SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 2
2 19. desember 2010
Við mælum með
Dagana 7.-23. desember
Vinir Sólheima leggja íbúum þar
lið við að halda úti jólamarkaði í
kjallaranum á Iðu, Lækjargötu.
Á markaðnum verða til sölu
listmunir, lífræn snyrti- og
matvara sem íbúarnir búa sjálfir
til. Þá eru ýmsir listamenn
einnig væntanlegir í heimsókn
með skemmtiatriði og mun Sól-
heimakórinn þar meðal annars
taka lagið.
Jólamarkaður Sólheima
4-6 Vikuspeglar
Páfi dregur upp mynd af Jesú frá Nazaret og kvikmyndaleikstjórinn
ástsæli Blake Edwards fallinn frá.
28 Girt á Hesteyri
Ragnar Axelsson lenti óvænt í girðingarvinnu hjá Önnu Mörtu Guð-
mundsdóttur þegar hann átti leið um Mjóafjörð fyrir fimmtán árum.
34 Speki árþúsunda safnað í bók
Kolbrún Bergþórsdóttir og Hannes Hólmsteinn Gissurarson eru ólíkar
manneskjur með líkar bækur á markaði fyrir jólin.
36 Þróunarkenningin barst fljótt
Arfleifð Darwins, Þróunarfræði, náttúra og menning, er fyrsta ritgerða-
safnið um þróunarkenninguna á íslensku
handa almenningi.
37-39 Purusteik, pip-
arkökur og jólavínið
Vegleg umfjöllun um mat og drykk fyrir jólin.
40 Hönnun Frónbúans
Skapandi álitsgjafar Sunnudagsmoggans
velja hönnun í jólapakkann í ár.
45 Bless jólastress
Jólin eru að koma, slöppum af og njótum þess að vera til.
Lesbók
48 Sálmaskáldið var eitt sinn barn
Steinunn Jóhannesdóttir leyfir lesendum að skyggnast inn í bernsku-
heim stórskáldsins Hallgríms Péturssonar.
50 Kalda stríðið afrækt
Sigurjón Magnússon ræðir um nýja skáldsögu sína, Útlaga, sem
fjallar um íslenska sósíalista sem lærðu í Austur-Þýskalandi.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Golli af Ingvari E. Sigurðssyni og Hilmi Snæ Guðnasyni.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hugrún
Halldórsdóttir, Hólmfríður Gísladóttir, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, Orri
Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson.
20
42
Augnablikið
H
eimavöllur enska knattspyrnuliðsins
Manchester United, Old Trafford, er
gjarnan kallaður Leikhús draumanna.
Stöku áhorfandi á viðureigninni við
Arsenal síðasta mánudagskvöld var sannarlega
sem í draumi og sumir létu eins og þeir væru í
miðju leikriti. Enda hafa sumir þeirra verið það
síðustu mánuði og eru eflaust enn. Það á a.m.k.
við sílesku námamennina sem voru heiðursgestir.
Fyrir leikinn röðuðu ljósmyndarar sér upp við
miðju vallarins og beindu löngum linsum sínum
upp í heiðursstúkuna. Ég hugleiddi hvaða fyr-
irmenni væru þar samankomin og spurði mann
vopnaðan myndavél og linsu:
„Sílesku námamennirnir.“
Þeir skemmtu sér konunglega, brostu hringinn
og veifuðu til fjöldans.
Blessaðir mennirnir; þeir áttu aldeilis skilið
glæsilega boðsferð á stórleik í enska boltanum.
Þetta var lunginn úr hópnum sem þurfti að hafast
við í námu langt undir yfirborði jarðar í tvo mán-
uði vestur í Síle í haust.
Áhugavert að vera staddur á sama leik og þeir.
Jafnvel þótt maður sjái þá bara tilsýndar. Síle-
búarnir eru kannski frægustu menn ársins, veit þó
ekki hvort það er rétta orðið, a.m.k. einhverjir
þeir umtöluðustu. Fallega gert hjá Manchester
United og samstarfsfyrirtæki félagsins í Síle, vín-
framleiðanda sem ég man ekki hvað heitir, að
bjóða hópnum yfir Atlantsála.
Daginn eftir er svo farið í skoðunarferð um leik-
húsið og þá göngum við í flasið á námamönn-
unum. Þeir á leið út úr búningsherbergi heima-
liðsins, við á leið inn. – Olé! Si! Amigo!
Það var álíka súrrealískt og þegar hópur manna
með garðsláttuvélar skundaði inn á völlinn kvöld-
ið áður, strax eftir leik.
skapti@mbl.is
Það var hálf súrrealískt að sjá hóp manna með garðsláttuvélar ganga inn á Old Trafford að leikslokum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sláttur á Sílebúum
Sílebúarnir brostu breitt og heilsuðu Íslendingunum.
Fátt er tignarlegra en skíðastökkvari í miðju kafi. Það sýndi sig þegar
Austurríkismaðurinn Thomas Morgenstern sveif gegnum loftið á
heimsbikarmóti í Engelberg fyrir helgi. Morgenstern er í hópi
fremstu skíðastökkvara heims um þessar mundir og hefur unnið til
fjölda verðlauna á stórmótum, svo sem heims- og Ólympíuleikum.
Veröld
Reuters
Máttur Morgensterns
18. desember
Hátíðar PopUp
Verzlun skýtur
upp kollinum á
Mýrargötu 6
með vörum frá ýmsum hönn-
uðum.
18. desember
Jólapakkarall þar sem vörubíll
með syngjandi jólasveinum ekur
niður Laugaveginn og safnar
jólapökkum sem afhentir verða
Fjölskyldu-
hjálp og
Mæðrastyrks-
nefnd.
19. desember
Jólatónleikar á
Norðurpólnum til styrktar Fjöl-
skylduhjálp Íslands. Meðal tón-
listarmanna eru Björn Thorodd-
sen og Guitar Islandico,
Ragnheiður Gröndal, Þrjár
raddir og Beatur og Ari Eldjárn.