SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Blaðsíða 24
24 8. maí 2011
Þ
ær fréttir bárust alheiminum á
mánudaginn að hryðjuverkaleið-
toginn Osama bin Laden væri lát-
inn. Hann hafði látist deginum áð-
ur eftir skotbardaga við bandaríska
sérsveitarmenn í Pakistan. Þykir réttlætinu
nú fullnægt en Bandaríkjamenn hafa reynt
að ná í skottið á Osama bin Laden allt frá því
að árásirnar voru gerðar á tvíburaturnana í
New York þann 11. september 2001 með
þeim afleiðingum að þúsundir manna létu
lífið. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, flutti
þjóð sinni fregnirnar af láti bin Ladens dag-
inn eftir og safnaðist fólk þá saman við Gro-
und Zero þar sem tvíburaturnarnir stóðu og
fögnuðu tíðindunum. Mátti sjá áhrif fregn-
anna á ýmsan hátt í Bandaríkjunum eins og
sést á þessum myndum. Þjóðin sýndi sam-
hug sinn með bandarískum hermönnum og
var fólki misheitt í hamsi. George W. Bush,
sem var Bandaríkjaforseti þegar hryðju-
verkaárásirnar voru gerðar, sagði aðgerðina
vera afar þýðingarmikið afrek og óskaði
hann Obama og bandarísku leyniþjónust-
unni til hamingju. Andlát Osama bin Ladens
hefur líka vakið mikil viðbrögð fyrir utan
Bandaríkin. Þannig sagði David Cameron,
forsætisráðherra Bretands, þegar hann
heyrði fréttirnar að fólki um allan heim væri
létt að heyra þessar fréttir. Miklar umræður
hafa spunnist um það hvort rétt sé að birta
mynd af líki bin Ladens til sönnunar á and-
láti hans. Líkið ku hafa verið mjög illa farið
eftir árásina og talið að slík myndbirting gæti
þótt ómannúðleg og kynt undir frekari árás-
um.
Lögreglan stendur
við Ground Zero þar
sem menn höfðu
komið fyrir blómum
til minningar um þá
sem létust 11.sept-
ember 2001.
New York-búi
gengur framhjá
sjónvarpsskjá á
Times Square þar
sem rúlluðu fréttir
um lát Bin Ladens
allan daginn.
Fólk safnaðist saman við Ground Zero
þar sem tvíburaturnarnir stóðu og fögn-
uðu tíðindunum af láti Osama Bin Lad-
ens. Fólki var misheitt í hamsi og þessi
herramaður vildi kalla herinn heim en um
leið útrýma öllum meðlimum al-Qaeda.
Fögnuður við
Ground Zero
Fréttir bárust af andláti hryðjuverkaleiðtogans Osama
bin Ladens í vikunni. Árni Torfason og Brynjar Gunn-
arsson voru við Ground Zero þennan örlagaríka dag.
Texti María Ólafsdóttir maria@mbl.is Ljósmyndir Árni Torfason og Brynjar Gunnarsson
Bak við tjöldin