SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Blaðsíða 40
40 29. maí 2011
Lífsstíll
Þ
að er eitt gott við það hvað veturinn entist
lengi. Þá finnst manni sumarið einhvern
veginn komið fyrr. Vorið kom eiginlega
ekki svo að um leið og það fór að hlýna
svolítið fannst manni bara komið sumar. Það er nú
samt ekki alveg komið enda er bara
miður maí og dálítið langt í hásum-
ar. Samt er það á næsta leiti og ligg-
ur alltaf nokkur eftirvænting í loft-
inu eftir bjartari tíð. Evróvisjón
kemur þessu öllu ágætlega af stað
þegar fólk notar tækifærið til að
grilla og halda fyrsta almennilega
partí sumarsins. Nú í lok maí er
stemningin að verða komin á suðu-
punkt enda júní og júlí framundan.
Auðvitað vonumst við öll eftir jafn-
góðu veðri og í fyrra. Það hefur
mikið að segja. En þótt það rigni og
blási skemmtum við okkur samt.
Hlökkum til að kúldrast í tjaldi, fara í bústaðinn,
ferðast og njóta samvista sem verða allt öðruvísi í
birtu og yl sumarsins. Golffólk gleðst líka þegar það
getur verið á golfvellinum liggur við alla nóttina og
sumir geyma húsverkin fram að miðnætti. Birtan
gerir einmitt sumarið svo skemmtilegt og spennandi.
Það er allt í lagi að fara í ferðalag seinnipart á föstu-
degi og keyra fram á nótt af því að það er bjart. Ein-
hvern veginn liggur ekkert á því það kemur aldrei
nótt. Þannig liggur oft ekkert á því að fara að sofa.
Oft tekur maður eftir þessu vandamáli á björtu sum-
arkvöldi. Þá finnst manni tilvalið að fara út að ganga
í kringum miðnættið. Eða taka til
þegar maður kemur heim úr mat-
arboði um tvöleytið. Mörgum finnst
líka erfitt að sofna í birtunni og
nota sérstakar gardínur til að loka
birtuna úti. Persónulega finnst mér
fátt betra en að sofna og vakna í
birtu. Á það jafnvel til að draga að-
eins frá svo að hún nái að flæða
óhindrað inn. Kannski er ég skrýtin
en mér finnst þetta mjög notalegt
og finnst ekkert erfitt að sofna
svona.
Lífið fær á svo margan hátt á sig
nýjan svip á sumrin. Það er eins og
fólk komi út úr híði sínu og fyllist krafti. Krafti til að
halda matarboð, ganga á fjöll og gera ýmislegt sem
manni dettur einhvern veginn ekki í hug að gera á
veturna. Þá er sófinn bara oft svo allt of heillandi og
kuldaboli leiðinlegur. Nú er því rétti tíminn til að
nota sól og blíðu til að drífa sig af stað. Njóta, vera
og upplifa spennandi og skemmtilega sumarhluti.
Sumar
og sól
Loksins er veturinn búinn og
styttist í sumarið. Nú er um að
gera að nýta sólina og birtuna
sem vítamínsprautu.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
Þótt það rigni og
blási skemmtum
við okkur samt.
Hlökkum til að kúldr-
ast í tjaldi, fara í bú-
staðinn, ferðast og
njóta samvista sem
verða allt öðruvísi í
birtu og yl sumarsins.
Nú er kominn sá árstími þegar hægt er að halda al-
mennilegt garðpartí. Fyrst er náttúrlega að vera búin/n
að taka til og gera garðinn snyrtilegan og fínan. Hressa
upp á grillið, hreinsa garðhúsgögnin og gera allt saman
fínt. Svo er að bjóða til sín góðum vinum. Bera fram
eitthvað svalandi og sumarlegt að drekka og grilla eitt-
hvað gómsætt. Það er sniðugt að vera með teppi úti í
garði til að geta setið enn lengur úti. En auðvitað er líka
bara fínt að færa samkvæmið inn fyrir þegar líða tekur
á kvöld. Eða bjóða fólki upp á kaffi eða kakó til að fá
smá yl í kroppinn.
Sumarleg grillpartí
Ólífur eru girnilegt meðlæti eða góðar sem forréttur
Morgunblaðið/Kristinn
Ferðalög fylgja sumrinu hjá
mörgum. Sumir skreppa í
sumarbústað á meðan aðrir
skella upp tjaldi. Það er allt-
af gaman að keyra dálítið út
fyrir bæinn sinn og skoða
nýjar slóðir. Sérstaklega ef
veðrið er gott. Þá er lítið mál
að tjalda, fá sér göngutúr og
prófa nýjar sundlaugar. Það
er líka um að gera að mikla
ekki ferðalögin of mikið fyrir
sér. Þú þarft ekkert að fara
svo ýkja langt og til að spara
bensínkostnaðinn er tilvalið að fara nokkur saman í
hóp. Fyrir þá sem vilja skemmta sér ærilega er góð
hugmynd að þefa uppi sveitaball og tjalda í nágrenni
þess. Hinir sem vilja vera í rólegheitum ættu frekar að
finna sér tjaldstæði úr almannaleið. Það er nóg til af
þeim og um að gera að nýta sér ferðavefi og bækur um
Ísland til að finna þau. Leyfum okkur að vera ferða-
menn í eigin landi og njótum þess að eyða sumrinu inn-
an landsteinanna.
Útilega og sveitaball
Það getur verið gott að
hafa stígvélin með.
Frappó hefur verið mjög vinsælt hér
á landi þegar hlýnar í veðri. Um er að
ræða kaldan kaffidrykk sem gerður
er úr kaffi, sírópi og klökum. Sann-
arlega meira frískandi drykkur en
heitt kaffi þegar veðrið er gott. Drykk-
ur þessi fyrirfinnst í ýmsum útgáfum
um allan heim og er vinsæll í Banda-
ríkjunum, Bretlandi og fleiri stöðum.
Sterkur kaffiís
Víetnamska heitið fyrir slíkan kaffi-
drykk hljómar ef til vill nokkuð fram-
andi. En „ca phe sua da“ stendur þó
aðeins fyrir þau þrjú hráefni sem í
drykkinn þarf; kaffi, mjólk og klaka.
Sua kallast sæt, niðursoðin mjólk
sem notuð er í drykkinn þar í landi og
verður áferð hennar til þess að drykk-
urinn líkist nokkuð bráðnuðum kaffi-
ís. Mikilvægt er að kaffið sé vel
sterkt til að drykkurinn verði góður. Í
hið víetnamska frappó skal nota
tvær til þrjár matskeiðar af niðursoð-
inni mjólk á móti 15 grömmum af
dökku möluðu kaffi í 160 ml af sjóð-
andi heitu vatni og klaka. Byrjið á að
hella mjólkinni í hristara og hristið
vel saman við klakann og kaffið. Svo
er allt í lagi að nota smávegis síróp
ef manni finnst kaffibragðið vera yf-
irgnæfandi. Slíkt síróp má kaupa
bæði í matvöruverslunum og sér-
vöruverslunum með te og kaffi og
fæst það í ýmsum bragðtegundum.
Kalt og frísk-
andi frappó
Svalandi frappó með kaffiklökum er góður á heitum sumardegi.