SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Blaðsíða 40
40 12. júní 2011
Æ
vi Hallbjörns Hjartarsonar á
Skagaströnd hefur ekki allt-
af verið dans á rósum en í
dag, laugardag, verður stig-
ið stórt skref í þá átt að varðveita minn-
ingu þessa ástsæla alþýðulistamanns, hins
eina, sanna, íslenska sveitasöngvara, til
frambúðar. Þá verður opnað Kántrýsetur
í heimabæ hans.
Dóttir Hallbjörns og
tengdasonur, Svenný og
Gunnar Halldórsson,
sem nú reka Kántrýbæ
(sem Hallbjörn kom á
fót og rak lengi) fengu
hugmynd að safni fyrir
nokkrum árum og
draumurinn er um það
bil að rætast með dyggri
aðstoð Margrétar Blöndal útvarpskonu og
Björns Björnssonar leikmyndahönnuðar
sem gerðu sýninguna.
Hallbjörn, sem er nýorðinn 76 ára, trúir
því varla sjálfur hvað er í nánd. „Þetta
gerist venjulega ekki fyrr en 30 til 40 ár-
um eftir að menn eru dauðir. Það er að
minnsta kosti óvenjulegt að svona safn sé
opnað á meðan fólk er enn ofan jarðar en
mér finnst þetta alveg stórkostlegt. Mér
hefði aldrei dottið í hug að ég ætti eftir að
lifa þennan dag,“ sagði hann í samtali við
Sunnudagsmoggann í vikunni.
Litlu munaði raunar að ekkert yrði af
því ævintýri sem líf Hallbjörns er, því
þegar hann kom í heiminn, í júní 1935 á
Blönduósi, var hann talinn andvana og
það var fyrir hreina tilviljun að hjúkr-
unarkona, sem átti leið í líkhúsið síðar
sama dag, sá lífsmark með drengnum.
Hjúkrunarkonan, Jóhanna að nafni, brá
skjótt við og sá stutti hresstist fljótlega.
Var hann síðan skírður í höfuðið á hjúkr-
unarkonunni, ljósmóðurinni Hallberu og
Birni eiginmanni hennar og heitir Hall-
björn Jóhann.
Hugmynd Svennýjar og Gunnars var
fyrst að opna safn á efri hæð Kántrýbæjar
„en það var til svo gríðarlega mikið af alls
kyns hlutum, ljósmyndum og öðrum, að
ákveðið var að nýta allt veggpláss í hús-
inu,“ segir Gunnar.
„Á sýningunni verður 21 veggspjald þar
sem saga hans er rakin, í húsinu verða 11
sýningarskápar með ýms-
um munum. Hér eru skjáir
þar sem hægt verður að
skoða margvíslegt sjón-
varpsefni og við sum
spjöldin eru spilarar þar
sem hægt er að hlusta á lag
sem passar við það spjald.
Það er sem sagt mikið í
þetta lagt og sýningin
verður mjög glæsileg,“
segir Gunnar.
Hljómplötur Hallbjörns
nutu vinsælda og mörgum
er í fersku minni þegar
hann sló í gegn í Reykjavík
á öndverðum níunda ára-
tug síðustu aldar og söng m.a. fyrir leik
KR og ÍA á Íslandsmótinu í knattspyrnu á
Laugardalsvelli sumarið 1983 á vegum fé-
lagsskapar sem kallaði sig KR-stuð. Hann
hefur líka lent í ýmissi þrekraun; lenti í
mjög slæmu slysi um árið, Kántrýbær
brann og hann hefur glímt við veikindi.
„Sá æðsti tók í taumana strax fyrsta dag-
inn og lét litla fingurinn hreyfast; minn
tími var ekki kominn þá frekar en oft síð-
ar þegar á bjátaði. Mér var alltaf hleypt út
í lífið aftur,“ segir Hallbjörn.
Þrettán af sextán börnum með föður sínum eftir útför móður þeirra, Ástu Þ. Sveinsdóttur. Hallbjörn og Kristján bróðir hans léku oft saman. Kristján er með harmonikkuna.
Reis á fyrsta
degi aftur upp
frá dauðum
Hallbjörn Hjartarson var úrskurðaður látinn við
fæðingu og fluttur í líkhús. Barninu varð til lífs
að síðar sama dag átti hjúkrunarkona leið þar
um og sá annan litla fingurinn hreyfast örlítið.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Hallbjörn kom frá í Óðali í samstarfi við KR-Stuð sumarið 1983 og þá var glatt á hjalla. Hallbjörn á Laugardalsvelli 1983. Formaður KR-Stuð, Baldur „Bóbó“ Frederiksen var kynnir.
Hallbjörn á hótel Vík í Reykjavík 18 ára,
þegar hann var í Tónlistarskólanum.
Gamli Kántrýbær rifinn eftir elsvoða í október 1987. Staðurinn var opnaður á ný árið eftir.
Hallbjörn og Amy Eymundsdóttir, eiginkona hans í rúmlega
hálfa öld, skömmu eftir að þau kynntust á sjötta áratugnum.
Hallbjörn
29 ára gamall.