SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 10

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 10
10 29. maí 2011 É g var á Spáni núna fyrrihluta maímánaðar og fylgdist þokkalega vel með því sem var að gerast í aðdraganda borgarstjórna- og héraðsstjórnakosninganna, sem fóru fram sl. sunnudag, þar sem sósíalistaflokkur Zapateros beið mikið afhroð en hægri flokkurinn PP bætti við sig miklu fylgi. Mikið hefði ég viljað geta lesið hið afbragðsgóða spænska dagblað El Pais, en það er helst að ég geti stautað mig í gegnum fyrirsagn- irnar. Hafði þó hinn ágætasta túlk og vissi því svona nokkurn veg- inn hvað var að gerast. Það var í raun stórfróðlegt að fylgjast með Spánverjum og þeirri megnu undiröldu óánægju sem hjá þeim ríkir í garð spænskra stjórnvalda og bera saman við það sem helst hefur brunnið á okkur Íslendingum frá hruni. Það er margt sem Spánverjar hafa á hornum sér vegna getu- leysis spænskra stjórnvalda. Gíf- urlegt atvinnuleysi er í landinu og langmest hjá ungu fólki. Þetta gagnrýna Spánverjar vitanlega og reiði unga fólksins er mikil, en atvinnuleysi ungs fólks á aldrinum 16-29 ára er um 45%. Byggingariðnaðurinn hrundi í landinu með hörmulegum af- leiðingum fyrir svo marga; að- haldsaðgerðir stjórnvalda þykja koma mjög hart niður á öllum almenningi og gagnrýni í þá veru að stjórnvöld séu að neyða al- menning á Spáni til þess að borga skuldir einkafyrirtækja er megn. Alveg á sama hátt og það var gagnrýnt hér á landi í löngum og ströngum deilum um Icesave, að almenningur á Ís- landi ætti að greiða fyrir skuldir einkafyrirtækis, er það gagnrýnt á Spáni að lífskjör almennings þar í landi rýrni svo um munar, atvinnuleysi aukist nánast óbærilega og engin úrræði virðist vera fyrir hendi hjá spænskum stjórnvöldum til þess að snúa þessari skelfilegu þróun við. Fóru þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon kannski á sérstakt námskeið í úrræðaleysi og vandræðagangi hjá spænskum stjórnvöldum, var spurning sem vaknaði í huga mér, svo margt fannst mér líkt í afstöðu almennings í þessum tveimur lönd- um. Þau mótmæli sem ég varð vitni að í spænskum borgum á torgum úti, á meðan ég var á Spáni, voru mjög friðsamleg. Þetta var í borg- unum Valencia og Malaga. Í mesta lagi nokkur hundruð manns hóp- uðust saman á torgum, börðu potta og pönnur, héldu mótmæla- spjöldum á lofti og hrópuðu mótmæli. Þetta var allt ungt fólk, sem er mjög skiljanlegt, þar sem langmest virðist mæða á því. Ég get nú ekki sagt að ég hafi fundið fyrir því að þessi friðsamlegu mótmæli hafi um margt minnt á „Búsáhaldabyltinguna“ hér á landi, fyrir utan að einhverjir notuðu potta og pönnur. Leyfi ég mér að efast um að Spánverjar hafi verið að sækja í smiðju til Íslendinga, satt best að segja, enda heyrði ég ekki nokkurn mann lýsa því yfir að svo hefði verið. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hafði verið í opinberri heim- sókn í Madríd, höfuðborg Spánar, rétt áður en ég kom til landsins. Samkvæmt frásögnum sem ég fékk af heimsókn hennar og ræðu- höldum, var sérstaklega eitt atriði sem kallaði fram kuldahroll og mér var sagt að hefði vakið mikla reiði á Spáni. Hún mun hafa sagt að hún hefði mikla samúð með öllu því unga og vel menntaða fólki á Spáni sem væri án atvinnu. Þýskaland byði unga og vel menntaða fólkið á Spáni velkomið og þar ætti það að geta fundið starf við sitt hæfi. Kannski var þetta vel meint hjá Merkel, en margir á Spáni virtust telja, að svona framkoma leiðtoga öflugasta hagkerfis Evrópu, að láta eins og hún væri að rétta út hjálparhönd, þegar hún var beinlín- is að hvetja til „spekileka“ (e. braindrain) væri óboðleg með öllu. Vissulega væri gífurlegt atvinnuleysi meðal unga, vel menntaða fólksins á Spáni, en Spánn þyrfti einmitt á því fólki að halda til þess að rífa sig upp úr þeirri kreppu sem landið er í og hefja efnahagslega uppbyggingu. Það væri hins vegar í verkahring spænskra stjórn- valda að skapa aðstæður til að svo gæti orðið. Kannast lesendur ekki við margt af þessu úr umræðunni hér á landi? Spánn og spekilekinn Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is