SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 27
hrófla við undirstöðum varnarkerfisins á Íslandi. Þá var bæði litið á pólitísku myndina og þann viðbúnað, sem þyrfti að hafa í landinu. Hins vegar segir í skýrslunni að gera verði ráð fyrir að hann muni dragast saman og verði kannski með nýrri kostnaðar- eða verkaskiptingu. Þetta kemur fram 1993. 1994 er síðan gerð bókun við varn- arsamninginn um að Bandaríkjamenn ætli að halda hér úti að minnsta kosti fjórum orrustuþotum, en þeir voru þá með 12. Þessi bókun var gerð til tveggja ára.“ Björn segir ljóst að þarna hafi ný viðhorf sett svip á af- stöðu Bandaríkjamanna. „Ég gagnrýndi að sett væru tímabundin ákvæði,“ segir hann. „Það væri algerlega í andstöðu við eðli varnarsamningsins. Á sínum tíma voru til varnarsamningar við til dæmis Grikkland, Portúgal og Spán, en þeir voru allir tímabundnir. Á fimm ára fresti voru fréttir af því hvort þeir samningar yrðu endurnýj- aðir með tilheyrandi spennu. Íslenski varnarsamning- urinn var og er ótímabundinn, en við bókunina 1994 og endurnýjun hennar til fimm ára frá 1996 tók að myndast spenna milli bandarískra og íslenskra stjórnvalda vegna tímafresta. Á þessum tíma sögðu íslenskir stjórn- málamenn að teknar yrðu sameiginlegar ákvarðanir. Árátta til einhliða ákvarðana ágerðist Bandaríkjamenn hefðu ekki aðeins ákveðið að hafa sam- ráð við Íslendinga, heldur taka sameiginlegar ákvarðanir. Með bókuninni 1996 féll ákvæðið um samráðið niður. Menn töldu að haft yrði samráð. Þegar seinni bókunin féll úr gildi 2001 ágerðist árátta Bandaríkjamanna til einhliða ákvarðana sem olli reiði íslenskra stjórnmálamanna. Ég gagnrýndi að „tæknimenn“ en ekki stjórnmálamenn tækju ákvarðanir.“ Björn rifjar upp að Donald Rumsfeld, sem varð varn- armálaráðherra í janúar 2001, hafi þegar í mars tekið að senda minnisblöð, vafalaust vegna þess að bókunin var runnin út, innan stjórnkerfisins, sem sýna svart á hvítu að hann var síður en svo áhugasamur um að hafa varn- arliðið áfram hér á Íslandi. „Bandaríska utanríkisráðuneytið vildi ganga fram af meiri varúð. Barbara J. Griffiths, sendiherra á Íslandi, skrifar minnisgrein í ársbyrjun 2001 og varar Bandaríkja- stjórn við að fara fram af gáleysi í þessu máli gagnvart ís- lenskum ráðamönnum og stjórnmálamönnum því að þeir hafi dregið ákveðin rauð strik og sagt hingað og ekki lengra.“ Björn kveðst vera þeirrar skoðunar að pólitísk þróun á Íslandi eins og brotthvarf Davíðs Oddssonar úr ríkisstjórn hafi ekki skipt máli um brottför varnarliðsins. „Eftir því sem Bandaríkjaher varð þrautpíndari vegna átaka í Afg- anistan og Írak styrktust rök Rumsfelds fyrir því að ekki væri hægt að halda úti orrustuþotum og reka Keflavík- urstöðina eins og ekkert hefði í skorist. Ég held að þeir hafi sérstaklega verið að hugsa um björgunarþyrlusveit- ina. Hvað hún væri að sinna björgun fiskibáta og fjall- göngumanna á Íslandi þegar þörf væri fyrir hana annars staðar. Orrustuþotur án þyrlusveitar eru óþekkt stærð í Bandaríkjunum. Af skjölum Rumsfelds má ráða að hann virðist halda að Íslendingar séu alltaf að hugsa um varn- arstöðina í fjárhagslegu tilliti, tali um björgunarsveitina af því að þeir tími ekki að halda slíkri sveit úti sjálfir, hafi ekkert vit á hermálum og vilji ekki bera neinn kostnað. Þetta er allt byggt á misskilningi hjá honum.“ Björn segir að allt frá 1991 hafi hann verið talsmaður þess að Ísland legði meira af mörkum til eigin varna og flutt um það ræðu 1995. „Ég nefndi í því sambandi tölur og annað, sem ég taldi að sýndu að Íslendingar gætu vel axlað sjálfir ábyrgð á eigin vörnum.“ Taktleysi og skammsýni Í júlí árið 2006 þegar varnarliðið var á förum sagði Björn í samtali við breska blaðið Daily Telegraph að hann liti svo á að Bandaríkjamenn hefðu sýnt bæði „taktleysi“ og „skammsýni“ og bætti við: „Sá háttur, sem þeir hafa við- haft við brottförina pólitískt gæti haft áhrif á hvernig þeim yrði tekið kæmu þeir aftur.