SunnudagsMogginn - 01.05.2011, Qupperneq 3
Kæru verkalýðsleiðtogar, um leið og ég óska ykkur
og íslenskum verkalýð til hamingju með daginn, vil
ég vekja athygli á eftirfarandi:
Á sama tíma og ellilífeyrir er lækkaður, safna lífeyrissjóðirnir milljörðum á
milljarða ofan. Greidd iðgjöld í Gildi, annan af tveimur stærstu lífeyrissjóðum
landsins árið 2010, voru rúmir 11,2 milljarðar. Fjárfestingartekjurnar voru rúmir
9,7 milljarðar. Alls voru tekjurnar því um 21 milljarður en útgreiddur lífeyrir var
hins vegar aðeins tæpir 7,8 milljarðar. Tveir þriðju af tekjunum urðu því eftir í
sjóðnum. Hrein eign Gildis um áramót var um 241 milljarður. Sú upphæð ein,
og án vaxta, myndi duga til útgreiðslu lífeyris í 30 ár og 11 mánuði.
Væri því ekki nær að HÆKKA lífeyrinn frekar en lækka?
Hvaða þýðingu hefur það að safna í digra sjóði meðan eldri borgarar þessa
lands svelta? Hér er á ferðinni alvarleg hugsanaskekkja. Ég hvet ykkur til að
berjast fyrir leiðréttingu á þessu, íslenskum verkalýð til heilla.
Helgi Vilhjálmsson, íslenskur eldri borgari
PI
PA
R
\T
BW
A
-S
ÍA
\1
11
16
8
Upplýsingar teknar úr ársreikningi Gildis.
IÐGJÖLD 11.226
FJÁRFESTINGARTEKJUR 9.754
SAMTALS TEKJUR 2010 20.980
ÚTGREIDDUR LÍFEYRIR -7.785
EFTIR AF TEKJUM ÁRSINS 13.195
HREIN EIGN TIL GREIÐSLU Í LOK 2010 241.043
HREIN EIGN Í LOK ÁRS ENDIST Í 30 ÁR OG 11 MÁN.
2010 MILLJÓNIR
LÍFEYRISSJÓÐURINN GILDI
SETJUM
HNEFANN
Í BORÐIÐ!