SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Page 45

SunnudagsMogginn - 29.05.2011, Page 45
29. maí 2011 45 E kki er ýkja langt síðan Bókafélagið Ugla end- urútgaf Pollýönnu, einmitt á sama tíma og Íslendingar höfðu sökkt sér niður í neikvæðni og reiði og fannst það óskaplega flott hjá sér. Nokkur óvissa ríkti um það hvernig Pollýanna myndi passa inn í slíkt samfélag. En Pollýanna plumaði sig alveg ágætlega og gladdi nútímabörn á Íslandi eins og hún hafði gert í gamla daga. Nú hefur Ugla endurútgefið Heiðu. Nokkrar útgáfur eru til af þessari sígildu sögu Johanna Spyri en hér er á ferð falleg mynda- söguútgáfa sem birtist fyrst í Morgun- blaðinu árið 1958. Kápa bók- arinnar er í lit en myndirnar sjálfar eru í svart- hvítu, sem kann að virka ansi gamaldags á þá sem vilja lita- gleði og flottheit. En stundum hefur nútímafólk gott af því að slaka á og njóta þess sem er einfalt og fallegt – eins og þessi bók er. Nú eru áratugir síðan ég las Heiðu í alls kyns útgáfum, en alltaf man ég vel eftir geit- unum. Síðan þá hefur mér ver- ið fremur vel við geitur. Bækur eins og sagan um Heiðu eiga nefnilega stóran þátt í að gera börn að staðföstum dýravin- um. Alparnir eru sömuleiðis hug- stæðir. Heiða er svo einkar in- dæl persóna sem verður les- andanum hugstæð. Og svo er vitaskuld hinn góði drengur Pétur og hin ljúfa Klara í hjóla- stólnum en síðasta samtal þeirra Heiðu snýst vitaskuld um geiturnar. Heiða segir: „Bráðum kemur sumarið aft- ur... Þú munt geta gengið óstudd upp í beitarhagann með geitunum, heldur þú það ekki, Klara?“ Og Klara svarar: „Jú, það verður dásamlegt... Þú verður að skila kveðju til allra geitanna frá mér.“ Á sínum tíma fannst barns- hjartanu þetta fjarska falleg kveðja til geitanna. Og vonandi virkar hún enn á nútímabörn. Heiða snýr aftur ’ Stund- um hefur nútímafólk gott af því að slaka á og njóta þess sem er ein- falt og fallegt – eins og þessi bók er. Orðanna hljóðan Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Hér eru fjórar bækur sem liggja á náttborðinu. Made in Italy, food and stories eftir Giorgio Locatelli. Þessi bók er hnausþykk og ekta. Frábær matreiðslubók með pottþéttum ítölskum uppskriftum. Á milli uppskrifta er skemmtilegur texti sem setur hráefnið og uppskriftirnar í samhengi. Þetta er kryddað með ítölskum fjölskyldusögum og reynslu- sögum úr æsku höfundar á Ítalíu og svo því sem á eftir kom þegar hann flytur til Eng- lands. Virðingin fyrir hráefnunum og hefð- unum er honum í blóð borin. Kosturinn við uppskriftirnar er hversu einfaldar þær eru. Höfundur lýsir því t.d. að pastað hafi sál og hvernig skuli standa almennilega að pasta- suðu. Nokkuð sem Íslendingar ættu að taka sér til fyrirmyndar. Þessi bók er á stöðugu ferðalagi milli eldhússins og náttborðsins. Brew like a monk eftir Stan Hieronymus er öndvegisrit um belgíska bjóra og bjórmenn- ingu en Belgar hafa af að státa einstaklega merkilegri bjórhefð. Margar eftirsóttustu bjórtegundir landsins eru bruggaðar í munkaklaustrum, sumar í takmörkuðu upp- lagi. Höfundurinn rekur söguna, lýsir brugg- húsunum og greinir bjórstílana og gefur upp- skriftir. Þetta er skyldulesning fyrir áhugafólk um gerjun. La crise et aprés? Höfundurinn Jaques At- tali er franskur hagfræðingur og rithöfundur og var einn helsti ráðgjafi Francois Mitter- ands, Frakklandsforseta. Í bókinni útskýrir hann á einstaklega skýran hátt hvernig það það sem í fyrstu leit út fyrir að vera greiðslu- vandræði tiltölulega fámenns hóps íbúðar- kaupenda í Bandaríkjunum var í raun fyrstu merki um stærstu kreppu í 80 ár og sér ekki fyrir endann á henni. Bókin kom út rétt eftir fall íslensku bankanna, haustið 2008 og ég leita oft í hana til þess að rétta kúrsinn af þeg- ar mér finnst umræðan hér heima fara út um víðan völl. Ævisaga Gunnars Thoroddsen eftir Guðna Th. Jóhannesson er búin að liggja ansi lengi á náttborðinu en ég fylgist því miður verð ég að segja nokkuð vel með stjórnmálum, kannski er það í sjálfsvörn. Ég verð að játa að það sækir að manni nokkur depurð við þessa lesningu; þarna er ekki að finna framkvæmd glæstra hugsjóna eða hugmyndafræði fram- fara heldur frásögn af átökum og aftur átök- um við andstæðinga og samherja. Bændur flugust á er setning sem stundum er sögð fanga kjarna Íslendingasagnanna. Eftir lestur ævisagna íslenskra stjórnmálamanna mætti segja þetta: Lögfræðingar flugust á. Lesarinn Gísli Egill Hrafnsson ljósmyndari Lögfræðingar flugust á Saga Gunnars Thoroddsen er að stórum hluta frásögn af átökum og aftur átökum. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnú LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011 SUNNUDAGSLEÐSÖGN kl. 14, í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Eitthvað í þá áttina, sýning um kortagerð, skrásetningu og staðsetningu. 14. maí - 21. ágúst Byggðasafn Reykjanesbæjar: Bátasafn Gríms Karlssonar: Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn 15. maí – 15. sept. Sumarsýningin Fundað í Fjölni Fjölbreyttar sýningar í báðum söfnum Opið alla daga kl. 11-18 www.husid.com Sími 483 1504 Á gráu svæði Hrafnhildur Arnardóttir (23.3. - 29.5. 2011) Síðasta sýningarhelgi GUNNAR MAGNÚSSON ´61-´78 (11.2. - 29.5. 2011) Síðasta sýningarhelgi Leiðsögn um sýningar safnsins laugardag kl. 15 Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. KRAUM og kaffi. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ASÍ 21. maí til 26. júní Harpa Árnadóttir MÝRARLJÓS Sýningin er hluti af Listahátíð Opið 13-17, nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Farandsýningin: Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Ljósmyndari Mývetninga. Mannlífsljósmyndir Bárðar Sigurðssonar frá upphafi 20. aldar Stoppað í fat – Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár. Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 Myndin af Þingvöllum Sýningarstjóri: Einar Garibaldi Eiríksson Verk frá 1782-2011 eftir 50 höfunda OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði7. maí – 19. júní 2011 Hugvit Einar Þorsteinn Ásgeirsson 5. maí – 19. júní 2011 List án landamæra - Abstrakt Jón B.K. Ransú og Guðrún Bergsdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.