SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Qupperneq 2
2 12. júní 2011
Við mælum með …
Laugardagskvöld og vikan
Dans er góð líkamsrækt en ræktar
líka andann. Það mun alltaf létta
lundina að taka nokkur dansspor.
Þeir sem vilja ekki dansa við reggí
á Hemma og Valda geta kíkt á Café
Haítí í staðinn en þar munu Juss-
anam Dejah og félagar leika fyrir
dansi að brasilískum hætti á milli
níu og ellefu laugardagksvöldið 11.
júní. Svo er hægt að kíkja í tíma á
einhverri líkamsræktarstöðvanna
en zumba er vinsæl hreyfing núna
og sömuleiðis salsa.
Reuters
… dansi
20 Byggt á reynslunni
Magnús Sædal Svavarsson lætur senn af starfi byggingarfulltrúa
Reykjavíkur. Hann hefur unnið við byggingar í hálfa öld.
24 Ögrandi útópía
Írsaelsmaðurinn Ilan Volkov, sem tekinn er við starfi aðal-
hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands, brennur í skinn-
inu að vinna reglulega með sveitinni.
26 Sem lindin tær
Gamalt lag, Sem lindin tær, sem sló enn og aftur í gegn í fyrra, á
sér merka sögu – og ekki síður textinn sem ekki er alltaf farið rétt
með.
28 Ég er sáttur maður
Rithöfundurinn Sigurður A. Magnússon er kominn á ní-
ræðisaldur og hættur að skrifa. Hann segir líf sitt hafa
verið röð af tilviljunum.
31 Ofvirka útvarpskonan
Hrafnhildur Halldórsdóttir útvarpskona opnar mynda-
albúmið.
36 Æsir upp hungrið
Eldhrímnir nefnist nýlegur veitingastaður í Reykjavík
þar sem persnesk matargerðarlist er í öndvegi.
Lesbók
42 Þreyttist á því að gera sífellt …
Sænska skáldkonan Kajsa Ingemarsson fékk nóg af því að hlusta
á aðra og vildi ráða sér sjálf. Hún ákvað því að skrifa bækur.
44 Góði dátinn óstöðvandi
Hin ómótstæðilega skemmtilega skáldsaga Jaroslavs Haseks um
góða dátann Svejk er komin út í kilju.
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir,
Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
É
g veit ekki hvað það er en það er eitt-
hvað ótrúlega fyndið við það að sjá
karlmenn í kvenmannsfötum. Ein-
hverjir hvá áreiðanlega við og hugsa að
ég sé með vanþróaðan húmor en svo er ekki.
Fullur salur af fólki, sem horfði á Húsmóðurina í
Borgarleikhúsinu á þriðjudagskvöldið, er að
minnsta kosti sammála mér. Húsmóðirin er nýr
íslenskur gleðileikur að hætti Vesturports. Um-
fjöllunarefnið er íslenskur veruleiki á þremur
mismunandi tímabilum og er útfærslan farsa-
kennd og með kabarettívafi en töluvert er sungið
í verkinu.
En aftur að skemmtanagildi karla í pilsi. Það er
skrýtið hvernig fagurskapaðir karlmannslíkamar
verða vanskapaðir og skrýtnir í kjól. Það verður
bara of mikið af hárum og vöðvum til sýnis, það
vantar alla mýkt í útlit jafnt og hreyfingar. Það er
gaman að sjá karlmannlega menn eins og Gísla
Örn Garðarsson og Björn Hlyn Haraldsson leika
konur (reyndar hárugar og kraftalegar konur).
Húsmóðirin er þannig leikrit að ekki er verið að
sækjast eftir því að gera kvenhlutverkið full-
komlega raunverulegt, það héldi enginn að Gísli
Örn væri kona þótt hann hefði vaxað á sér
bringuna og leggina! Svo má ekki gleyma Víkingi
Kristjánssyni sem er frábær í hlutverki tánings-
stúlku á hápunkti gelgjuskeiðsins. Eitt af söng-
atriðunum í leikritinu er einmitt stórkostlegt
dansatriði með henni og vinkonum (körlum) við
lagið „Single Ladies (Put a Ring on It)“ með
Beyoncé. Nánari útskýringar ekki þörf (fyrir utan
að geta þess að há fótspörk og rassaskak er stór
hluti af dansinum). Jóhannes Níels Sigurðsson er
líka stórskemmtilegur í hlutverki frænkunnar,
sem áhorfendur fylgjast með frá því hún er ung
kona þar til hún verður skakklappa gamalmenni.
Hún leynir sko á sér og ég er ekki að tala um það
sem er undir pilsinu. Nína Dögg Filippusdóttir er
síðan eina alvörukonan í verkinu og tekur á sig
margar mjög ólíkar kvenmyndir, sem gaman er
að fylgjast með.
Ein af uppáhaldsmyndunum mínum er einmitt
Some Like It Hot en í þeirri mynd leika tveir mjög
karlmannlegir og vel skapaðir menn, Tony Curtis
og Jack Lemmon, tónlistarmenn, sem verða að
fara í gervi kvenmanna til að flýja undan mafí-
unni. Þeir leika á móti leikkonu sem er sú kven-
legasta af þeim kvenlegu, Marilyn Monroe. Þeir
verða því enn stórgerðari og klunnalegri í kven-
hlutverkum sínum í samanburðinum. Útkoman
er stórkostlegt grín, sem allir ættu að hafa séð.
Myndin er frá árinu 1959, sumsé yfir hálfrar aldar
gömul, og enn er hægt að hlæja að henni. Það er
gott að vita að grín með körlum í kjólum er enn í
fullu gildi eins og sannast í Húsmóðurinni. Björn
Hlynur og Gísli Örn eru Tony Curtis og Jack
Lemmon Íslands en ég ætla ekki að segja hvor er
Curtis og hvor Lemmon. Hvað finnst ykkur?
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Gísli Örn í góðri sveiflu í Vesturportssýningunni Húsmóðurinni í Borgarleikhúsinu.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Karlar í kjólum
Þessir flóðhestar búa í Whipsnade-dýragarðinum í suðurhluta Eng-
lands. Þetta eru engir venjulegir flóðhestar því þetta eru smáflóð-
hestar sem verða ekki næstum því eins stórir og þeir sem þekktastir
eru. Hér má sjá Floru, móður hins þriggja mánaða Sapo, aðstoða af-
kvæmi sitt eftir að það skreið undir hlið í dýragarðinum. Þótt Sapo
sé smáflóðhestur verður hann eins metra hár og 250 kíló fullvaxinn.
Veröld
Reuters
Flóðhestur í vandræðum
11. júní
Þó að sum-
arið hafi lát-
ið fara lítið
fyrir sér
þýðir það
ekki að það
eigi ekki að
vera sól í sinni. Það er vart til
betri leið að sálarbirtu en að
dansa við reggí. Vill svo til að
það er einmitt reggíkvöld á veg-
um Rvk Soundsystem laug-
ardagskvöldið 11. júní á milli tíu
og þrjú í Nýlenduvöruverslun
Hemma og Valda við Laugaveg.
Fram koma Gnúsi Yones, Kalli
Youze, DJ Kári og DJ Elvar en
það er frítt inn.
Fyrir þá sem missa af þessu má
benda á að þessi kvöld eru nú
haldin mánaðarlega og fer gott
orð af þeim. Mætið í þægilegum
skóm!
38
34