SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Qupperneq 35
29. maí 2011 35
I
ttoqqortoormiit á Grænlandi er einangraðasta þorp á
norðurhveli jarðar, en 900 km eru í næsta þorp og engir
vegir liggja þangað. Íbúar í þorpinu eru 460 talsins og
fer þeim stöðugt fækkandi. Þar sem það er ekki í alfara-
leið, er kærkomin tilbreyting í tilveruna þegar skákfélagið
Hrókurinn mætir á staðinn um páskana á hverju ári og
stendur fyrir skákmóti og skákkennslu í barnaskólanum.
„Uppbyggingarstarfinu á Grænlandi miðar bara vel,“ segir
Arnar Valgeirsson er blaðamaður hittir hann í Vin, athvarfi
fyrir fólk með geðraskanir, sem rekið er af Rauða krossi Ís-
lands, en þar er Arnar leiðbeinandi og stendur reglulega fyrir
skákmótum. Með honum í förinni til Grænlands var Ingibjörg
Edda Birgisdóttir, sem var Íslandsmeistari kvenna í skák fyrir
áratug. Hún byrjaði aftur að tefla síðasta haust, var sérlegur
skákmeistari ferðarinnar og tefldi meðal annars fjöltefli.
„Að vísu er þetta eini bærinn sem Hrókurinn hefur farið til
undanfarin ár, en við höfum heimsótt Ittoqqortoormiit um
hverja páska frá árinu 2007,“ segir Arnar. „Þá komum við
þangað fyrst og við viljum endilega halda í þessa hefð. Áður
hafði Hrókurinn farið í um 20 ferðir í öll þorp austarstrandar
Grænlands frá árinu 2003 þegar Hrafn Jökulsson hóf að
kynna skáklistina fyrir okkar góðu grönnum í vestri.“
Arnar segir að íbúarnir hafi lifibrauð af veiðimennsku á
sumrin. „Þarna er fínt kaupfélag, bæjarskrifstofur, lítið elli-
heimili og skólinn er stór vinnustaður. Svo eru þarna fyrir-
tæki sem koma að fiskveiðum, lítil vélsmiðja, netagerð og
fleira í þeim dúr. Svo er þarna ferðaþjónusta, mest á vegum
Nanu Travel, til dæmis hundasleðaferðir sem eru allt frá
þremur tímum og upp í fimm daga.“
Og bærinn er fallegur. „Litirnir eru flottir og veðrið setur
svip á bæjarbraginn,“ segir Arnar. „Þetta er norðan sjötug-
ustu breiddargráðu, þannig að það getur verið óvægið. Við
fengum storm í tvo daga, en blíðuveður þess á milli, og yf-
irleitt var tíu stiga frost. Fólkið er mjög gestrisið, þó að fé-
Skák á ísbjarnaslóðum
Óhætt er að segja að þorpið Ittoqqortoormiit á Grænlandi
sé á ystu mörkum heimsbyggðarinnar og afskekktari þorp eru
vandfundin á plánetunni. Þangað lögðu forvígismenn Hróksins
leið sína á vordögum til þess að kenna krökkum skák. Hér er
rætt við Arnar Valgeirsson og Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur,
fyrrverandi Íslandsmeistari kvenna í skák.
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Ljósmyndir: Tim Vollmer
Gaba Madsen einbeittur við skákborðið.