SunnudagsMogginn - 08.05.2011, Side 44
44 8. maí 2011
Sam Torode - The Dirty Parts of the Bible bbbnn
Titillinn ber það ekki með sér en þetta er píkaresk
þroskasaga af dreng sem heldur til smábæjar í Tex-
as að leita að fé sem faðir hans fól þar mörgum ár-
um áður. Biblían kemur þá aðeins við sögu að fað-
irinn er ofsatrúaður prédikari sem sagði skilið við
fjölskyldu sína fyrir trúna og drengur því sífellt að
vitna í Biblíuna, en kemur söguþræðinum ekki
beinlínis við. Í leitinni að fjölskyldugullinu finnur
piltur dýrmætari hluti en peninga, kynnist fjöl-
skyldunni sem faðirinn hafnaði, finnur lífsförunaut
og eignast vini. Framvindan er ævintýrakennd og ekki skortir afkára-
legar uppákomur, sumar meira að segja dulrænar. Ágætis afþreying.
David Lebovitz - The Sweet Life in Paris bbbnn
Þegar David Lebovitz missti lífsförunaut sinn
ákvað hann að venda sínu kvæði í kross, sagði skil-
ið við San Fransisco, seldi glæsihús sitt og fluttist í
litla risíbúð í París þar sem hann kom undir sig fót-
unum að nýju. Í Bandaríkjunum var hann þekktur
fyrir bækur um ævintýralega eftirrétti og hann var
ekki lengi að taka upp þráðinn í Frakklandi þó það
væri með aðeins öðruvísi áherslum enda þurfti
hann að læra margt upp á nýtt og þá ekki bara hvað
hráefni hétu heldur líka það að sumt var og er illfá-
anlegt í Frakklandi sem mönnum þykir sjálfsagt vestan hafs. Eins
kynntist hann í Frakklandi ýmsu nýju sem hefur orðið honum inn-
blástur. Hann lýsir lífinu í París býsna skemmtilega og skreytir með
uppskriftum að aðal- og eftirréttum og öllu þar á milli, segir
skemmtisögur af samskiptum sínum við Frakka og gerir miskunn-
arlaust grín að þeim og reyndar að sjálfum sér líka. Sjá einnig vefsetur
Lebovitz, www.davidlebovitz.com/.
Caroline Leavitt - Pictures of You bbmnn
Í sem stystu máli má lýsa þessari bók sem fáguðu
tilfinningaklámi, en mér finnst líklegt að margir
muni leggja bókina frá sér ósáttir. Bókin segir af
ungri konu sem yfirgefur ótrúan sambýlismann og
heldur út í óvissuna. Hún kemst þó ekki langt því
hún lendir í bílslysi og verður annarri ungri konu
að bana, en lán í óláni að sonur þeirrar konu kemst
af. Ekki ýkja löngu eftir slysið kemst sú sem eftir
lifði í kynni við eiginmann hinnar látnu og hefst nú
mikil tilfinningaflækja. Ekki er vert að rekja sögu-
þráðinn, en heldur þótti mér hann ótrúverðugur og klénn þegar upp
var staðið. Það er þó huggun að allir náðu loks að höndla hamingjuna,
þó kannski ekki á þann hátt sem þeir höfðu vænst eða óskað.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. The Confession - John Gris-
ham
2. 9th Judgement - James
Patterson
3. Minding Frankie - Maeve
Binchy
4. The Reversal - Michael
Connelly
5. Mini Shopaholic - Sophie
Kinsella
6. Solar - Ian McEwan
7. Mortal Remains - Kathy
Reichs
8. Angelology - Danielle Trus-
soni
9. That Perfect Someone - Jo-
hanna Lindsey
10. Started Early, Took My Dog
- Kate Atkinson
New York Times
1. Water for Elephants - Sara
Gruen
2. The Sixth Man - David Bal-
dacci
3. Something Borrowed -
Emily Giffin
4. The Help - Kathryn Stockett
5. A Game of Thrones -
George R.R. Martin
6. The Lincoln Lawyer - Mich-
ael Connelly
7. The Fifth Witness - Michael
Connelly
8. Eve - Iris Johansen
9. Chasing Fire - Nora Ro-
berts
10. The Land of the Painted
Caves - Jean M. Auel
Waterstone’s
1. Dead Reckoning - Char-
laine Harris
2. The Short Second Life of
Bree Tanner - Stephenie
Meyer
3. Breaking Dawn - Stephenie
Meyer
4. The Girl Who Kicked the
Hornets’ Nest - Stieg Lars-
son
5. Bite Club - Rachel Caine
6. Kiss of Death - Rachel
Caine
7. The Rogue - Trudi Canavan
8. Winnie in Space - Valerie
Thomas, Korky Paul
9. Midnight - L.J. Smith
10. The Lost Symbol - Dan
Brown
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Ó
hætt er að segja að útgáfa Uppheima á
norrænum glæpasögum í kiljum sé vel
heppnað framtak. Bækurnar koma út í
bókaflokki sem nefnist Undir-heimar,
og eru nær undantekningarlaust framúrskarandi
glæpasögur. Við lestur þessara bók undrast maður
ekki uppgang norrænna glæpasagna sem njóta
mikilla vinsælda víða um heim. Þarna eru yfirleitt á
ferðinni bækur sem eru vandlega hugsaðar og vel
samdar og höfundar leggja nokkuð á sig til að vanda
persónusköpun. Þessar bækur eru jafnan mun betri
en hinar dæmigerðu bandarísku og bresku spennu-
sögur þar sem lagt er upp úr hraða og æsingi en lítt
hugað að byggingu og persónusköpun.
