég og Rosa, sem
ég kynntist í skólanum, stofnuðum nýlega
merkið RosaBryndis.“ Svo hefur Bryndís sög-
una þegar blaðamaður biður hana að segja frá
tildrögum þess að hún fékk boð um að sýna á
tískuvikunni.
„Þetta hefur gerst mjög hratt. Eftir jól förum
við Rósa að hanna og sauma saman, vinur henn-
ar er vinsæll plötusnúður, Chris Minus, og hún
segir honum frá því sem við erum að gera. Þá
vill svo til að hann er í sambandi við konu, sem
heitir Tiffani og er frá San Francisco, sem er að
skipuleggja atburð fyrir tískuvikuna 2010. Hún
var að leita að ungum hönnuðum á uppleið og
hann bendir á okkur og þá fóru hjólin að snúast.
Margbreytilegur fatnaður
Atburðurinn sem við sýnum á er þrískiptur;
matur, tónlist og tíska. Það er þriggja rétta
matseðill og tískusýning á milli rétta, fyrst átti
að vera einn hönnuður á milli rétta en það
breyttist í að við verðum með allar þrjár sýn-
ingarnar. Það verða tveir aðrir hönnuðir að
sýna þarna; Kiki Cao sýnir föt sín á gínum og
Felix Odhiambo er með skartgripi,“ segir Bryn-
dís.
Hvernig föt hannið þið?
„Þetta er stílhreinn margbreytilegur fatn-
aður, það er ein flík sem hægt er að breyta á
marga vegu. Við leggjum t.d. til þrjár leiðir með
einni flík en svo getur eigandinn fundið sínar
leiðir. Ég fæ fljótt leið á fötum og finnst því er
mikill kostur að geta verið með flík sem hægt
er að breyta.“
Hvaða þýðingu hefur þessi sýning fyrir ykk-
ur?
„Sýningin á pottþétt eftir að gera mikið fyrir
okkur enda haldin fyrir unga hönnuði til að auð-
velda þeim að koma sér á framfæri. Þessi at-
burður er hluti af tískuvikunni og þá fær maður
aðgang að tímaritum, tísku-„plöggurum“ og inn-
kaupastjórum, við fáum tækifæri til að sýna
okkur fyrir þessu mikilvæga fólki og sjónvarps-
stöðin TV2 kemur og tekur viðtal við Tiffani.“
Bryndís og Rosa sitja nú sveittar við og
sauma en þær vinna bara tvær í þessu og sýn-
ingin er á laugardaginn.
„Við ætlum að sýna 30-40 flíkur og 60-70 stíla
þar sem við viljum sýna margvíslega möguleika
með sumum flíkunum. Það hentar því vel að
vera með þrískipta sýningu. Við þurfum síðan
tólf fyrirsætur og erum að vinna í því að finna
þær núna.“
Eruð þið að selja RosaBryndis einhvers stað-
ar?
„Nei, við höfum fengið fyrirspurnir en ætlum
ekki að byrja að selja fyrr en við erum búnar að
sýna og sjá hvernig viðbrögð við fáum.“
Hvað með arkitektanámið?
„Það hefur hjálpað mér mikið í þessu og stórt
séð mótað mig sem tískuhönnuð. Það er hugs-
unarhátturinn, að hugsa út fyrir út fyrir kass-
ann og að forma hluti,“ segir Bryndís að lokum.
Sýnir á tískuviku í Köben
Margbreytilegt og töff Hönnun Rosu og Bryndísar á án efa eftir að slá í gegn.
www.rosabryndis.com
Góðar saman Rosa og Bryndís.