Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.03.1985, Page 38

Skólablaðið - 01.03.1985, Page 38
kóflu hvað? Eitt af þeim félögum sem stofn- uð voru í haust er Skóflu- mannafélagið og hefur það verið talsvert áberandi í félags- lífinu í vetur. Til að fræðast ör- lítið meira um þetta athyglis- verða félag mæltum við okkur mót við Snorra Gunnarsson (der Kaiser) og spurðum hann fyrst hver skóflumannahug- sjónin væri. „Hver er hún? Ja ... það er nú dá- lítið erfitt að segja frá því. Hún er náttúrlega að leggja mikið upp úr svona efnislegum og jarðbundnum hugsunarhætti, - nú, að vera jarð- bundinn og efnishyggjumaður og svona alltaf fastur við jörðina, að leggja mikið upp úr vinnubrögðum og verktækni og þess vegna mun þetta leiða til mikilla framfara, svona efna- legra og þar af leiðandi náttúrlega kannski andlegrar ... sko, ef það er til eitthvað slíkt...“ Er einhver miðstjórn ífélaginu? „Nei, nei. Þetta er bara svona sam- bland af grasrótarpíramída og stjórn- leysi sem viðgengst hér. Keisarinn ræður svona þegar hann kemst að. Nú, stundum ráða einhverjir aðrir.“ Nú hlýtur það að vera mikil kúnst að munda skófluna. Hafið þið hugsað ykkur að halda námskeið í skóflu- mannafræðum? „Jú, það er mikil kúnst, mikið rétt. Nú, við höfum rætt þá hugmynd, en henni hefur ekki verið hrint í fram- kvæmd enn. Eeen, það er í raun mikil þörf á því, að kenna fólki hin ýmsu skóflugrip, sem eru mörg og misjöfn." En hvernig ganga stórframkvæmd- irnará vegum félagsins? „Nú, þær ganga ágætlega. En nátt- úrlega svona risaframkvæmdir eins og kvikmyndagerð, það náttúrlega gengur hægt. Það liggur í eðli málsins, en samt... ekkert illa miðað við að- stæður. Það er nú verið að stofna ,,skóflumannaband“ og við eigum náttúrlega okkar skófluskáld, Bjarna Ragnarsson, sem yrkir óðinn til skófl- unnar þegar það á við. Nú, göngin undir Ermarsund, þetta er allt saman í nefnd.“ Og h venær heldurðu að hún skili áliti? „Ja, það er mér nú ekki kunnugt. Henni voru ekki sett nein tímamörk.“ Er einhver fyrirmynd að þessu félagi? „Fyrirmynd? Neei, ekki beint svona. Nei, nei, þetta er alveg sprottið beint frá rótum héðan úr þessum jarðvegi.“ Er til eitthvað sem heitir skóflu- mannahúmor? „Skóflumannahúmor? Já, það held ég nú. Kannski það, að skopast að þeim sem eru eins jarðbundnir og við þykjumst vera. Fyrst og fremst það, held ég.“ Ertþú ástfanginn af Guðna? „Af.. . nei-nei, ekki beint svona.“ Er einhver ískóflumannafélaginu ást- fanginn afGuðna? „Ég held, að það sé þá aðallega platónsk ást, en mér er ekki svo kunn- 38 Skólablaðið

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.