SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Síða 4
4 8. maí 2011
Fríðindakort
fjölskyldunnar
Upplýsingar á golfkortid.is
„Tónleikarnir í Hörpu á mið-
vikudagskvöldið voru stórviðburður
í Íslandssögunni og væntanlega
ógleymanleg stund fyrir þá sem
upplifðu. Tónleikarnir voru fyrsti
viðburðurinn í húsinu og í vissum
skilningi sá mikilvægasti og mest
spennandi af mörgum glæsilegum
sem framundan eru,“ segir Þórgnýr
Dýrfjörð tónlistaráhugamaður á Ak-
ureyri, einn þeirra sem lýstu
óánægju sinni á Facebook með að
tónleikarnir væru ekki í beinni út-
sendingu í sjónvarpinu.
„Tilvist stóra salarins Eldborgar
snýst um þetta fyrst og fremst; að
lifandi sinfónísk tónlist eignist
loksins fyrirmyndarvettvang í höf-
uðborginni og SÍ framtíðarheimili
sem gerir henni mögulegt að vaxa enn frekar og
dafna. Spennan og eftirvæntingin að upplifa
hljómsveitina og hljómburðinn var því mikil.
Tilvalið hefði verið að sýna beint frá tónleik-
unum í Ríkissjónvarpinu en fram hefur komið að
ekki hafi fengist leyfi fyrir því þar sem engin
reynsla sé komin á upptökur og útsendingar frá
salnum. Þegar allt er á síðustu stundu er það
e.t.v. skiljanleg ástæða en þá má spyrja: Ef það
þótti of mikil tæknileg áhætta að senda beint út
frá fyrsta kvöldi mátti þá ekki gera það á öðrum
tónleikunum, á fimmtudagskvöldi? Með beinni út-
sendingu yrði viðburðurinn almenningseign, allir
sem vildu gætu þá orðið þátttak-
endur þó heima í stofu væri,“
segir Þórgnýr.
„Í öðru lagi hefðum við eignast
góða og stórmerka upptöku af
tónleikunum sem yrði gríðarlega
verðmæt heimild þegar fram líða
stundir.
Á sama tíma (að hluta) var í
sjónvarpinu mikilvægur íþrótta-
viðburður en með fullri virðingu
fyrir honum ekki með nokkru
móti sambærilegur þeim sem
fram fór í Hörpunni. Og þó þeir
séu snjallir handboltakapparnir
frá Akureyri og Hafnarfirði þá
hefði ég miklu heldur kosið að
sjá og heyra snillinginn Víking
Heiðar dansa á nótnaborði
Steinways í flutningi sínum á píanókonserti
Griegs.
Margir eru ósammála þessari forgangsröðun
minni sem byggist annars vegar á mati á mik-
ilvægi viðburðanna og hins vegar smekk. Og þá
má einnig spyrja: Er ekki möguleiki að nota endr-
um og sinnum aukarás RÚV þ.e. RÚV+ til þess að
sjónvarpa frá stærri menningar- og íþrótta-
viðburðum án þess að trufla hefðbundna dagskrá?
Þannig gætu allir sem vilja orðið þátttakendur í
þjóðarviðburðum óháð efnahag, óháð búsetu og
óháð sætafjölda á vettvangi. Félli slíkt ekki fal-
lega að hlutverki Ríkisútvarpsins?“
„Stórviðburður í Íslandssögunni“
Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmda-
stjóri Akureyrarstofu.
Ý
msum kom í opna skjöldu að Ríkissjón-
varpið skyldi ekki senda beint út frá fyrstu
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Hörpu í vikunni. Að margra mati var hér
um að ræða eina stærstu stund í íslenskri tónlist-
arsögu, þegar þessi frábæra hljómsveit steig fyrstu
opinberu skrefin í hinu rómaða húsi.
Spurt var: Hefði ekki verið við hæfi að bjóða þjóð-
inni allri að fylgjast með dýrðinni en ekki bara þeim
fáu sem komast fyrir í húsinu hverju sinni? Rétt er
að taka fram að Rás 1 útvarpsins sendi beint út frá
tónleikunum, en þjóðin fór sem sagt á mis við sjón-
ræna þáttinn.
Tæknilegir óvissuþættir
Í fyrstu beindist gagnrýnin að Ríkissjónvarpinu, að
minnsta kosti hjá þeim sem tjáðu sig um málið á Fa-
cebook, en síðan upplýsti stofnunin að hún hefði
ekki fengið leyfi til þess að sjónvarpa beint.
„Áhugann vantaði alls ekki hjá okkur en við feng-
um þau skýru skilaboð að það væri ekki inni í
myndinni að fengum að koma með vélar inn og
senda beint þetta fyrsta kvöld,“ segir Sigrún Stef-
ánsdóttir dagskrárstjóri RÚV við Sunnudagsmogg-
ann.