José Luis Rodrígu- ez Zapatero Jóhanna Sigurðardóttir ’ Fóru þau Jó- hanna og Steingrímur kannski á sérstakt námskeið í úrræða- leysi og vandræða- gangi hjá spænskum stjórnvöldum? Dagurinn hófst eiginlega í gær því það var ekki mikill fyrirvari á svona verkefni og því þurfti að vera snar í snúningum og Isavia vildi setja saman hóp af slökkvi- liðsmönnum frá sér sem starfa á Keflavíkur- og Reykjavík- urflugvelli og við brugðumst hratt við og settum saman glæsilegan hóp sem sam- anstendur af reynsluboltum og svo að sjálfsögðu einum nýliða sem verið er að kenna tökin. Þegar lokið var við að setja sam- an hópinn þurfti að færa bíla milli starfstöðva því við mynd- um taka bíl frá Reykjavík- urflugvelli og þá þurfti að koma með annan í hans stað frá Kefla- víkurflugvelli. Þetta gerðist sem sagt á miðvikudegi. Fimmtudagurinn byrjaði á því að við 7 mættum uppá slökkvi- stöð á Reykjavíkurflugvelli þar sem yfirmenn okkar héldu fund til að fara yfir stöðuna og hvert okkar hlutverk yrði þegar á Kirkjubæjarklaustur yrði kom- ið. Síðan var farið í að gera bíl- inn kláran með því að setja á hann aukaskóflur, grímur, kústa; og svo vinnugallar og vettlingar. Eftir það var tekin smá kaffipása og komið í sig smá orku fyrir komandi átök. Ferðin hófst hjá okkur um 10 leytið og það tók okkur með 11 mínútna stoppi nákvæmlega 4 klukku- tíma að koma okkur á svæðið. Um leið og ekið var í hlað hjá Vettvangsstjórn fór ég inn og við fengum lista yfir hvaða bæi við ættum að fara á og hjálpa við hreinsun, við fengum það verk- efni að fara á alla þá bæi sem lágu frá Klaustri til austurs og tókst okkur að hreinsa eitthvað í kringum 4 býli og nokkra bú- staði og gekk hreinsun bara nokkuð vel sökum þess að bíll- inn okkar er með 6000 lítra tank og við gátum lagt 3 slöngur frá honum að hverju húsi fyrir sig. Það var alveg ótrúlegt að sjá hversu þakklátir heimamenn voru fyrir okkar aðstoð og okk- ur fannst æðislegt að koma að húsum sem voru að drukkna í ösku og þegar við fórum þá mátti spegla sig í hlöðuþakinu. Eftir erfiðan en jafnframt gef- andi vinnudag var förinni heitið í vettvangsstjórn að biðja um fleiri verkefni, en þar var okkur tjáð að það væri íbúafundur á Klaustri kl 20 og eftir það kæmi í ljós hversu umfangsmikil vinna væri eftir, þannig að við skellt- um okkur í ljómandi góða heimatilbúna kakósúpu hjá heimasætunum með tilheyrandi bakkelsi og veigum. Síðan var förinni heitið að gistiheimilinu Klausturhofi og þar voru þau svo vingjarnleg að bjóða okkur gistingu meðan á þessum hreinsunarstörfum stæði. Þar var farið úr rennandi blautum göllunum og við skoluðum skít- inn af okkur og að sjálfsögðu var hringt í fjölskyldur og tekinn púlsinn á því sem er að gerast í mannheimum, því við erum jú borgarbörn. Seinna um kvöldið var svo hittingur allra slökkviliða á svæðinu á kaffihúsi þar sem við hittumst og töluðum um það sem hafði staðið uppúr yfir dag- inn. Svo beint í háttinn fyrir tólf til að vakna fyrir 7 daginn eftir og fara í ný verkefni með bros á vör. Við erum einfaldlega þakk- lát fyrir að fá að taka þátt í svona verkefni og vonandi skilar þetta einhverjum árangri fyrir alla þá sem á svæðinu búa. Þeir slökkviliðsmenn sem fóru frá Ísavía eru: Einar Már Jó- hannesson, Oddur Jónasson, Erla Káradóttir, Davíð Frið- riksson, Valgeir Ólason, Ar- noddur Jónsson og Róbert Ægir Hrafnsson. Dagur í lífi Einars Más Jóhannessonar slökkviliðsmanns á Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli Einar Már Jóhannesson og félagar hjá Ísavía sem héldu austur á Krikjubæjarklaustur til hjálparstarfa í vikunni. Dagurinn hófst í gær Rihanna hin bandaríska þykir með hressari söngspírum á sviði og á ekki í vandræðum með að setja sig í eggjandi stellingar, sýnist henni svo. Þessi mynd var tekin af snótinni þegar hún tróð upp í Today-þættinum á NBC- sjónvarpsstöðinni í New York á föstudag. Ekki fylgdi sögunni hvaða lag Rihanna var að syngja en án efa hefur hún leyst verk- efnið af fagmennsku og fimi. Veröldin Rihanna reigir sig Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.