SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 40

SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 40
40 19. desember 2010  Heimilislína Lindu Bjargar Árnadóttur - Scintilla „Scintilla púðar, dúkar, handklæði og sængurver frá ScintillaLimited á Pat- reksfirði eru eftir Lindu B. Árnadóttur, fata- og textílhönnuð. Óvenjuleg og per- sónuleg litasamsetning (fjölbreytt lita- val) og vönduð framleiðsla gerir þessa vöru einstaka. Sérstök munstur tryggja heimilinu persónulegri blæ. Maður svífur inn í draumaheim umvafinn þessari text- íl-línu.“ Fæst í hönnunargalleríinu Spark de- sign space að Klapparstíg 33 og á www.scintillalimited.com.  Hekluð púðluhundataska og hálsmen Hildar Yeoman „Hekluð púðluhundataska eftir Hildi Yeoman fatahönnuð er hnyttinn og frum- legur fylgihlutur. Töskurnar eru til í nokkrum stærðum og litum. Ekki hægt annað en að falla fyrir þessari frumlegu hönnun og smekklegu útfærslu á hekli. Ekki sakar að það er hægt að fara með „hundinn“ í göngutúr án þess að þurfa að taka með sér plastpoka. Og hann geltir ekki! Öll menin eru margnota, það er hægt að stílisera þau á marga mis- munandi vegu. Þau eru fullkomin til að poppa upp jólakjólinn.“ Fæst í KronKron á Laugavegi 63b, Mýrinni í Kringlunni og á vefversluninni Birkilandi www.birkiland.com.  Ullarjakki - Skaparinn „Dúsa í Skaparanum gerir of- boðslega fallegar og vandaðar ullarflíkur. Er alveg heilluð af rauðri kápu hjá henni. Sniðin hjá Dúsu eru eitthvað svo góð og kvenleg og ekki amalegt að flík- in sé hlý.“ Fæst í kiosk, Laugavegi 33, 2. hæð. Hönnun Frónbú M orgunblaðið og Hönnunarmiðstöð Íslands fengu til liðs við sig nokkra skapandi álitsgjafa til að velja íslenska hönnun í jólapakkann í ár. Þau eru: Diljá Ámundadóttir, verkefnastjóri hjá CCP, Edda Björg Eyjólfs- dóttir leikkona, Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars, Jóhannes Þórðarson, arkitekt og deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, Jóní Jónsdóttir, myndlistarkona í Gjörningaklúbbnum, Rósa Birgitta Ísfeld tónlist- arkona og Sigurbjörg Þrastardóttir skáld. Val álitsgjafanna ber glögglega með sér þá miklu grósku sem ríkir í íslenskri hönnun og að nánast sé hægt að uppfylla allar hugmyndir með fallegri íslenskri gjöf. Hér getur að líta þá hönnun sem oftast var nefnd af álitsgjöfum en í heildarlista þess sem kom inn ættu allir að finna íslenskar jólagjafir til að gleðja með um hátíðirnar.  Kjólar, skór og sokkabuxur frá Kron by KronKron „Verð eiginlega að segja að það sé nauðsynlegt að eiga annaðhvort kjól eða skó úr KronKron-línunni. Kjólarnir eru nýkomnir og eru ofboðslega klassískir og skórnir litríkir og fallegir. Þetta er eins og að vera krakki í sælgætisverslun.“ Fæst í versluninni KronKron á Laugavegi 63b.  Norðurmýrin - skurðarbretti eftir hönnunarhópinn 7-9-13 „Ótrúlega mögnuð hugmynd. Blóðið úr kjötinu rennur eftir götum í Norðurmýr- inni sem nefndar eru eftir hetjum Íslend- ingasagna. Frábært.“ Fæst hjá vefversluninni Birkiland www.birkiland.com.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.