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, tónlistarstjóri
Hörpu, segir að það hefði vissulega verið gaman að
geta sent beint út frá fyrstu tónleikunum í Hörpu en
það hafi ekki verið talið ráðlegt.
„Hér hefur verið mjög margt að gerast á ótrúlega
stuttum tíma og ekki þótti ráðlegt að fjölga tækni-
legum óvissuþáttum. Við vissum hreinlega ekki hvar
við myndum vera stödd á þessum tímapunkti með
aðstöðuna í húsinu þótt við værum alltaf staðráðin í
að halda okkur við þessa dagsetningu. Það er auð-
vitað mjög mikilvægt að fyrsta sjónvarpsútsending
úr Hörpu sé vel unnin og hnökralaus eins og hún
verður örugglega þann 13. maí þegar sjónvarpað
verður beint frá opnunarhátíð hússins,“ segir Stein-
unn Birna við Sunnudagsmoggann.
„Það má alltaf deila um svona lagað og ég skil
mjög vel þá sem hefðu viljað njóta þessa sögulega
viðburðar í beinni útsendingu í sjónvarpi, en þetta
er sú leið sem farin var.“
Tekið var upp vegna heimildarmyndar
Hún ítrekaði að allir sem sæktust eftir gætu notið
þess að upplifa tónlist í Hörpu í fyrstu sjónvarps-
útsendingunni í næstu viku, þegar yfir 400 íslenskir
tónlistarmenn úr öllum geirum tónlistar munu
koma fram og flytja mjög fjölbreytta dagskrá.
„Þessum opnunartónleikum verður samt sem áður
deilt með þjóðinni þar sem þeir voru teknir upp í
tengslum við heimildarmynd sem verið er að gera
um húsið. Það þótti talsvert minni áhætta en bein
útsending m.a. vegna þeirra ljósa sem þarf til og
hugsanlega geta haft áhrif á hljómburð og hljóðvist
salarins vegna aukahljóða og búnaðar sem slíkum
útsendingum fylgja. Þessi tilhögun varð því ofan á.“
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago,
rekstrarfélags Hörpu, segir að þegar ljóst var að
húsið yrði ekki tilbúið nú í maí vegna vandamála
sem upp komu með glerhjúpinn, hafi farið fram
mikil umræða hjá fulltrúum eigendanna hvernig
haga ætti opnun hússins.
„Eftir miklar vangaveltur og umræður m.a. við
Ólaf Elíasson var ákveðið að opna húsið í áföngum
og leggja höfuðáherslu á stóra salinn og tónleika SÍ
4. maí, sem var sá dagur sem SÍ og Ashkenazy ósk-
uðu eftir,“ segir Þórunn.
„Lengi vel voru mikil áhöld um hvort húsið yrði
tilbúið 4. maí fyrir þessa tónleika. Salurinn var út
af fyrir sig að mestu tilbúinn, en tækniþættir alveg
á síðustu stundu og alls ekki fyrirséð að hljóm-
burður, sem mikil vinna og kostnaður hefur farið í,
yrði kominn í lag á fyrstu tónleikunum.“
Skýr afstaða hönnuða hljómburðar
„Viðbótarálag og truflanir vegna aukaljósa og ann-
arra þátta sem fylgja beinum sjónvarpsútsendingum
var talið geta skaðað þessa fyrstu tónleika og með
mjög skýrri afstöðu Artec [fyrirtækisins sem hann-
aði hljómburðinn í Hörpu] til þessara atriða var
ákveðið að fara ekki út í beina sjónvarpsútsend-
ingu, heldur taka upp aðra tónleikana og hafa
möguleika á eftirvinnslu upptökunnar ef þörf kref-
ur.“
Að sýna
eða ekki
sýna …
Hefði ekki átt
að sjónvarpa
beint úr Hörpu?
Mikið var um dýrðir á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu á miðvikudaginn og að sjálfsögðu húsfyllir.
Morgunblaðið/Ómar
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Þeir sem nutu fyrstu tónleika SÍ í Hörpu héldu vart vatni af
ánægju. „Ég er ennþá í vímu. Þetta voru alveg stórkostlegir
tónleikar. Húsið er eins og best verður á kosið og erfitt að
hugsa sér að hægt sé að gera betur í hljómburði,“ hafði Morg-
unblaðið eftir Guðmundi W. Vilhjálmssyni sem sótt hefur tón-
leika SÍ frá stofnun árið 1950. Guðmundur er fyrrverandi
stjórnarmaður í Samtökum um tónlistarhús.
Mikil hrifning