SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Side 38
38 8. maí 2011
Í
slenska karlalandsliðið í knattspyrnu varð að lúta í lægra haldi fyr-
ir Svíum í landsleik liðanna í ágúst 1983. „Tvö ódýr mörk Svía
komu íslenska liðinu úr jafnvægi,“ sagði í frétt Þórarins Ragn-
arssonar í Morgunblaðinu. Leikur þessi, fyrir bráðum þrjátíu ár-
um, er vísast flestum gleymdur en kapparnir tveir sem sátu í stúku
fréttamanna og lýstu því sem fram fór fyrir þjóðinni eru mörgum minn-
isstæðir. „Hér má sjá tvö kunnugleg andlit og ef myndin gæti talað þá
þekkti örugglega hvert mannsbarn á Íslandi þessa kappa. Sigurður Sig-
urðsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins, og Hermann
Gunnarsson, sem gegnir því starfi í dag,“ sagði í Morgunblaðsfrétt.
Þegar hér var komið sögu hafði Sigurður ekki lýst íþróttakappleik í
þrettán ár. Eigi að síður var hann goðsögn og er enn í dag. „Komiði sæl,“
sagði Sigurður jafnan í upphafi kynninga sinna sem gripu þjóðina sterk-
um tök. Með sinni rámu, hlýju og ofurlítið nefmæltu rödd tókst honum
að mynda ótrúlega sterkt samband við þjóðina, hvort sem hlustendur
höfðu áhuga á íþróttum eða ekki. Í stúkunni Stórveldið Sigurður Sigurðsson og Hermann Gunnarsson lýsa landsleik í ágúst fyrir 28 árum.
Morgunblaðið/Úr safni
Myndasafnið 17. ágúst 1983
Sagði frá af-
rekum þjóðar
E
ndalokin nálgast. Á laugardaginn eftir tvær
vikur verður dómsdagur, sennilega um sex-
leytið eftir hádegi. Sú er að minnsta kosti trúa
predikarans Harolds Camping frá Oakland í
Kaliforníu og hann iðar í skinninu.
„Það nálgast,“ sagði Camping í blaðaviðtali fyrir
skömmu. „Þetta er að verða dálítið svakalegt ef hugsað
er út í það. Við erum að tala um að vera dauður að eilífu
eða að lifa að eilífu og nú nálgast úrslitastundin.“
Camping er 89 ára og hefur legið yfir Biblíunni í 70 ár
að sagt er. Hann hefur áður spáð dómsdegi. 6. sept-
ember 1994 söfnuðust nokkrir tugir áhangenda Camp-
ings saman í Alameida í Kaliforníu og biðu eftir end-
urkomu Krists, héldu á opinni
Biblíu og horfðu til himins.
Ekkert gerðist.
Fyrirsagnirnar voru háðs-
legar, „Dómsdegi seinkaði“ og
þar fram eftir götunum. Nú
segir Camping að á þeim tíma
hafi hann átt eftir að rannsaka
stóra hluta Biblíunnar. „En nú
höfum við haft tækifæri til að
gera gríðarlegar rannsóknir,“
er haft eftir honum, „og Guð
hefur látið okkur fá fram-
úrskarandi sannanir fyrir því
að þetta muni í raun gerast.“
Dómsdagstrúarmenn hafa haldið því fram að heims-
endir verði á næsta ári. Dagatal hinna fornu maja-
indíána endi þá og sömuleiðis heimurinn. Camping gef-
ur ekkert fyrir það.
Camping segist hafa notað aðferðir stærðfræðinnar til
þess að afhjúpa leyndarmál Bilbíunnar. Heimildum ber
ekki alveg saman um forsendurnar. Hann er sagður
halda því fram að 21. maí á þessu ári séu nákvæmlega
7000 ár liðin frá syndaflóðinu. Þessi 7000 ár endurspegli Samsett mynd/Elín
Harold Camping predikar.
Bandarískur predikari segist
hafa lesið úr Biblíunni hvenær
Kristur snúi aftur og komist að
því að heimsendir sé í nánd.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Boðar
dómsdag
21. maí
Frægð og furður