“ „Ég hef sagt þetta oft á fundum,“ segir hann, „líka þar sem Bandaríkjamenn hafa verið viðstaddir, bæði í Banda- ríkjunum og í Evrópu. Ég verð var við að þessari skoðun vex fylgi. Í raun er ótrúlegt að Bandaríkjamenn hafi talið að það væri annað hvort eða, að ekki væri um annað að ræða en að fara með allt liðið í stað þess að hafa eitthvert lið hér áfram. Við brottför varnarliðsins breyttist ekki að- eins pólitísk staða hér heldur í miklu stærra samhengi, geopólitískt. Ef tekin yrði ákvörðun um að það kæmi aft- ur hvernig yrði það túlkað í hinu stóra samhengi öryggis- mála, hvað sem sagt verður um stöðuna innan lands? Það kynni að magna spennu. Í því pólitíska ljósi var þetta mjög varasamt. Síðan hefur það gerst að nú eru hern- aðarumsvif litin öðrum augum á okkar slóðum en gert var 2006 því að hlýnun jarðar, athyglin á norðurslóðir hefur breytt stöðunni. Það yrði ekki auðvelt að ætla að gjörbreyta stöðu Íslands aftur heldur stórpólitísk ákvörð- un, bæði fyrir okkur hér heima fyrir og fyrir þá, sem vildu gera slíkt. Einu rökin, sem ég sé fyrir auknu og nánara samstarfi í öryggismálum við Bandaríkin, lúta að öryggi á hafinu og þar skipta borgaralegar ráðstafanir máli. Við erum að efla Landhelgisgæslu Íslands með nýrri flugvél og nýju varðskipi, sem kemur í sumar og mun valda álíka mikilli byltingu í starfi gæslunnar og tónlist- arhúsið í starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á þann hátt verða íslensk stjórnvöld gjaldgeng með bestu tækjum við gæslu borgaralegs öryggis á Norðurlöndum. Þetta öryggi tryggja Íslendingar ekki einir. Í því efni er óhjákvæmilegt að efna til samstarfs við aðrar þjóðir. Þá samvinnu þurf- um við að efla og mér skilst að á fundi Norðurskautsráðs- ins í Nuuk á Grænlandi í næstu viku ætli utanrík- isráðherrar norðurslóðaríkja að ganga frá samkomulagi um leit og björgun. Íslendingar eiga að leggja kapp á að miðstöð fyrir slíka starfsemi norðurslóðaríkja verði hér á landi.“ Björn segir að Bandaríkjamenn séu nú að móta nýja norðurslóðastefnu og í skýrslu bandarískra hermála- yfirvalda segi að þeir þurfi að láta meira að sér kveða. „Ég held ekki að þeir hafi nein áform um að koma hingað aft- ur eða neitt slíkt, en þeirra viðhorf hafa breyst eins og annarra. Þeir gera sér grein fyrir að þeir hafa heim- skautahagsmuna að gæta og enginn gætir þeirra fyrir þá.“ Verðum að verjast glæpahópum Jón Sigurðsson sagði á nítjándu öld að Ísland væri án her- varna og glæpaflokkar gætu hæglega lagt landið undir sig. Nú er landið aftur án hervarna. „Sumir segja að glæpaflokkar hafi nú þegar hreiðrað um sig á Íslandi og vonandi ná þeir ekki yfirhöndinni,“ segir Björn. „Skylda íslenskra yfirvalda er að tryggja ör- yggi borgaranna. Þess vegna ber að efla lögregluna, hafa hér öfluga sérsveit lögreglu, öfluga greiningardeild og lögreglu með forvirkar rannsóknarheimildir. Jón Sig- urðsson talaði um glæpahópa. Ég veit ekki hvort hann átti við Jörund hundadagakonung, en margsinnis hefur verið sagt að hér í landinu séu glæpahópar, sem eru að verulegum hluta útlendingar. Við verðum að verjast þessu, en við þurfum ekki her til þess, við þurfum ekki fallbyssur eða orrustuþotur, heldur annars konar við- búnað. Engin þjóð hefur stofnað her til að verjast skipu- lagðri glæpastarfsemi, en við megum ekki slá af og skapa öryggisleysi og ótta. Þetta eru skyldur stjórnvalda. Eng- inn býst við að ráðist verði á Ísland, en ef við erum and- varalaus getum við tapað stjórninni hér því að hægt er að grafa undan stjórnarháttum eftir öðrum leiðum en gam- aldags hernaðaraðgerðum.“ „Enginn býst við að ráðist verði á Ís- land, en ef við erum andvaralaus get- um við tapað stjórninni hér því að hægt er að grafa undan stjórn- arháttum eftir öðrum leiðum en gam- aldags hernaðaraðgerðum.“ Morgunblaðið/Kristinn ’ Það yrði ekki auðvelt að ætla að gjörbreyta stöðu Íslands aftur heldur stór- pólitísk ákvörðun … Bandarískir dátar stilla sér upp í her- flugvél í flugskýli á Keflavíkururflugvelli. Morgunblaðið/Ól.K.M. Íslensk fjölskylda horfir á Kanasjónvarpið 1961. Umræðan um varn- arliðið snerist meðal annars um menningarleg áhrif af veru þess hér. Morgunblaðið/Ól.K.M. Við formlega athöfn voru bandaríski og íslenski fáninn dregnir niður þegar varnarliðið fór og aðeins sá íslenski dreginn að húni að nýju. Morgunblaðið/ÞÖK

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.