SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Síða 22

SunnudagsMogginn - 12.06.2011, Síða 22
22 12. júní 2011 Þ að berast sífellt ný tíðindi enda flýgur stundin hratt. En þegar betur er að gáð er nýjungin í tíðindunum ekki endilega alltaf jafnmikil og virðist við fyrstu sýn. Tvær laustengdar fréttir bárust þannig í lok þessarar viku. Önnur var góðkynja en hin síður. Sú fyrri laut að skuldabréfaútgáfu Seðlabankans fyrir ríkissjóð Íslands. Útboðið gekk vel, eftir- spurn mikil og vextir innan marka sem hægt var að sætta sig við. Steingrímur Sigfússon sagði þetta mikinn sigur fyrir ríkisstjórnina. Það var skondin yfirlýsing frá honum. Hann var mað- urinn sem hafði ásamt talsmönnum undirstofn- ana ráðuneyta haft uppi stóryrtan hræðsluáróð- ur um að yrðu Icesave-lögin hans og Jóhönnu felld í annað sinn yrði Ísland útilokað af lána- markaði um langa hríð. Lögin voru eins og allir muna felld kirfilega. Og það merkilega var að hræðsluáróðurinn féll með lögunum og varð að dufti á augabragði. Skuldabréfaútgáfan og spá frá 18. mars Í frétt Morgunblaðsins um skuldabréfaútgáfuna segir: „Eignastýringasjóðir, tryggingarfélög og lífeyrissjóðir voru langstærstu kaupendurnir í erlendu skuldabréfaútboði ríkisins í gær og keyptu þau 85% af skuldabréfunum en útgáfan nam einum milljarði Bandaríkjadala. Vogunar- sjóðir keyptu 8% skuldabréfanna. Um tveir þriðju þátttakendanna í útboðinu komu frá Bandaríkjunum en aðrir komu frá Evrópu, Mið- Austurlöndum og Afríku. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins höfðu íslensk stjórnvöld ekki sterka skoðun á því hvort skuldabréfaút- gáfan ætti að vera í evrum eða Bandaríkjadölum þegar undirbúningur hófst. En eftir að fulltrúar stjórnvalda höfðu fundað með um 85 fjárfestum var einsýnt að umtalsverður áhugi var vestan- hafs á útgáfunni. Upphaflega stóð til að gefa út skuldabréf fyrir 500 milljónir dala en vegna mikils áhuga fjárfesta var ákveðið að hækka út- gáfuna upp í einn milljarð.“ Þessi efnisatriði er rétt að skoða í samhengi við það sem sagt var í Reykjavíkurbréfi hinn 18. mars s.l. þegar hræðsluherferðin stóð sem hæst: „Í hræðsluáróðrinum er áróðurinn um „dóm- stólaleiðina“ að verða undir. Nú er reynt í stað- inn að halda því fram að Íslendingar fái ekki auðveldlega lán nema þeir taki fyrst á sig miklar en þó óvissar skuldir. Þetta er auðvitað þver- stæða í sjálfu sér en að auki staðleysa. Bréfritari setti sig í samband við gamla „kontakta“ er- lendis sem þekkja best til slíkra mála. Þeir segja að markaðurinn í Evrópu sé erfiður um þessar mundir fyrir alla af fjölmörgum ástæðum sem allir þekkja. Það hafi ekkert með Icesave að gera og dæmi um tvo byggðastofnanabanka sem lúta pólitískri stjórn séu með öllu ómarktæk og ekki innlegg í málið. Í Bandaríkjunum séu mark- aðirnir á hinn bóginn að opnast. Þar gera menn ekkert með Icesave nema síður sé. Þeir horfi á heildarskuldabyrði og framtíðarvaxtarmögu- leika og -greiðslugetu. Það sé ekki hjálplegt Ís- lendingum að hlaða á sig Icesave-skuldum og áhættunni að auki. En að öðru leyti sé Icesave ekki það sem skipti máli við ákvörðunartöku og markaðurinn vestra sé smám saman að verða Íslendingum hagstæðari.“ Niðurstaða skuldabréfaútgáfunnar og frétt Morgunblaðsins um hana staðfesta í raun allt sem þarna var sagt fyrir nærri 3 mánuðum, tæpum mánuði fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Og þau kippa rétt einu sinni fótunum undan einum þætti hræðsluáróðursins. Í Reykjavík- urbréfinu lauk frásögnum af samtölum bréfrit- ara við „gamla kontakta“ svo: „Þessi samtöl gera óljósar og órökstuddar vangaveltur tals- manns S.Í. á blaðamannafundi nýlega enn sér- kennilegri. Veit hann ekki betur eða var hann enn að tala sér þvert um hug til að ganga í aug- un á pólitískum yfirboðurum sínum?“ Þessi spurning stendur augljóslega enn opin, en hún hefur fengið aukinn þunga eftir skuldabréfaút- gáfuna. Reykjavíkurbréf 10.06.11 Fréttir sem koma ekki á óvart

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.