SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 19
29. maí 2011 19 menn málinu strax mikinn áhuga og í júní 2009 köfuðu tveir fornleifafræðingar, Magnús Sigurðsson og Ragnar Edvardsson og Leifur Þorvaldsson aðstoðarmaður þeirra niður að flakinu með Arnari og fé- lögum. Arnar segir aðstæður um margt ákjós- anlegar á staðnum til að stunda rannsókn af þessu tagi. Flakið liggur ekki á mjög miklu dýpi (um tíu metrum) og nokkuð bjart er þar niðri. Það spillir heldur ekki fyrir að mikill skeljasandur er á staðnum. Vonast til að finna meira Þegar búið var að taka af allan vafa um að Phönix væri fundið óskaði Arnar formlega eftir friðlýsingu og var hún samþykkt af Fornleifanefnd ríkisins í júlí á síðasta ári. Þeir félagar stefna að því að kafa næst niður að flakinu í ágúst í sumar. Þá ætla þeir að fara á stærri bát til að geta einbeitt sér betur að vinnunni neðansjávar. „Ég vonast til að sá leiðangur verði góður. Það á margt fleira eftir að finnast. Það yrði til dæmis ekki amalegt að koma marm- araplötunni sem setja átti á leiði Kristjáns fjallaskálds til skila.“ Arnar er þakklátur öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn. „Það er útilokað að gera svona lagað einn. Maður er al- gjörlega háður öðrum um framkvæmd- ina. Það er líka gaman að geta deilt þessu með öðrum, það gefur verkefninu aukið gildi.“ Nú er bara að halda niðri í sér andanum eftir næsta leiðangri. Arnar Þór að störfum neðansjávar. Aðstæður geta verið mjög erfiðar. Sumt er glatað en annað merkilega vel farið í sjónum. Báturinn sem kafaranir notuðu í einum leiðangra sinna. Morgunblaðið/Ernir Póstskipið Phönix var tvímastra málmskip, knúið seglum og gufu- vél, smíðað í Skotlandi árið 1861. Phönix var 60 metra langt og um 400 tonn að þyngd. Skipið var í eigu útgerðarinnar „Det for- enede Dampskibsselskab“ (DFDS) í Danmörku, sem enn er til, og gerði hún skipið út til Íslands. Fyrsta ferð Phönix til Íslands var 7. júní 1864 og var það í áætl- unarferðum til landsins allt til þess er það fórst. Phönix var fyrsta gufuskipið sem sinnti svokölluðum miðsvetrarferðum til Íslands. Á þessum tíma skipti það Íslendinga miklu máli að fá ýmsar vörur og halda uppi samgöngum á milli Íslands og Evrópu yfir vetrartímann. Póstskipið Phönix í allri sinni dýrð. Knúið seglum og gufuvél

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.