SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 32
32 19. desember 2010
A
llt þetta ár hefur tónlist-
armaðurinn Jón Þór Birgisson,
Jónsi, staðið í ströngu með
sólóverkefni sitt sem kristall-
aðist í breiðskífunni Go og kom út 5. apríl
síðastliðinn. Fyrri hluta ársins sat Jónsi
við upptökur og hljóðvinnslu og þegar
Go kom síðan út hófst tónleikaferð um
allan heim sem lýkur í Laugardalshöll 29.
desember næstkomandi – 99. tónleik-
arnir í röðinni.
Nú er Jónsi kominn til landsins eftir
viðburðaríkt ár og hefur sögu að segja.
Hann hafði lengi gengið með þá hug-
mynd í maganum að setja saman sóló-
skífu og það eru reyndar ansi mörg ár
síðan ég fékk að heyra frá honum dæmi
um það sem hann var að fást við á milli
þess sem hann spilaði og samdi með Sig-
ur Rós. Eftir að tónleikaferð Sigur Rósar
til að fylgja eftir breiðskífunni Með suð í
eyrum við spilum endalaust lauk í Laug-
ardalshöll í lok nóvember 2008 tóku
menn sér langþráð frí, til að leggjast í
barneignir, flytja og fást við verkefni sem
setið höfðu hakanum, balletttónlist, bíó-
tónlist og sólótónlist.
Þó að Jónsi hafi ætlað sér að gera sóló-
skífu byrjuðu þeir Jónsi og Alex Somens,
sambýlismaður hans, á að gefa út breið-
skífu, Riceboy Sleeps, sem þeir unnu að
mestu heima. Sú plata var upp full af
draumkenndum stemningum og greini-
legur heimilisiðnaður – maður heyrði
marra í gólfi og stundum umferðarnið.
Sólóskífan átti líka að vera einföld eins og
hann lýsti í viðtali í Morgunblaðinu fyrr á
árinu: „Þetta átti bara að vera lítil, óraf-
mögnuð plata, tekin upp af Alex í eld-
húsinu heima.“
Annað kom á daginn, skyndilega var
Jónsi kominn til Bridgeport í Connecticut
þar sem hann vann að skífunni með upp-
tökustjóranum Peter Katis, píanóleik-
aranum og tónskáldinu Nico Muhly og
slagverksleikaranum finnska
Samuli Kosminen. Afraksturinn, Go,
kom svo út 5. apríl sl. og eftir fylgdi fyrir
stuttu tónleikaplatan & -myndin Go Do.
Í tónleikaferðinni hefur Jónsi farið
víða: Austurríki, Ástralía, Bandaríkin,
Belgía, Bretland, Frakkland, Holland, Ír-
land, Ítalía, Japan, Kanada, Lúxemborg,
Noregur, Pólland, Spánn, Suður-Kórea
og Sviss. Ekki hef ég tölu á fyrir hve
marga var spilað í ferðinni, en þeir voru
öllu fleiri en Íslendingar og tónleikarnir
urðu sífellt fjölmennari eftir því sem leið
á árið. það kemur því varla á óvart þegar
Jónsi segist mjög ánægður með allt sam-
an, að ferðin hafi gengið frábærlega vel
og því betur sem leið á árið.
Frelsi og óttinn við frelsið
„Ég var ekki með neinar sérstakar vænt-
ingar þegar ég fór af stað,“ segir Jónsi og
bætir við að þó að hann hafi vitanlega
farið margar ferðir um heiminn með fé-
lögum sínum í Sigur Rós sé mikill munur
á því og að vera einn á ferð. „Nú var allt
náttúrlega undir mínu eigin nafni og ég
þurfti því að standa öðruvísi að þessu,
hef til dæmis aldrei veitt eins mörg viðtöl
og í tengslum við plötuna og tónleika-
ferðina,“ segir hann og dæsir, því nú var
náttúrlega enginn til að skipta verkum
með líkt og tíðkast innan Sigur Rósar og
hefur tíðkast frá því hljómsveitin var
stofnuð fyrir tæpum sautján árum.
„Þetta var auðvitað skerí,“ segir Jónsi,
„ég hef alltaf verið með þessa stráka sem
bakhjarla, skipst á hugmyndum og feng-
ið álit, en það var líka gaman, það er
ákveðið frelsi sem felst í því að vera einn
og geta gert hvað sem maður vill, unnið
með hverjum sem er. Það var þannig
gaman að fá að vinna með Nico og líka
gaman að fá Samuli á slagverkið og svo
framvegis. Maður stendur náttúrlega líka
frammi fyrir því að ef tekin er röng
ákvörðun er engum um að kenna nema
manni sjálfum,“ segir Jónsi og brosir í
kampinn. „Þegar ég fór yfir textana átt-
aði ég mig líka á því að þeir fjölluðu
margir um þetta eftir á að hyggja, frelsi
og óttann við frelsið – maður getur gert
Jónsi á sviðinu í Hammersmith Apollo í Lundúnum fyrir stuttu. Hann lýkur tónleikaferð um heiminn í Laugardalshölinni milli jóla og nýárs - 99. og síðustu tónleikarnir.
Uppskera
Jónsi slúttar ævintýralegu og skemmtilegu
ári með tónleikum í Laugardalshöll á milli
jóla og nýárs. Þá er tími til kominn að róa
sig niður, segir hann við komuna til lands-
ins, ná áttum og festa rætur að nýju.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is