Skólablaðið - 01.04.1962, Síða 26
- 110 -
Stórborgin hefur safnað til sin öllum
verzlunarlýð,, og eru þessir helztir, sem
ég hef talið.
I Litlu-rtalíu búa ítalarnir við fátækt
alla daga vikunnar, en hugga sig við það,
að alltaf er veizla í nánd með spaghetti og
vínum,hversu mikil sem eymdin er.
I Greenwich Village búa listamennirn-
ir og bohemarnir, og þangað er þeim ráð-
lagt að fara, sem iðka vilja frjálsar ástir.
A hinu fræga Washington Square er reyndar
orðin óalgeng sjón að sjá listamenn í sam-
ræðum, en því algengara að sjá konur með
barnavagna og aðra smáborgara.
1 Harlem búa svertingjarnir. Það er
skuggahverfi New Yorkborgar og vissara
að vera þar ekki einn á ferli að kvöldlagi,
því að manndráp eru þar vinsæl iðja. Þar
mátti fá til skamms tíma allt frá dópi til
mannakjöts (N. B. gómfillan bezt segir
Ölafur Hansson ). En Harlem hefur einnig
sínar ljósu hliðar, því-að þar er frægt auð-
mannshverfi, svokölluð Sykurhæð. í þessu
hverfi má því sjá auð og eymd N.Y. borgar.
Við Wall Street er mesti auður verald-
ar samankominn. Það er eini staðurinn,
sem hinir fótgangandi skeyta ekki um um-
ferðina, en æða yfir hina þröngu og sólar-
lausu götu með dollaramerkið x augunum.
ÍJtlendingar þekkjast á því, að þeir mega
vera að því að líta til' hægri og vinstri.
Þannig mætti lengi telja, unz New
York yrði fulllýst, og til að æra ekki ó-
stöðugan læt ég hér staðar numið. -
Þótt New York sé ævintýralegur staður
með öllum sínum andstæðum, auði og
eymd, skýjakljúfum og hreysum, söfnum
og sjónvörpum, bíóum og bingóum, Radio-
city og rangölum, Frelsisstyttu og fagur-
götum, þá held ég, að ferðalangurinn kjósi
ekki að eyða þar ævi sinni. Hann getur
vissulega orðið jafneinmana meðal þessara
8 millj.' og í miðri eyðimörk. En fyrir
alla muni segið ekki smáborgurum New
Yorkborgar þetta. „ q
BLEKSLETTUR, frh. af bls. 90.
eins stílhreinar og vandaðar sem undanfar-
in ár, og er það lllt' til afspurnar, að þar
skuli busablaðið skáka hinu virðulega
Skólablaði.
Síðasta blað var helgað leiklistinni :
þrír dómar,hvorki meira né minna. Voru
dómar Sverris og Stefáns um Skugga-Svein
og hina marglofuðu Utilegumenn ritaðir af
sanngirni, en dómur Ölafs R. um Herra-
nótt hins vegar af mikilli kómikk, enda
er ölafur spégaur hinn mesti.
Vitringar
Svo sem vænta mátti bar máladeild
Menntaskólans og Baldur Sím glæsilegan
sigur úr býtum í "spurningakeppni skola-
nemenda", Þeir vitringar Baldur Sím
6.X, Einar Már 6. B, Sverrir Hólmars-
son 6. B, Sigurður Ragnarsson 5. B. og
Jón Ögm. Þormóðsson 5. B* stóðu sig all-
ir mjög vel og voru vel að sigrinum
komnir. Þeir hafa orðið okkar gamla
skóla til mikils sóma. ^ j
SKÖLABLAÐlÐi_frh._af_b]_s_1_91J_
á allra vitorði, að stúlkan I. H. , sem á
hin gullfallegu kvæði í fyrri "Skólablöð-
um", er einn allra pennaliprasti nemand-
inn hér í skóla. Svona greinar, séu þær
eins vel skrifaðar og þessi, setja lifandi
svip á blaðið, þær eru allt annað en leið-
inlegar upptalningar borga og bæja.
Greinin "Eilífðarhringurinn" er það eina,
sem er frumsamið efni ( skáldskapur )
nemanda í þessu tölublaði "Skólablaðsins1.1
Hún er fremur stutt, eins og slíkar skóla-
blaðssögur eiga reyndar að vera, hug-
myndin er ágæt, en eitthvað endaslepp.
GruLdu-opnan er með afbrigðum dauðyflis-
leg. Nennir enginn að skreyta blaðið svo
að sæmilegt sé ?
Mér sýndist fyrirsögnin á fþróttasíðunni
vera stæling á fyrirsögn fþróttaþáttar
blaðs, sem gefið var út í gagnfræðaskóla
nokkrum í bænum fyrir fáum árum (teikn-
uð af 13 ára nemanda). Skreyting blaðs-
ins er stórt, já mjög stórt atriði. Hún
getur ráðið miklu um útlit og lífgað upp á
annars dauðar síður. Svo er það "kvæðið"
hans Sverris editors. Hvernig væri að
birta einhver önnur 34 orð meðfram rönd
blaðsiðunnar og hafa miðjuna auða? Yrði
það ekki nógu frumjegt ?
Menn eru máske orðnir leiðir á þess-
um skrifum um lélegt "Skólablað", en.
mikið má ef duga skal, og þeir eru efíaust
enn fleiri, sem eru óánægðir með Skóla-
blaðið sjálft, eina málgagn M. R. Það
þarf að hreinsa til í ritnefnd í næstu kosn-
ingum, því að í henni eru sumir menn svo
latir, að þeir nenna varla að lesa annað
en nafnið sitt, þegar blaðið loks kemur