SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 38

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Síða 38
38 29. maí 2011 Frægð og furður G unnar Gunnarsson rithöfundur var árið 1964 sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Viðurkenningin var fyrir framlag hans til íslenskra bókmennta og norrænnar sagnalistar og við athöfn þar sem skáldið fékk viðurkenn- inguna afhenta mættu, auk Ásgeirs Ásgeirssonar, formenn beggja ríkisstjórnarflokkanna, þeir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Gylfi Þ. Gíslason ráðherra menntamála. Áður hafði skáldið raunar verið sæmt ýmsum öðrum viðurkenningum fálkaorðu en lengra varð ekki komist í viðurkenningum en með stórkrossinum. Gunnar Gunnarsson var einn helsti rithöfundur Íslendinga á 20. öld. Hann var á tímabili meðal mest lesnu rithöfunda í Danmörku og Þýskalandi en hann bjó lengi í Danmörku og skrifaði raunar margar bóka sinna á tungu þeirrar þjóðar. Óhægt er hér að nefna hér alla bækur Gunnars en nefna má til dæmis skáldsögurnar Aðventu sem kom út 1939 og Heiðaharm sem kom árið eftir. Tæpum áratug fyrr hafði Gunnar svo sent frá sér bókina Svartfugl en þar sækir hannSkáldið Gunnar, forsetinn Ásgeir og ráðherrarnir tveir, Bjarni Benediktsson og Gylfi Þ. Gíslason. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Myndasafnið 1964 Ræturnar lágu vítt og djúpt Ó venjulegt morðmál kemur til kasta dómstóla í Los Angeles eftir mánaðamótin. Hin myrta, Edie Britt, er nefnilega ekki manneskja af holdi og blóði heldur var hún persóna í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Aðþrengum eig- inkonum, sem meðal annars hafa verið sýndir í Ríkissjónvarpinu. Lögsóknin er runnin undan rifjum leikkonunnar sem túlkaði Edie Britt, Nicollette Sheridan, en hún virðist staðráðin í að láta framleiðendur þáttarins svara til saka fyrir að hafa skrifað sig út án tilefnis. Langar leiðir sást að Edie Britt var framleið- endum Aðþrengdra eig- inkvenna enginn harm- dauði. Ömurlegri dauðdagi er vandfund- inn í sjónvarpssögunni – ef ekki mannkynssögunni. Fyrst reyndi mannleysa að kyrkja Edie Britt á heimili hennar á síðkvöldi. Hún slapp með skrekkinn en var að vonum ekki í nokkru Edie Britt rís úr öskunni ’ Aldrei hefur persóna verið skrifuð út úr sjónvarpsþætti með annarri eins heift og áhorf- endur um allan heim hlutu að velta fyrir sér hvort annarlegar ástæður lægju þar að baki. Var framleiðendum heimilt að skrifa Edie Britt út úr Aðþrengdum eiginkonum á sínum tíma? Þeirri spurningu verður svarað fyrir dómstólum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Leikkonurnar Eva Longoria og Nicollette Sheridan meðan allt lék í lyndi. Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.