SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 12
12 8. maí 2011
V
ið eigum enga möguleika að sigra í
keppninni. Þótt Sjonni hafi verið frábær
tónlistarmaður og hafi gert þetta flotta
Eurovision-lag á það ekki eftir að skila
sér því við höfum til dæmis vont karma fyrir
það að segja Nei við Icesave. Við förum eftir
ýmsum Evrópustöðlum en erum of merkileg
til að ganga í Evrópusambandið. Annars get-
ur mér ekki verið meira sama. Þessi keppni
er rammpólitísk og frekar skrýtið fyrirbæri
og svartasti blettur keppninnar er að Ísrael
fái að keppa þarna þrátt fyrir að vera ekki
Evrópuþjóð og sé með blessun Evrópu að
murka lífið úr Palestínumönnum. Sem
manneskja get ég ekki horft fram hjá
framkomu og stríðsglæpum ríkis-
stjórnar Ísraels á Palestínuþjóðinni,
svo ég myndi vilja að íslenska þjóðin
ásamt sem flestum þjóðum Evrópu
myndi hætta að taka þátt í keppninni
til að mótmæla yfirgangi Ísr-
aelsmanna eða kannski væri betra að
banna ísraelsku þjóðinni að taka þátt
í keppninni. En ég skora á vini
Sjonna að hætta keppni til að mót-
mæla stríðsglæpum Ísraelsmanna og
að mótmæla því að þjóðir Evrópu loki
augum sínum fyrir þessari hræðilegu
staðreynd.
M
aður veit aldrei með nein lög á
neinum tíma því það hefur svo
rosalega mikið með það sem
gerist á sviðinu að gera. Það
getur eitthvað ævintýralegt galdramóment
gerst þannig að þá er það besta lagið og þá
heillast allir ótrúlega.
Það hefur oft gerst í Eurovision
að lag sem maður hélt ekki endi-
lega að væri mest grípandi af
öllum, átti kvöldið út af ein-
lægni þess og einhverju sem
gerðist í augnablikinu. Eins
og með þýska lagið í fyrra.
Þetta var ekki endilega besta
performansið eða mesta brjál-
æðið en þessi stelpa var bara
svo æðisleg og með svo mikla
útgeislun. Hver veit? Eitthvað
svipað gæti vel gerst aftur.
Þetta fer svo ótrúlega mikið
eftir því hver skín skærast en ekk-
ert að gera með það hver eyddi
mestu í sviðið og einhverja stæla þó
það hjálpi alveg stundum. Þetta
snýst allt um einhverja töfra sem ger-
ast á þessum þremur mínútum á svið-
inu. Auðvitað á íslenska lagið alltaf séns
eins og öll hin löndin líka.
MEÐ
Ragnheiður
Eiríksdóttir
tónlistarkona
Á íslenska lagið góða
möguleika í Evróvisjón?
’
Þetta snýst
allt um ein-
hverja töfra
sem gerast á þess-
um þremur mín-
útum á sviðinu.
Vinir Sjonna taka þátt í forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í Düsseldorf í Þýskalandi með lagið „Coming Home“ á þriðjudaginn.
Mánudagur
Sveinn Birkir Björns-
son Það er víðar en á
Íslandi sem snjór trufl-
ar knattspyrnumót:
„@jonassvedin: GIF
Sundsvall – Ljungskile om tio min-
uter. Snön faller.“
Miðvikudagur
Guðlaug Elísabet
Ólafsdóttir Það heyr-
ist ekki orðið manns-
ins mál fyrir fuglasöng
í Viðey! Yfirþyrmandi
rómantík í gangi hjá þeim þessa
dagana.
Þorgrímur Þráinsson
Þekkir einhver ein-
hvern sem gæti lum-
að á handboltamynd
sem var tekin þegar
íþróttin var iðkuð í leikfimisal MR,
íþróttasal Austurbæjarskóla og í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar.
Við erum að tala um tímabilið fyrir
og/eða um miðja síðustu öld.
Fimmtudagur
Víkingur Heiðar Ólafs-
son Takk fyrir fallegu
kveðjurnar elsku vinir,
og til hamingju með
okkar töfrandi Hörpu.
Fésbók
vikunnar flett
MÓTI
Snorri
Ásmundsson
listamaður ’
En ég skora á
vini Sjonna
að hætta
keppni til að mót-
mæla stríðsglæpum
Ísraelsmanna.