SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Qupperneq 8
8 29. maí 2011
Huguette Marcelle Clark fæddist í París 9. júní
1906, yngsta barn auðkýfingsins Williams Andrews
Clarks frá Montana. Hann var einn af koparkóng-
unum svonefndu og snemma á síðustu öld fullyrti
The New York Times að hann væri annað hvort rík-
asti eða næstríkasti maður Bandaríkjanna á eftir
John D. Rockefeller. Clark auðgaðist á koparvinnslu í
Montana og Arizona og átti banka, járnbrautir, dag-
blöð og sitthvað fleira. Eignir hans voru verulegar.
William Clark sóttist eftir sæti í öldungadeild
Bandaríkjaþings árið 1900 en varð að gefa það upp á
bátinn vegna þess að hann var staðinn að því að bera
fé á löggjafana sem útnefndu fulltrúana samkvæmt
lögum á þeim tíma. Varð atvikið vatn á myllu þeirra
sem vildu færa vald þetta til fólksins. Clark var þó
hvergi af baki dottinn og náði kjöri til setu í öld-
ungadeildinni ári síðar. Þar sat hann til 1907.
Enn hreyfði Clark við fólki þegar hann, kominn á
sjötugsaldur, kvæntist liðlega tvítugri stúlku, Önnu, í
upphafi tuttugustu aldarinnar. Ól hún honum tvær
dætur, Andrée 1904 og Huguette. Andrée lést af
völdum heilahimnubólgu aðeins sextán ára að aldri.
Þegar Huguette var fjögurra ára settist fjölskyldan
að í New York og ekki dugði minna en 121 herbergis
íbúð. William Clark andaðist árið 1925.
Huguette gekk að eiga laganemann William Go-
wer árið 1928 en þau skildu tveimur árum síðar.
Þeim varð ekki barna auðið. Eftir skilnaðinn flutti
hún til móður sinnar í New York og bjuggu mæðg-
urnar saman uns Anna lést árið 1963. Eftir það bjó
Huguette ein síns liðs, eða þangað til hún settist að
á sjúkrahúsinu.
Faðirinn reyndi að kaupa sér þingsæti
Systurnar Andrée og Huguette (til hægri) ungar að
árum ásamt föður sínum, William Andrew Clark.
H
ún dó eins og hún lifði, virðulega í
næði. Auðkýfingurinn Huguette
Clark hélt á fund feðra sinna í vik-
unni, tæplega 105 ára að aldri. Eftir
standa óteljandi spurningar sem mörgum
hverjum verður eflaust aldrei svarað.
Þrátt fyrir umtalsverð auðæfi barst Huguette
Clark aldrei á, tveimur síðustu áratugum ævi
sinnar eyddi hún undir dulnefni á sjúkrahúsi í
New York án þess að nokkur skapaður hlutur
amaði lengst af að henni. Sjón og heyrn voru
tekin að dofna en að öðru leyti var Clark við
góða heilsu langleiðina fram í andlátið. Sam-
skipti hennar við umheiminn voru lítil sem
engin eftir að hún lagðist inn á spítalann. Besta
vinkona hennar og ritari, Suzanne Pierre, hafði
aðgang að Clark en hún lést nýverið. Þess utan
fengu aðeins útvalinn hópur hjúkrunarfólks og
endurskoðandi hennar að koma inn á sjúkra-
stofuna. Fyrrverandi lögmaður hennar þjónaði
Clark í tvo áratugi en hitti hana aldrei augliti til
auglitis. Hann þurfti ávallt að ávarpa frúna
gegnum hurð.
Fáir höfðu heyrt Huguette Clark getið fyrr en
fjármál hennar tröllriðu fjölmiðlum óvænt í
fyrra. Það var vefmiðillinn Msnbc.com sem reið
á vaðið, sagði sögu Clark-fjölskyldunnar og
velti fyrir sér hvers vegna auður Huguette væri
í umsjá tveggja vandalausra manna, lögmanns-
ins Wallys Bocks og endurskoðandans Irvings
H. Kamslers, sem þykir vafasamur pappír. Er til
að mynda á skrá yfir kynferðisbrotamenn eftir
að hann var staðinn að því að senda 13 til 15 ára
stúlkum vafasamt myndefni á netinu. Fréttin
fór eins og eldur í sinu um Bandaríkin og víðar
og í kjölfarið ákvað saksóknari New York-
borgar að hefja rannsókn á fjármálum frúar-
innar. Hvort pottur væri einhvers staðar brot-
inn. Niðurstaða þeirrar rannsóknar liggur ekki
fyrir en Bock og Kamsler fullyrða að þeir hafi
farið í einu og öllu að vilja umbjóðanda síns.
