SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 45
8. maí 2011 45 LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar HLJÓÐHEIMAR 26.2. - 22.5. 2011 Salur 2 HLJÓÐBERG (Pet Sounds, v. 3.0) - Innsetning eftir Ragnar Helga Ólafsson. SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 14 - Í fylgd Ragnars Helga Ólafssonar. VIÐTÖL UM DAUÐANN 26.2. - 22.5. 2011 Salur 1 ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 Salir 3 og 4 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN KL. 14 - Rakel Pétursdóttir safnafræðingur. SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“. Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Á gráu svæði Hrafnhildur Arnardóttir (23.3. - 29.5. 2011) GUNNAR MAGNÚSSON ´61-´78 (11.2. - 29.5. 2011) Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17 KRAUM og kaffi Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ 9. apríl til 15. maí Elín Pjet. Bjarnason ÖLL ERUM VIÐ EINSKONAR TRÚÐAR Pjetur Hafstein ræðir sýninguna sunnudaginn 8. maí kl. 15:00 Opið 13-17, nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Verndi þig englar. Íslensk þjóðlög sunnudaginn 8. maí kl. 15 Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár List án landamæra – Tilraunastofa í myndlist Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Ljósmyndari Mývetninga. Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar Stoppað í fat – Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 IS(not) | (EI)land Samstarf 5 pólskra ljósmyndara og 5 íslenskra rithöfunda Sunnud. kl. 4 sýningarspjall með Hermanni Stefánssyni og Huldari Breiðfjörð Úr kössum og koffortum Gamlar ljósmyndir frá Hveragerði og nágrenni Síðasta sýningarhelgi OPIÐ: fi.-su. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði Ný sýning opnar 7. maí kl. 15 7. maí – 19. júní 2011 Hugvit Einar Þorsteinn Ásgeirsson 5. maí – 19. Júní 2011 List án landamæra - Abstrakt Jón B.K. Ransú og Guðrún Bergsdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Þ að er ekki öllum rithöfundum gefið að skrifa svo leikandi léttan stíl að engu er líkara en viðkom- andi hafi ekkert fyrir hlutunum. Höfundur sem þetta kann leiðir lesandann áfram og heillar hann stöðugt með fimi sinni. Einn rithöfundur kunni þetta öðrum fremur. Sá er P. G. Wodehouse. Hann lést árið 1975, 93 ára gamall, og gætti þess að nýta tíma sinn vel því hann skrifaði rúmlega 90 skáldverk, skáldsögur og smásagnasöfn og vann fram á síðasta dag. Hann hefur alla tíð átt staðfasta aðdáendur og bækur hans eru enn víðlesnar og færa lesendum stöðuga gleði og ánægju. Wodehouse kunni að vera fyndinn og það er nánast ómögulegt að lesa bók eftir hann án þess að hlæja upphátt. Fáir geta til dæmis leikið sér að þekktum tilvitn- unum eins og hann gerir eða sett þær í jafn kostulegt samhengi. Samtöl í bókum Wodehouse eru yfirleitt óborganleg. Sér- viskulegt fólk breiðir úr sér á síðunum og persónurnar, hinn seinheppni Bertie Wo- oster, hinn ráðagóði Jeeves, hinn mjög svo utan við sig Emsworth lávarður, hinar óteljandi ógnvekjandi frænkur og hin ástsæla sílspikaða gylta, keisaraynjan af Blandings, lifa enn góðu lífi þótt höfundurinn sé löngu fallinn frá. Bækur höfundarins, sem hljóta að teljast með þeim skemmtilegustu í heimi, eru í stöðugri endurprentun, þótt því miður sjáist ekki mikið af þeim í íslenskum bóka- búðum. Í Bretlandi hófst fyrir nokkrum árum útgáfa á heildarverkum hans hjá Everyman. Bækurnar eru inn- bundnar í fallegu broti og innihaldið er með skemmtileg- asta lesefni sem hægt er að ná í. Það er hægt að gera margt vitlausara í lífinu en að safna þessum bókum. Þær veita sannarlega mikla gleði. Sá skemmtilegasti ’ Wode- house kunni að vera fyndinn og það er nánast ómögulegt að lesa bók eftir hann án þess að hlæja upphátt. Orðanna hljóðan Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Ó hugnaðurinn heldur innreið sína í Lin- köping á heitasta sumri í manna minn- um,“ segir á bókarkápu glæpasögunnar Sumardauðans eftir Mons Kallentoft og eftir rólega byrjun æsist leikurinn þar til spennan nær hámarki í sögulok. Þetta er ágætis krimmi, en frásögnina mætti samt stytta töluvert. Engu að síður heldur sagan lesanda við efnið og sá sem hér heldur á penna lagði bókina ekki frá sér fyrr en að lestri loknum. Sumarhitinn þjakar íbúa í sænsku borginni Lin- köping, sem er á stærð við Reykjavík. Menn berj- ast við skógarelda á meðan aðrir kæla sig í sund- laugum eða á börum. Nakin og blóðug unglingsstúlka, sem hefur misst minnið, finnst í almenningsgarði og hjól lögreglu og fjölmiðla fara að snúast í hitabylgjunni. Höfundur leikur sér að eldinum þar sem hiti og vatn gegna veigamiklum hlutverkum. Inn í frá- sögnina blandast vettvangur hryðjuverka í Balí í suðri sem er eins og barnaleikvöllur í samanburði við ástandið í Linköping, og hörmungar stríðs í Finnlandi og Bosníu. Konan sem kvartaði yfir því að íslenskir krimmar gerðust oft á stöðum þar sem flugu hefði aldrei verið gert mein, hvað þá meir, má þakka fyrir að búa ekki í Linköping eða eiga þangað rætur að rekja, því sláturtíðin þar og við- bjóðurinn á 10 heitum sumardögum er viðameiri í Sumardauðanum en menn eiga almennt að venj- ast. Umræða um útlendinga í Svíþjóð og allt að því hatur Svía á innflytjendum hefur stundum verið áberandi í sænskum fjölmiðlum. Höfundur gerir út á þetta viðhorf, rasismann, útlendingar eru gerðir grunsamlegir og á þeim traðkað. Einnig fá aðrir minnihlutahópar eins og samkynhneigðir til tevatnsins. Sagan þrífst á ofbeldi, en jafnvel lög- reglumanni blöskrar framganga vinnufélaga síns í því efni, þó eftir standi að nánast allt ofbeldi í sög- unni hafi sinn tilgang. Afbrot fortíðarinnar rétt- læta það. Sem fyrr segir er Sumardauðinn ágætis af- þreying. Textinn er lipur og þýðingin góð. Malin Fors er rannsóknarlögreglufulltrúi sem kælir sig með bjór og tequila innra og í sundi ytra, á sinn rekkjufélaga og leysir málið eins og vera ber. En þessi árátta að halda því að lesendum að lög- reglumenn séu sídrekkandi áfengi á milli vakta er frekar ótrúverðug. Nokkur önnur atriði orka tví- mælis en höfundi tekst að afvegaleiða lesendur og þannig viðhalda spennunni, þrátt fyrir að þó nokkuð sé eftir af sögunni þegar ætla má hvern helst þurfi að stöðva. Sumardauðinn er sannkall- aður sumarauki fyrir aðdáendur spennusagna. „Höggormar á hörundinu“ Bækur Sumardauðinn bbbmn Eftir Mons Kallentoft. Ísak Harðarson þýddi. 478 bls. Uppheimar 2011 Sænski rithöfundurinn Mons Kallentoft. Steinþór Guðbjartsson

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.