SunnudagsMogginn - 19.12.2010, Qupperneq 52
52 19. desember 2010
The Man Who Loved Books Too Much – Allison
Hoover Bartlett Verðmæti gamalla bóka hefur hrapað á Íslandi og
er sjálfsagt hægt að kenna netinu um það eins og
margt annað. Það eru góð tíðindi fyrir bókasafn-
ara þar til þeir vilja selja safnið sitt. Í Bandaríkj-
unum geta gamlar bækur orðið gríðarlega verð-
mætar og bókasafnarar verða að hafa góð fjárráð
ætli þeir að eignast dýrustu gripina, eða finna sér
kima þar sem verðlag er ekki komið upp úr öllu
valdi. Svo er hægt að grípa til örþrifaráða. The
Man Who Loved Books Too Much fjallar um
óforbetranlegan fornbókaþjóf og fornbókasala, sem er á hælum hans
með snilldarlegum hætti.
Tears of a Clown - Dana Milbank bbmnn
„Þetta datt bara upp úr mér,“ segir Glenn Beck
stundum. Hann segir almannavarnir „reka
fangabúðir“ í Wyoming. Stjórnarskráin hangir á
bláþræði. Obama er rót alls ills, „það eina sem
hann hefur ekki gert er að hafa þvaglát yfir okk-
ur“. Beck tjáir skoðanir sínar. Beck er ýmist
reiður, yfirvegaður, hæðinn eða hágrátandi. Tár-
in eru kölluð fram með mentol-smyrsli. Er þá
ekkert ekta við Glenn Beck? Dana Milbank,
blaðamaður á Washington Post, notar orð Becks
sjálfs til að lýsa honum. Endurtekningarnar eru fullmiklar, en lest-
urinn fær mann til að velta fyrir sér hvort manninum geti verið al-
vara. Bankareikningur Becks sýnir hins vegar að málflutningurinn
borgar sig.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Erlendar bækur
Lesbókbækur
Ó
þarf ætti að vera að hafa mörg orð
um snilli sagnfræðingsins Antonys
Beevors þegar kemur að lýsingum á
hörmungum seinni heimsstyrjaldar.
Nokkrar bækur Beevors hafa komið út á íslensku
hjá Bókaútgáfunni Hólum. Ber þar hæst bækur
hans um orrustuna um Stalíngrad og fall Berl-
ínar. Seinni bókin er með miskunnarlausustu
lýsingum á hörmungum einstaklinga, þá sér-
staklega kvenna, sem hægt er að lesa. Nú hefur
D-dagurinn – orrustan um Normandí bæst við
og gefur tveimur áðurnefndum bókum ekkert
eftir.
Hræðslan við dauðann
D-dagur vakti mikla athygli þegar hún kom út í
Bretlandi árið 2009, rataði á metsölulista og
vakti hrifningu almennings og gagnrýnenda.
Beevor hefur einstaka hæfileika til að sviðsetja
atburði á þann hátt að lesandanum líður eins og
hann sé áhorfandi, horfi og sjái það sem er að
gerast. Beevor hefur áhuga á einstaklingum,
skoðar af athygli hvernig þeir bregðast við og
veit að manneskjan á til að gera hræðilega hluti í
sérstökum aðstæðum. Lýst er grimmdarverkum
og í þeim lýsingum er bandamönnum ekki hlíft,
þeir voru sekir um mikla grimmd, engu síður en
Þjóðverjar. Áhrifamiklar eru lýsingar á skelfileg-
um raunum ungra hermanna sem óttast dauðann
og kæra sig ekki um að verða hetjur. Þeir vilja lifa
af og komast til fjölskyldna sinna, eiginkvenna
og barna. Sumir þeirra taka þann kost að skaða
sjálfan sig fremur en að taka þátt í bardögum, en
er refsað harðlega fyrir, jafnvel teknir af lífi.
Beevor beinir einnig sjónum að örlögum
fransks almennings sem varð að líða miklar þján-
ingar og þar var mannfall mikið.
Magnaðar lýsingar
Bókin um D-dag er enginn skemmtilestur, en
hún er gríðarlega áhugaverð og mögnuð lýsing á
skelfingum stríðs. Beevor lagðist í mikla rann-
sóknarvinnu við gerð bókarinnar og vinnur afar
vel úr heimildum sínum. Þarna er vissulega að
finna tæknilegar útskýringar sem heilla kannski
ekki aðra en þá sem hafa brennandi áhuga á
hernaði. En Beevor meir en bætir það upp með
lifandi frásögn af einstaklingum sem berjast fyrir
lífi sínu við ömurlegar aðstæður, svangir og skít-
ugir. Of margir þeirra glötuðu mennskunni og
gerðust sekir um skelfilega hluti. Þannig er hinn
miskunnarlausi raunveruleiki stríðsins.
D-Dagur- Hermaður hreinsar riffil leyniskyttu.
Grimmd stríðsins
Rómuð bók Antonys Beevors um orrustuna um
Normandí er komin út á íslensku.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Í fyrsta sinn á íslensku:
Svanasöngur eftir Franz Schubert
og Ástir skálds eftir Robert Schumann
Eiður Ágúst Gunnarsson söngur
og Ólafur Vignir Albertsson píanó
Þetta er eina útgáfan af Schwanengesang og Dichterliebe
sem fáanleg er á íslensku. Þessir ljóðaflokkar eru eitt ástsælasta
efni tónlistarunnenda og því er mikill fengur að þeir skuli nú vera
aðgengilegir á íslensku.
Ljóðaflokkarnir voru hljóðritaðir á árunum 1983 og 1984 hjá
Ríkisútvarpinu og sungnir á íslensku í þýðingu Daníels Á.
Daníelssonar, fyrrum héraðslæknis á Dalvík.
Eiður Ágúst Gunnarsson er fæddur í Reykjavík árið 1936 og
hóf söngnám í Tónlistarskólanum og síðar hjá Vincenzo Maria
Demetz. Árið 1966 fór hann til Kölnar í Þýzkalandi til söngnáms.
Hann var síðan ráðinn við óperur í Þýzkalandi og Austurríki.
Haustið 1987 fluttist hann til Íslands og starfaði sem söngkennari
við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Söngskólann í Reykjavík.
Hann tók þátt í mörgum sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Íslensku
Óperunni og Borgarleikhúsinu.
Sala og dreifing: 12 tónar ehf
Skólavörðustíg 15 – 101 Reykjavík – sími 511-5656