SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Blaðsíða 34
34 12. júní 2011 Á r hvert er haldin í Árósum tónlistarhátíðin Spot þar sem norrænar hljómsveitir koma saman. Obbi sveitanna er danskur, sem vonlegt er, bæði vegna staðsetningarinnar og eins vegna þess að danska rokkráðið, ROSA - Dansk Rock Samråd, heldur hátíðina. Að því sögðu þá er líka talsvert af hljómsveitum og listamönnum annars staðar af Norðurlöndum og undanfarin ár hafa skipuleggjendur Spot fengið erlenda listamenn til að krydda súpuna og það stundum rækilega, eins og síð- ar verður greint frá. Í tengslum við hátíðina eru haldnar málstofur og fundir ýmiskonar og menn glíma við hinstu rök rokktilverunnar eins og: Hvernig seljum við fleiri plötur, hvernig fáum við Ameríkanana/Bretana/ Þjóðverjana til að hlusta á okkur, er hægt flytja út norrænt rokk og svo má telja. Ein spurning sem menn spyrja oft þar úti, og ég hef reyndar sjálfur verið spurður oftar en einu sinni: Eiga norrænar hljómsveitir eitthvað sameiginlegt / skilur eitthvað norrænt rokk frá öðru rokki? Ég get svosem svarað því hér í eitt skipti fyrir öll: Nei. Fyrst það íslenska Það er skynsamlegt að koma því íslenska frá: Á Spot 2011 spiluðu íslensku hljómsveitirnar Ham og Dikta og tónlistarmennirnir Mugison (Örn Elías Guð- mundsson), og Helgi Hrafn Jónsson. Það að fá Ham inn á slíka hátíð var óvæntur bónus og skemmtilegur, ekki síst þar sem stærsti hluti dagskrár sveitarinnar var ný lög sem gefin verða út á árinu. Þar á meðal var margt hnossgætið – til að mynda Ingimar sem er næsti smellur Hamara. Diktumenn voru að vanda fagmannlegir og vel spilandi, enda að ljúka tónleikaferð um Þýskaland. Þeir voru því miður að spila nokkuð snemma á laug- ardeginum og mæting því ekki nema í meðalagi góð. Kvöldið áður hafði Mugison leikið í sama sal en á betri tíma og salurinn smekkfullur. Hann lenti í hremmingum með græjuna sína góðu, hljóðfærið heimasmíðaða, og var því bara með kassagítarinn, en kom ekki að sök, það fer honum mjög vel, ekki síst þegar áheyrendur þekkja lögin jafn vel og kom í ljós. Undanfarin ár hefur Helgi Hrafn Jónsson verið ráðsmaður hjá dönsku tónlistarkonunni Tinu Dickov. Sú nýtur mikilla vinsælda í heimalandi sínu og það að vonum, enda bæði fínn lagasmiður og góð söngkona. Helgi var þó á Spot sem sinn eigin herra, var að kynna eigin lagasmíðar, en nú var það hlutverk Tinu Dickov að sjá um undirspil og bakraddir. Eflaust hafa Af nor- rænu rokki Á tónlistarhátíðinni Spot fær norræn tónlist að hjóma, rétt aðeins kryddað með framandi tónum. Hljómsveitirnar eru misjafnar eins og gengur, en stundum geta menn ekki annað en gapað yfir snilldinni. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Jenny Wilson hin sænska tók feikn fjöruga gospelrispu. Ljósmynd/Spot/Thorsten Overgaard

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.