Búið að selja fiðlu og málverk
Það sem meðal annars er til skoðunar eru
færslur á bankareikningum Clark, sala á Stra-
divarius-fiðlu úr hennar eigu fyrir 6 milljónir
dala, sem fór leynt, og sala á málverki eftir
Renoir á 23,5 milljónir dala.
Þá mun Clark hafa gefið Suzanne Pierre 10
milljónir dala og eftirlætishjúkrunarfræðingi
sínum aura fyrir kaupum á fjórum íbúðum.
Ekki fylgdi sögunni hvort hjúkrunarfræðing-
urinn væri óvenju barnmargur.
Sami saksóknari fer með mál Clark og fór
með mál hinnar forríku Brooke Astor en sonur
hennar og lögmaður voru sakfelldir árið 2009
fyrir að hafa stolið frá henni.
Hermt er að auðæfi Clark séu um það bil fjór-
um sinnum meiri en Astor.
Eignir Clark eru kappnægar. Fasteignirnar
eru þrjár en inn á þau heimili hafði hún ekki
stigið fæti um langt árabil. Í fyrsta lagi óðal
mikið í Santa Barbara, Kaliforníu, við Kyrra-
hafið sem metið er á um 100 milljónir Banda-
ríkjadala. Þar stakk Clark síðast við stafni á
sjötta áratug síðustu aldar. Í öðru lagi sveitaset-
ur í New Canaan, Connecticut, sem Clark lét
stækka en eyddi eigi að síður ekki einni einustu
nótt þar. Setrið er falt fyrir 25 milljónir dala.
Loks er um að ræða 42 herbergja íbúð á besta
stað í New York, þar sem gríðarmikið brúðu-
safn Clark er að finna en hún mun hafa verið
mikil áhugamanneskja um brúður og brúðu-
heimili. Í íbúðinni í New York eru einnig merk
málverk og húsgögn á heimsmælikvarða, að
sögn kunnugra. Verðmiðinn á íbúðinni er litlar
100 milljónir dala.
Allar eru eignirnar í toppstandi enda haldið
við af kostgæfni af þar til bærum aðilum. Hús-
gögn eru á sínum stað í Santa Barbara og garð-
urinn sleginn og snyrtur í viku hverri ef ske
kynni að sú gamla dytti í heimsókn. Sama má
segja um sveitasetrið enda þótt umsjónarmaður
þess viðurkenni að hann hafi hvorki haft hug-
mynd um hvort eigandinn væri lífs eða liðinn.
Hverjum er ekki sama skili launatékkinn sér?
Ekki liggur fyrir hver eða hverjir muni erfa
Clark en afkomendur hálfsystkina hennar sóttu
það stíft á liðnum árum að fá aðgang að frænku
sinni – án árangurs.
Huguette Clark verður lögð til hinstu hvílu í
leghöll Clark-ættarinnar í Bronx við hlið syst-
kina sinna, föður, móður og fyrri konu Clarks.
Brúðu-
konan
prúða
Hin vellauðuga
Huguette Clark
látin, 104 ára
Huguette Clark var hlédræg með endemum. Þetta mun vera síðasta ljósmyndin sem tekin var af henni, það herrans ár 1930.
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Huguette var nítján
ára þegar faðir henn-
ar lést. Hún fékk fyrst
um sinn 1,2 milljónir
Bandaríkjadala á nú-
virði í vasapening á
ári úr dánarbúinu.
Þegar hún varð 21
árs erfði hún síðan
fimmtung eigna föður
síns en þeim var
skipt á milli fimm
barna Williams
Clarks, þar af þriggja
af fyrra hjónabandi.
Þegar Clark dó voru
eignir hans metnar á
300 milljónir Banda-
ríkjadala eða 3,6
milljarða dala á nú-
virði.
Erfði ung
föður sinn
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út glæsilegt
sérblað um
Tísku og förðun
föstudaginn
3. júní
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 30. maí.
Í Tísku og förðun verður fjallað
um tískuna sumarið 2011 í
förðun, snyrtingu, sólarkrem-
um og fatnaði auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
Tíska & förðun
SÉRBLAÐ