Meðal þeirra bóka sem Uppheimar gefa út
þetta árið eru Náttbál eftir sænska höfundinn Johan
Theorin og Hinir dauðu eftir Norðmanninn Vidar
Sundstøl.
Hágæða glæpasaga
Í fyrra kom út hjá Uppheimum bókin Hvarfið eftir
Johan Theorin sem hlaut CWA John Creasey Dag-
ger verðlaunin árið 2009. Þetta árið kemur Nátt-
bál eftir sama höfund, og er jafnvel enn betri bók.
Náttbál hlaut Glerlykilinn, Norrænu glæpasagna-
verðlaunin, árið 2009, og Duncan Lawrie Int-
ernational Dagger verðlaunin árið 2010. Þetta er
hágæða glæpasaga sem rígheldur lesandanum.
Hjón verða leið á að búa í Stokkhólmi og flytja
með börn sín á afskekktan stað. Svo gerist óhugn-
anlegur atburður. Í fyrri hluta bókarinnar er óvænt
og snjöll vending í söguþræði. Bókin er gríðarlega
spennandi og lesandinn er ekki viss um hvort
hann sé að lesa bók þar sem hið yfir-
náttúrulega hefur tekið öll völd eða
hvort rökréttar skýringar séu á at-
burðum. Þetta er ein af bestu
glæpsögum á markaði nú um
stundir.
Sálfræðileg spenna
Hinir dauðu er önnur bók-
in í þríleik Vidars Sund-
stöls en fyrsta bókin Land
draumanna kom út á ís-
lensku árið 2010.
Í Landi draumanna
var ferðamaður myrtur á bökkum Lake Superior í
Minnesota. Lögreglumaðurinn Lance Hansen rann-
sakaði morðið. Maður er handtekinn fyrir morðið
og settur í fangelsi. Í Hinum dauðu er Lance orðinn
nokkuð sannfærður um að saklaus maður sitji í
fangelsi og telur bróður sinn Andy vera hinn seka.
Bræðurnir fara saman í veiðiferð þar sem spennan
milli þeirra magnast.
Höfundurinn er einkar flinkur við að laða fram
spennuþrungið andrúmsloft milli tveggja manna
úti í náttúrunni. Bókin er fremur sálfræðileg
spennusaga en hasarsaga. Það er aðdáunarvert að
höfundi skuli takast með svo miklum ágætum að
láta bók snúast nær eingöngu um sálfræðilegt stríð
milli tveggja manna.
Lesendur hljóta að bíða
spenntir eftir síðustu
bókinni í þrí-
leiknum. Ekki er
ástæða til annars en
að ætla að höfundur
ljúki verkinu fag-
mannlega, því
hann kann til
verka.
Johan Theorin: Verðlaunahöfundur sem kann að skapa spennu.
Norræn spenna
í góðum bókum
Náttbál eftir Johan Theorin og Hinir dauðu eftir Vidar
Sundstøl eru nýjar glæpasögur á markaði.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Vidar Sundstöl:
Höfundur sem býr yfir
sálfræðilegu innsæi.
Morgunblaðið/Sigurgeir S